Víðförli - 15.11.1986, Síða 4
Byggingarannáll
Hallgrímskirkju
1945
1948
1953
1957—1960
1961
1962—1973
1974
1975—1977
1977— 1978
1978— 1980
1980—1981
1982
1983
1984
1986
Hinn 15. desember, kl. 10 árdegis, afhentu borgaryfirvöld
kirkjulóðina og fyrsta skóflustungan var tekin.
Framkvæmdir hófust síðan við byggingu kjallarans undir
kórnum sem varð fyrsti vígði salur byggingarinnar og
Hallgrímssöfnuður notaði til messuhalds.
Sunnudaginn 5. desember var þessi hluti kirkjunnar vígður.
Undirstöður kirkjuskipsins steyptar.
Næstu þrjú- árin lágu framkvæmdir niðri vegna
aðhaldsaðgerða stjórnvalda.
Neðsti hluti kirkjuskipsins byggður.
Jarðvinna við undirstöðu turnsins (klöppin sprengd).
Turninn byggður í fulla hæð, gengið frá honum að utan og
fyrsta hæð hans innréttuð.
27. október, á 300. ártíð séra Hallgríms Péturssonar, var
kirkjusalurinn í syðri turnálmunni vígður og tekinn í notkun
fyrir guðsþjónustur Hallgrímssafnaðar.
Kórinn hækkaður og gaflveggur mili kórs og skips steyptur.
Hvolfþakið byggt á kórinn.
Stoðir steyptar í kirkjuskipi og útveggir hækkaðir.
Rammar steyptir milli hvelfinga og stálbitar í þaki settir.
Þaksperrur reistar og smíði aðalhvelfinga hafin.
Aðalhvelfingar steyptar upp.
Hliðarhvelfingar steyptar, þak klætt með kopar og
múrhúðun kirkjuskipsins. Hinn 15. desember voru 40 ár
liðin frá byrjun kirkjusmíðinnar.
Unnið að innri frágangi kirkjuskipsins, múrhúðun,
hitalögn, gólflögn, raflögn og málun. Undanfarna mánuði
hafa kirkjusmiðir, sjálfboðaliðar og iðnaðarmenn, lagst á
eitt við þetta verk svo takast mætti að vígja kirkjuna þriðju
og lokavígsluna sunnudaginn 26. október, daginn fyrir 312.
ártíð séra Hallgríms.
Hallgrímskirkju er ekki fulllokið enn, þótt hún sé nú tekin í notkun, vígð
og afhent söfnuði til afnota. Enn er ólokið margvíslegum frágangi innan
sem utan, lóðarfrágangur verður að bíða betri tíma, og uppsetning
loftræstikerfis svo og hljómflutningskerfis, er tryggi það að talað orð
berist eðlilega. Prédikunarstóll hefur ekki enn verið smíðaður, en sjóður,
sem stofnaður var af vinum dr. Sigurbjörns Einarssonar biskups í tilefni
sjötugsafmælis hans, mun standa straum af gerð veglegs og vandaðs
prédikunarstóls. Skírnarfontur er einnig væntanlegur í náinni framtíð.
Hann verður kostaður af gjöf Ásbjarnar Ólafssonar stórkaupmanns svo og
af skírnarfontssjóði Kvenfélags Hallgrímskirkju. Aðalhurð
Hallgrímskirkju verður gerð þegar gengið verður frá umhverfi kirkjunnar.
Hún verður kostuð af minningargjöf um Eggert Kristjánsson
stórkaupmann. Unnið hefur verið að fjársöfnun til kaupa á stóru, 70 radda
orgeli í Hallgrímskirkju. Verður það mikið og krefjandi verkefni fyrir alla
velunnara kirkjunnar að stuðla að því að sá draumur verði að veruleika.
Vígsluathöfnin hófst kl. 10.30
með því að næstum allir þjóð-
kirkjuprestar landsins ásarpt bisk-
upum innlendum og erlendum
gengu hempukleéddir til kirkjunn-
ar. Biskup íslands herra Pétur
Sigurgeirsson, vígði kirkjuna. Her-
mann Þorsteinsson, form. sóknar-
nefndar fór með bæn í upphafi.
Sóknarprestarnir sr. Ragnar Fjalar
Lárusson og sr. Karl Sigurbjörns-
son fluttu ásamt biskupi texta við
tendrun altarisljósa. Ritningarlestur
lásu Lydía Pálmarsdóttir, dr. theol.
Jakob Jónsson, dr. theol. Sigur-
björn Einarsson biskup og Hörður
Áskelsson organisti. Þá flutti
biskup íslands vígsluorð og forseti
íslands Vigdís Finnbogadóttir
ávarpaði kirkjugesti.
Næst hófst hátíðamessa þar sem
sóknarprestarnir þjónuðu fyrir
altari en biskup íslands herra Pétur
Sigurgeirsson prédikaði. Ritning-
arlestur lásu þær Guðrún Finn-
bjarnardóttir og Dómhildur Jóns-
dóttir. Nær allir kirkjugestir 1500
manns gengu til altaris sem gekk
fljótt og vel fyrir sig enda önnuðust
átta prestar útdeilinguna.
Við lok messu flutti kirkjumála-
ráðherra, Jón Helgason, ávarp.
Flytjendur tónlistar voru: Félagar
úr Sinfóníuhljómsveit íslands,
Málmblásarasveit Tónlistaskólans í
Reykjavík undir stjórn Kjartans
Óskarssonar, Mótettukór Hall-
grímskirkju, söngstjóri og orgel-
leikari var Hörður Áskelsson en
Þorkell Sigurbjörnsson útsetti
sálmana sem fluttir voru.
4 — VÍÐFÖRLI