Víðförli - 15.12.1990, Síða 12

Víðförli - 15.12.1990, Síða 12
Utgáfa og verslun í Kirkjuhvoli Viðtal við Eddu Möller framkvæmdastjóra Skálholtsútgáfunnar og Kirkjuhússins Kirkjuhúsið og Skálholtsútgáfan sameinuð í nýju húsnæði Forlag kirkjunnar, Skálholtsút- gáfan var stofnað árið 1981, ári síðar var Kirkjuhúsið keypt af kirkjuleg- um aðilum með það í huga að Kirkjuhúsið yrði þjónustumiðstöð kirkjunnar og jafnframt forlags- verslun Skálholtsútgáfunnar. Nú hefur það gerst sem staðið hefur til í mörg ár að þessar tvær sjálfseignar- stofnanir hafa sameinast og hefur hið nýja fyrirtæki flutt í Kirkjuhvol við Kirkjutorg, gegnt Dómkirkjunni og opnað þar fallega verslun og skrifstofur. Það er mikill erill þar og mikið að gera hjá starfsmönnum Kirkjuhússins — Skálholtsútgáf- unnar en þær eru: Laufey Geirlaugs- dóttir, Geirlaug Ottósdóttir verslun- arstjóri og Edda Möller. í tilefni þessara tímamóta ræddi Víðförli við framkvæmdarstjórann Eddu Möller. — Þetta er sannarlega kirkjuleg stofnun, Edda. Já, hvernig sem við lítum á hana, að utan sem innan. Við erum undir einum hatti núna við þessa þjónustu við söfnuðina. Við útvegum, gefum út og dreifum fræðsluefni, seljum og útvegum kirkjunni, bækur trúarlegs eðlis og guðfræðirit. í sambýli við okkur er skrifstofa Prestafélags ís- lands þannig að á kaffistofunni hitt- ast ýmsir starfsmenn kirkjunnar og áhugafólk í kirkjulegu starfi og miðla upplýsingum og hugmyndum. Við stelpurnar sem hér vinnum syngjum allar í kirkjukór og njótum okkar í kirkjulegu starfi í okkar kirkju. Okkur finnst það forréttindi að fá að vinna að málefnum kirkj- unnar í aðalstarfi og geta miðlað hér reynslu okkar. Við vinnum mikið með starfsfólki fræðsludeildar kirkjunnar og hefur það verið góð og gagnleg samvinna á sviði útgáfu á fræðsluefni. — Þessi samruni tveggja stofnana gekk hratt fyrir sig? Já, það var ljóst að úr þeim mætti skapa öfluga þjónustumiðstöð kirkjunnar. Það voru álagspunktar í rekstri beggja stofnana á misjöfnum tíma þannig að beggja hagur var að samræma starfskrafta og hafa þjón- ustu á einum stað. Ólafur biskup tók af skarið með þetta, boðaði fund fyrir tæpu ári, þá var vitað að báðar stofnanir stóðu allvel fjárhagslega og tíminn kominn til sameiningar. Við unnum áætlun um sameiningu og svo fór að Skálholtsútgáfan yfir- tók rekstur Kirkjuhússins. I ágúst fluttum við svo hingað í Kirkjuhvol og reksturinn er kominn í fullan gang. Þetta hefur verið mikil törn, flutn- ingurinn, sameiningin, fræðsluefn- isútgáfa haustsins og síðast en ekki síst gáfum við út tvær nýjar bækur. Önnur heitir „Jesús — maðurinn sem breytti sögunni“ en hin heitir „Til þín sem átt um sárt að binda“. — Hvers vegna voru þessar tvær bœkur valdar til útgáfu? Það vantaði gott fræðsluefni fyrir 10—12 ára börn, sem einnig mætti bjóða á almennum markaði. „Jesús — maðurinn sem breytti sögunni" fæst nú í öllum bókabúðum og hefur fengið góðar viðtökur. Síðan höfum við heyrt það frá prestum að það vantaði sárlega efni til þess að gefa 12

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.