Víðförli - 15.05.1988, Blaðsíða 10
Hólakirkja
endurbyggð
Nútíð og fortíð í Hólakirkju. Reynir
Hjálmarsson skoðar gömul bein.
Frá fornleifauppgreftri í Hóladóm-
kirkju. Sigríður Sigurðardóttir frá
Stóru-Ökrum við eina gröfina undir
kirkjugólfi.
Það er fróðlegt að koma heim að
Hólum um þessar mundir. Fornleifa-
fræðingar, smiðir, múrarar, arkitekt
og verkfræðingur eru þar að störf-
um, að endurbyggja kirkjuna.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt
sagði að verkið gengi ljómandi vel
þótt sífellt væru að koma upp óvænt
verkefni. Mikill áhugi væri meðal
starfsmannanna enda spennandi og
lærdómsríkt að lifa með Hólakirkju
og sögu hennar sem birtist með
margvíslegum hætti.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt kynnir ýmsa merkisgripi fyrir prófastshjónum Skag-
firðinga Signýju Bjarnadóttur og sr. Hjálmari Jónssyni.
í fréttum
Bandalag kvenna ályktar um
kirkjumál.
Eftirfarandi ályktanir voru sam-
þykktar á 71. aðalfundi Bandalags
kvenna í Reykjavík, sem haldinn var
sunnudaginn 13. mars s.l:
„Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, haldinn 13. mars 1988
beinir þeim eindregnu tilmælum til
sóknarnefnda og forráðamanna
kirknanna, að hreyfihömluðum
verði auðveldaður aðgangur að
sækja guðsþjónustur.“
„Aðalfundurinn lýsir ánægju
sinni með kristilegt starf í sumar-
búðum Reykjavikurprófastsdæmis
fyrir börn og unglinga og hvetur
kirkjuyfirvöld og sóknarnefndir til
að styrkja starfsemina eftir mætti.“
„Aðalfundurinn lýsir ánægju sinni
yfir nýstofnuðu Æskulýðssambandi
Reykjavíkurprófastsdæmis. “
„Aðalfundurinn hvetur presta,
sóknarnefndir og aðra aðila innan
kirkjunnar að hlúa að þeim sem lent
hafa á villigötum og reyna að beina
athygli þeirra að kirkjunni og kristi-
legu samstarfi.“
„Aðalfundur BKR, 13. mas 1988,
beinir þeim tilmælum til presta og
sóknarnefnda að þeir hvetji forráða-
menn fyrirtækja til vikulegra bæna-
stunda.“
10 — VÍÐFÖRLI