Víðförli - 15.05.1988, Blaðsíða 19

Víðförli - 15.05.1988, Blaðsíða 19
Bréf að westan Undirritaður stundar hér nám í CPE (Clinical Pastoral Education), námi fyrir presta í sérhæfðri þjón- ustu á sjúkrahúsum, við Abbott Northwestern sjúkrahúsið og Minneapolis Children’s Medical Center. Um margt er að velja og hef- ur undirritaður sérhæft sig í þjón- ustu við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra, við þá, sem þjást af „krónískum“ sársauka og enn- fremur í þjónustu við foreldra, sem eignast börn fyrir tímann, börn með fæðingargalla, eða andvana fædd börn. Fjölbreytt mannlíf Minneapolis hefur upp á margt að bjóða, hvort sem um er að ræða menningarviðburði, íþróttir, fjöl- breytni í kirkjulífi, vísindi, eða þá í sambandi við skemmtilegt og fjöl- breytt umhverfi. Mikið er um skemmtigarða og stöðuvötn í „Tví- buraborginni“ (Minneapolis og St. Paul) og skokkarar eru að allan árs- ins hring, hvort sem er í hörkufrost- um vetrarins, eða í bræðandi hita sumarsins. Andstæðurnar eru mikl- ar hvert sem litið er. Mannlífið er af- ar fjölbreytt, svo sem vænta má í milljónaborg og andstæður eru þar líka miklar, t.d. er bilið á milli fá- tækra og ríkra mikið. í sumum hverfum borgarinnar virðist litar- háttur ráða meiru en þjóðfélags- staða, í öðrum tala peningarnir. En yfir höfuð virðist fólk vera stolt af því að vera frá Minnesota og hugsar ekki um suðrænar slóðir nema yfir háveturinn. Hátækni Abbot Northwestern sjúkrahúsið hefur sérhæft sig mikið í hjartaað- gerðum og hér eru framkvæmdar um 1200 hjartaaðgerðir á ári og 40 - 50 hjartaflutningar, að því er mér er tjáð. Á sjúkrahúsinu eru um 800 sjúkrarúm og á barnaspítalanum, Minneapolis Children’s Medical Center, sem tengist Abbot North- western, eru nokkuð yfir 100 sjúkra- rúm. Auk þess leita 3-400 manns til bráðaþjónustu sjúkrahússins og þjónustu við fatlaða (Sister Kenny Institute) á hverjum degi. Tækjabúnaður allur er mjög nú- tímalegur og m.a. er núna farið að vinna með laser-geisla. Mikið er lagt upp úr „heilstæðri læknismeðferð" (wholistic medicine), þ.e.a.s. að skoða sjúklinginn sem eina heild og meðhöndla hann/hana út frá þeim sjónarhóli, sinna jafnt líkama, anda, sál, fjölskyldu o.s.frv. Vinnubrögð Sjúkrahúsprestarnir hér vinna mjög mikið með hjartasjúklingum, eins og gefur að skilja, auk þess sem við sérhæfum okkur í samræmi við áhuga hvers og eins. Ársnemar (resi- dents) vinna 6 mánuði í senn á þeim deildum, sem þeim er úthlutað og guðfræðinemar eru hér í 3ja mánaða námi. í sumum kirkjudeildum er það skilyrði fyrir vígslu, að hafa lok- ið a.m.k. einum 3ja mánaða áfanga í CPE. Um þessar mundir eru hjá okkur 5 guðfræðinemar, þar af Þjóðverji og Suður-Kóreubúi. Flest- ir nemarnir eru lútherskir, enda Lútherskar guðfræðideildir hér í grennd, en æðimargar kirkjudeildir aðrar eiga hér fulltrúa. Siðferðileg umræða Mikið er rætt um deilumál í sið- fræði inni á sjúkrahúsum í U.S.A. og taka sjúkrahúsprestarnir virkan þátt í þeirri umræðu. Helst er rætt um: heiladauða, líffæraflutninga, eyðni, áhrif peninga á það hver nýtur lækn- ismeðferðar, hvenær hætta ber með- ferð o.s.frv. Það eru miklar breyting- ar að eiga sér stað í heilbrigðiskerf- inu hér í U.S.A. og margir hafa af því þungar áhyggjur, að heilbrigðis- þjónusta sé að verða hluti af forrétt- indum þeirra, sem eiga peninga og að fátækir muni ekki njóta jafn góðrar þjónustu í framtíðinni. Það er íslenskur hjartaskurðlækn- ir starfandi við Abbott Northwestern sjúkrahúsið. Hann heitir Örn Arnar og hefur starfað hér í mörg ár. í St. Paul búa margir íslenskir nemar, sem stunda nám við University of Minnesota. Við höfum komið sam- an nokkrum sinnum, svona til að ryðga ekki of mikið í íslenskunni. Og nú er vorið framundan, sem er sérstaklega fallegur tími hér um slóðir. í framhaldi af þvi ljúka mörg okkar námi og halda aftur heim til íslands. Við munum taka með okkur reynsluna héðan og síðar minnast landsins fyrir westan. Kveðjur heim, Sr. Bragi Skúlason VÍÐFÖRLI — 19

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.