Víðförli - 15.12.1990, Side 11
Hlutirnir hata tilhneigingu til þess
að fara heldur vel — sagði gjarnan sá
vitri maður prófessor Jóhann Hann-
esson við nemendur sína. Hann
hefði einmitt orðið áttræður 17. nóv-
ember sl. og þess var fallega minnst.
Mér kemur þetta oft í hug og það
gerir mér gott, ekki síst á jólaföst-
unni, þegar mannlífið virðist fara úr
vissum skorðum við „undirbúning"
jólanna og síbylja auglýsinga og
jólaösin er að drekkja þjóðinni.
Reyndar þekkja miðaldra íslending-
ar og yngri vel verslunarumsvif á
jólaföstunni. Þau hófust jafnskjótt
og þjóðin fór að hafa svolítið fé
handa á milli.
Menn hafa alltaf viljað gera sér
dagamun, og það veitir ekki af því í
skammdeginu, og minna tilefni er nú
til slíks en fæðing frelsarans.
En umstangið og umbúðirnar
verða því meiri sem efnahagurinn
bætist og nú er svo komið að frá-
sagnirnar um látlausu jólin við
kertaljós undir súð heyra fremur til
helgisagna jólanna en samtíma-
reynslu.
En hlutirnir hafa tilhneigingu til
að fara heldur vel. Þrátt fyrir allt
umstangið og yfirvinnuna eiga trú-
lega flestir heldur góð og friðsæl jól
hér á landi. Ég hef haldið jól á ýms-
um stöðum í ýmsum löndum en þau
voru sjaldnast eins gleðilcg eins og
jólin heima meðal frændfólks og
vina í kunnugu umhverfi. Svipað hef
ég reyndar heyrt frá mörgum öðrum.
Betri undirbúningur jóla
Það er mikið ánægjuefni hversu
undirbúningur jólanna í mörgum
fjölskyldum er að batna, þeim fjölg-
ar sem vilja undirbúa hinn andlega
þátt jólanna ekki síður en ytra byrð-
Ritstjóri ræðir málin
Vil ég mitt hjartað
vaggan sé...
ið. Og það gefast æ fleiri tækifæri til
þess.
Aðventan eða jólafastan er orðin
mikill starfstími í kirkjunni hérlend-
is. Sívaxandi fjöldi sækir aðventu-
kvöldin og aðventuguðsþjónusturn-
ar sér til uppbyggingar. Söngur hefur
blessunarlega aukist mjög á jólaföst-
unni, enda fáanleg ýmis sönghefti
með léttum jólalögum. Vaxandi tón-
mennt í skólum og tónlistarskólum
auðveldar mjög söng á heimilum.
Það er trúlega fátt eins gott til undir-
búnings jólum og reyndar einingar
fjölskyldunnar eins og að syngja
saman jólalögin. Það eru hljóm-
burðartæki á mörgum heimilum og
fylla umhverfið gleði, þegar þau
Ieika jólalögin af plötum og snæld-
um og því ekki taka undir, þegar ver-
ið er að baka jólasmákökurnar eða
skrifa á jólakortin. Þorgerður Ing-
ólfsdóttir ræðir þetta skemmtilega í
viðtali hér í blaðinu.
Aöventusiðir á heimilum
Ýmsir aðventusiðir hafa fest sig í
sessi á heimilum. Víða eru aðventu-
kransarnir og sumar fjölskyldur
syngja saman þegar kveikt er á nýju
kerti. Ljósin sjö í gluggunum sjást
víða, þau eru runnin frá helgisög-
unni um gluggaljósin sem vísuðu
hinni heilögu fjölskyldu Ieið til fjár-
hússins í Betlehem. Margar góðar
frænkur bjóða börnum fjöl-
skyldunnar að halda „litlu jólin“
einhvern tíma á jólaföstunni og
njóta jólaföndurs, sagna og söngva.
Og sérstaklega vil ég benda á þann
fjársjóð gleði og uppbyggingar sem
felst í samskiptum við aldrað fólk.
Það er góður undirbúningur fyrir
jólin að heyra frásagnir þeirra og
njóta reynslu þeirra á jólaföstunni.
Að opna hjarta sitt
En allt þetta sem ég hef nefnt, að-
ventusiðir og annað atferli á jóla-
föstu er þó aðeins til stuðnings fyrir
einstaklinginn að eignast gleðileg
jól. Það hjálpar þér og mér í jóla-
ösinni að ná áttum og greina hvar Jes-
ús Kristur kemur til okkar. Því að
hann hann vitjar okkar sem hinir
minnstu bræður, nær og fjær, hann
birtist okkur í orði fornar bókar sem
sumir eru búnir að afskrit'a. En hann
kemur og vill eiga stað hjá þér og
mér. Þessu svaraði sr. Einar í Eydöl-
um svo fallega í sálmi sinum um
komu jólabarnsins:
Þér gjöri eg ei rúm með grjót né tré
gjarnan læt ég hitt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé
vertu nú hér minn kœri.
Það eru hin raunverulegu jól — að
taka á móti Jesúbarninu í hjarta sér.
Svo einfalt, eins og flest sem hefur
mikið gildi. Allt annað er umbúðir
jólanna. Inntak þeirra er, að hann er
hér og vill verða okkur lifandi veru-
leiki, hluti af innra og ytra lífi okkar.
„Vil ég mitt hjartað vaggan sé...
vertu nú hér minn kæri.“
Ef það gerist, verða gleðileg jól.
Bernharður Guðmundsson
11
Bernharður Guðmundsson