Víðförli - 15.05.1988, Qupperneq 11
Alkirkjuráðið fjallar um margvíslegustu mál sem snerta mannlífið. Ýmsir
málaflokkar þess hafa verið vel afmarkaðir, og fjalla sérstakar deildir um þá.
Víða hafa starfshópar verið stofnaðir til þess að fjalla sérstaklega um ein-
staka málaflokka í heimalöndum sínum. Alkirkjuráðið hefur oftlega sent
upplýsingarefni í þannig formi sem hentar vel til umfjöllunar í starfshópum
og má þar nefna biblíulesefni tengt Lima-skýrslunni, sem margir kannast við.
Utanríkisnefnd þjóðkirkjunnar
vill gangast fyrir því að slíkir starfs-
hópar komist á laggirnar hérlendis.
Hefur það reynst til mikils gagns
fyrir heimakirkjur þegar slík um-
ræða verður kraftmikil. Hún víkkar
útsýn þeirra sem aðild eiga auk þess
sem Alkirkjuráðið byggir einfald-
Iega tilveru sina á sem virkustu starfi
heima í söfnuðum. Emilio Castro
framkvæmdastjóri Alkirkjuráðsins
hefur einatt og iðulega bent á, að
það kirkjulega starf sem ekki gerist
eða fær enduróm í söfnuðinum sé
ekki raunverulegt kirkjustarf.
Hér fer á eftir stutt kynning nokk-
urra málaflokka sem henta vel sem
viðfangsefni starfshópa. Af og til
eru haldnar ráðstefnur um þessa
málaflokka og verður stutt að því að
fulltrúar starfshópa gætu sótt þær
eftir því sem aðstæður leyfa.
* Réttlæti, friður og heilindi
sköpunarinnar. (Justice, Peace and
Integrity of Creation).
Þetta er eitt helsta mál Alkirkju-
ráðsins nú um stundir og verður eitt
megin viðfangsefnið á Heimsþing-
inu í Ástraliu 1991.
* Miðlun auðlinda. (Sharing of
Resources).
Hér eru samskipti fyrsta og þriðja
heimsins í kastljósi. Auðlindirnar
eru margvíslegar, mannlegar sem
efnahagslegar. Þeir geta aðeins gefið
í raun sem kunna jafnframt að
þiggja. Þetta verður líka eitt um-
ræðuefnið í Ástralíu 1991.
* Fötlun, fatlaðir og kirkjan
Fötlun er margskonar og kemur
oft i veg fyrir fulla þátttöku manna
í samfélaginu. Jafnvel án þess að
fólk geri sér grein fyrir því. Kirkjan
hefur hér hlutverk að vinna sem mál-
svari og samfélag hinna fötluðu, til
að tryggja að sjálfsögð mannréttindi
séu virt og menn njóti sín.
* Sameiginleg tjáning hinnar
postullegu trúar nú (Towards the
common expression of the apostolic
faith today).
Guðfræðideild Alkirkjuráðsins
Alþjóða-
mál og
þjóðkirkja
hefur unnið að þessu verkefni um
skeið og tekur það við af Lima-
skýrslunni sem höfuðátak þeirrar
deildar.
* Boðun og kristniboð.
Hér er að sjálfsögðu eitt megin
umfjöllunarefni Alkirkjuráðsins og
fjallar um boðun kristindómsins
heima og heiman. Nýjar aðstæður
krefjast nýrra vinnubragða og nýrrar
guðfræði.
* Barátta gegn kynþáttakúgun og
fordómum.
Þessi málaflokkur Alkirkjuráðs-
ins hefur sérstaklega beinst að
Apartheid stefnu stjórnvalda Suður-
Afríku. Þessi mál hafa sérstaklega
tengst íslendingum upp á síðkastið
er Norðurlönd gerðu samning við
nágrannaríki S.-Afríku, hin svo-
nefndu SADCC lönd, um þróunar-
aðstoð.
* Börn og kirkjan.
Þessi málaflokkur hefur marga
áherslupunkta, t.d. friðarfræðslu
barna, börn í neyð, börn sem boð-
endur etc.
* Hin nýja tækni.
Hin siðferðilegu og hagnýtu álita-
mál sem skapast af tækniframþróun
eru mjög í umræðu Alkirkjuráðsins.
Eru þau skoðuð bæði sem umhverf-
ismál sem læknisfræðileg mál.
* Flóttamenn.
Eitt geigvænlegasta vandamál
mannkyns er hinn gífurlegi fjöldi
flóttamanna og annarra sem ekki
geta búið í eigin landi. Önnur lönd
telja ýmis tormerki á því að taka við
þeim. Hvaða skyldur hefur kirkjan
gagnvart þeim 15 miljónum manna
sem eru nú landflótta, — hvað mætti
gera á íslandi?
* Kirkjan og alþjóðamálin.
Guðfræðileg umfjöllun um rétt-
læti, vald, vopnabúnað, stríð og frið
og mannréttindi og útfærsla þess í
umræðu þjóðanna, er eitt af verk-
efnum Alkirkjuráðsins. Þessi deild
hefur náið samstarf við Sameinuðu
þjóðirnar.
* Kirkjan og aðrar trúarhreyfing-
ar.
Samtal kirkjunnar og annarra trú-
arhópa, bæði við Hindua, Buddista
og Muslima, sem og aðrar og nýrri
trúarhreyfingar hefur verið mikið
iðkað innan Alkirkjuráðsins og eru
þar athyglisverð gögn til umfjöllun-
ar, enda margt að gerast á þessum
vettvangi.
* Fátækt og ný fjárhagsskipan
heimsins.
Samstaða kirkjunnar með þeim
fátækustu hefur kallað eftir nýrri
efnahagsskipan. Mikil umræða fer
fram um það efni sem tengist að
sjálfssögðu baráttu fyrir mannrétt-
indum og réttlæti.
* Kvennamál.
Þessi málaflokkur hefur marga
undirflokka, sérilagi á þessum ára-
tug, sem útnefndur hefur verið Ára-
tugur kvenna af Alkirkjuráðinu.
* Endurnýjun safnaðarlífsins.
Miðlun upplýsinga um ólíkar
hefðir í helgihaldi, kynning á tónlist
og tjáningu trúarinnar á sér eðlilegt
rými innan Alkirkjuráðsins sem
deilir þeim gögnum gjarnan með
áhugahópum og söfnuðum.
Hér er aðeins um að ræða hluta af
þeim málaflokkum sem fjallað er
um hjá Alkirkjuráðinu eða Lúth-
erska heimssambandinu. Eru áhuga-
menn um land allt hvattir til að huga
að þeim möguleika að stofna starfs-
hóp, sem hefði einhvern ofan-
greindra málaflokka að viðfangi.
Ritari utanríkisnefndar kirkjunnar
sr. Bernharður Guðmundsson á
Biskupsstofu gefur nánari upplýs-
ingar um þessi mál.
VÍÐFÖRLI — 11