Víðförli - 15.12.1990, Side 3

Víðförli - 15.12.1990, Side 3
Börnin skilja ekki orðið, aðventa. Hitt vita þau flest, að það eru fjögur kerti á aðventukransinum. Það fer heldur ekki fram hjá þeim, að kertin tengjast sunnudögum. Og þegar hið siðasta logar, þá eru jólin að koma. Aðventan er því í senn tími eftir- væntingar og undirbúnings. Hversu gott er það, þegar slíkt fer saman. Við vitum, að kirkjan varðveitir tær- leika jólanna, kristinna jóla. Og það breytir engu, þótt við séum minnt á það, að hátiðin er arftaki annarrar, sem var til að fagna því, að sól hækk- aði á lofti. Jólin, sem aðventan ryður braut, geta aldrei orðið annað en há- tíð kristninnar, fagnaðarhátíð vegna frelsara mannanna, Jesú Krists. Þannig fór Jóhannes fyrir og boð- aði komu hans, sem svo yrði stór, að Jóhannes væri ekki einu sinni verð- ugur þess að binda skóþveng hans. Biskupinn skrifar: Aðventan spyr Samt lét hann lærisveina spyrja, þar sem hann var hnepptur í fangelsi Heródesar, hvort frændi hans úr Nasaret væri í raun sá, sem hann hafði boðað og einskis annars væri von. Með líkum hætti spyrjum við okk- ur oft sjálf. Sjálfsagt ekki síst á þess- um annatíma, sem við eigum fyrir jólin, hvort þetta sé nú allt þess virði að fórna fyrir fé sem fyrirhöfn. Og það er von, að spurt sé. Og er ekki þessi tími, sem nú fer í hönd með fleiri kertunr, sem eftir er að kveikja á en hinum, sem loginn hefur verið borinn að, að krefja okkur um svar við spurningunni um það, hvort allt sé þeim þeim hætti hjá okkur, sem sannur jólaundirbúningur krefst? Það sagði við mig vinur, að hann teldi þann einan geta átt sanna hátíð á jólunr, sem hefði nýtt sér aðvent- una til undirbúnings. Ekki veit ég, hvort þessi fullyrðing á alls staðar rétt á sér. Hitt efa ég ekki, að þessar fjórar vikur til jóla geta gert hátíðina dýrlegu að tengingarþætti himins og jarðar, svo að engin hætta verði á því, að frelsaranum sé úthýst. Þetta gerist, ef við berum gæfu til þess að hafa ekki aðeins krans á borði, held- ur tendrum einnig ljós í huga og hjarta. Aðventan spyr, ekkert síður en Jó- hannes. Við gefum ekki aðeins svar á aðfangadagskvöld. Svarið felst í þeirri mótun lífs, sem trúin veitir og kirkjan nærir. Látum þvi ekki börn- in ein um að horfa á kransinn. Tök- um þátt í að veita birtu i líf sem flestra. Berum birtu í heiminn. Það er köllun kristins manns. Betri tími en aðventan miðlar, þekkist varla. Ólafur Skúlason 3

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.