Víðförli - 15.12.1990, Qupperneq 6

Víðförli - 15.12.1990, Qupperneq 6
Á síðari árum hafa bæst við eiginmenn og tengdaforeidrar og ný kynslóð barna í hópinn sem syngur og spilar um jó/in á Hofteigi 48. um. Að syngja með sínum börnum, það er svo einfaldur hlutur. Það þarf bara að vilja og hafa kjarkinn og trúa því, að þetta sé manni sjálfum til gleði og góðs. Tónlistin er glæsilegasta jóla- skrautið. Það þykir sjálfsagt að und- irbúa jólin á allra handa máta. Því ekki undirbúa jólatónlistina, sem er ódýrasti, einfaldasti og einlægasti mátinn. Það er sífellt verið að auglýsa alls konar þarfir og gerviþarfir fyrir jól- in, við getum áreiðanlega átt Krist á heimilinu um jólin, þótt teppin séu ekki ný, jafnvel enn frekar ef við syngjum hvert með öðru á gamla teppinu. Við getum raulað með jóla- söngvana í útvarpi og sjónvarpi, já og svo eru aðventukvöldin í kirkjunum. Það þarf ekki að setja upp mikið kerfi til þess að flytja músik inn í jólahaldið. Það er bara að byrja. Þáttur kirkjunnar — Þú minntist á kirkjuna. Þá væri gaman að heyra fráþér hvernig kirkjan gæti komið til móts við þessa þörf manneskjunnar og aukið sönginn í jólahaldi hennar? Kirkjan er oft svo fjarlæg venju- legri manneskju, að hún þorir ekki að taka undir. Því þarf kirkjan kjark til þess að brúa þessa fjarlægð og einstaklingurinn Iíka til þess að byrja að syngja. — Gœtu börnin orðið tengiliðir? Er ekki auðveldara að fá þatt til að syngja og foreldrar mundu kannski fá kjark til að syngja með þeim í kirkjunni? Jú áreiðanlega, ef þau eru þá ekki alveg að drukkna í því flóði tónlistar þar sem einföld, eðlileg, jafnvel gömul tónlist eins og jólatónlistin er, þykir ekki nógu fín og poppuð. Það glymur alls staðar í eyrum þeirra þessi niðursoðna jólatónlist. í kjörbúðum og fjölmiðlum, þar sem sumir gimsteinar jólatónlistar fá sömu umbúðir og slagararnir og allt fer í eina bragðlausa súpu. Það barn þarf að vera sterkt og hafa mikla trú á að það sé að gera rétt, sem þorir að rísa mót heilum skara af jafnöldr- um, sem finnst stelpulegt og gamal- dags að syngja svona jólalög, sem séu aðeins fyrir kerlingar. Samt sem áður hef ég þá trú, að það sé miklu meira af vel með farinni músik og svo mörgu fallegu í jólahaldi en við gerum okkur grein fyrir. — Setjum nú svo að kirkjan hafi öðlast títt umtalaðan kjark og vilja til að efla almennan jólasöng. Hvaða leiðir telur þú vœnlegastar? Mér er það í barnsminni, þegar pabbi efndi í fyrsta sinn til svokall- aðra jólasöngva í Gamla bíói þar sem barnakór styrktur af fullorðnu fólki ásamt hljóðfæraleikurum kynnti áheyrendum þessa alþjóðlegu jólasöngva. Pabbi hafði fengið texta orta eða aðhæfða þessum þekktu al- þjóðlegu jólalögum og kynnti þau þarna í fyrsta sinni mörgum áheyr- endum, sem allir tóku undir og lærðu söngvana. Síðan færðist þetta inn í kirkjurnar og varð fastur siður margra um tíma a.m.k. hér í Reykja- vík, að koma í kirkju á aðventunni og æfa sig að syngja fyrir jólin. Því ekki að eignast gleðina með því að syngja saman. — Eru ekki til sœmilegir textar við þessa söngva? Það er allmikið til af textum, að vísu eiga þeir ekki allir erindi í sálmabókina, enda miðaðir við kröfu lagsins fyrst og fremst. En góðir textar eru sífellt að líta dagsins ijós. En mér finnst eftirsjá að þessum jólasöngæfingum i kirkjunum og finnst að þar ætti að taka þær upp aftur almennt. Svo eru aðventu- kvöldin í kirkjunum líka vettvangur til að iðka almennan söng. Ég kem á mörg þeirra, þar sem Hamrahlíðar- kórinn er iðulega beðinn að koma þar fram. En mér finnst oft að það sé of mikið prógram á aðventukvöld- unum, en of lítil þátttaka kirkju- gesta. Nú er það auðvitað svo, að margt af list og menningu er þess eðlis að það skal borið á borð fyrir áhorfend- ur eða áheyrendur til að njóta. En annað hefur hins vegar það eðli að þar geta fleiri verið þátttakendur og mér finnst kirkjan einmitt vera slík stofnun þar sem við getum gert ýmsa hluti saman. Væru ekki aðventu- kvöldin vettvangur fyrir miklu meiri þátttöku kirkjugesta og kynningu á nýjum og gömlum jólalögum? Og hvers vegna ekki að fá tónskáldin okkar til þess að semja ný lög, við Kynslóðirnar syngja og leika jólasöngvana saman. 6

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.