Víðförli - 15.12.1990, Side 13

Víðförli - 15.12.1990, Side 13
þeim sem syrgja, hafa orðið fyrir ein- hverskonar missi, leiðsögn um stig sorgarinnar. Sr. Karl Sigurbjörnsson skrifaði bókina. Viðtökur eru hreint frábærar. Jafnframt má geta þess að leitað var til Björns Rúrikssonar ljósmyndara um aðstoð við mynda- val. Hann var svo hrifinn af texta og viðfangsefni að hann lánaði myndir sínar endurgjaldslaust. — Á hvað viljið þið leggja áherslu í Kirkjuhúsinu? Við viljum að starfsfólk kirkjunn- ar geti treyst því að það geti fengið hjá okkur það sem þarf að vera fyrir hendi í kirkjum og safnaðarheimil- um, sem dæmi allar gerðir altaris- kerta og messuskráa, kirkjumuni, hökla og rykkilín, stólur, fræðslu- efni og jafnvel gjafavöru og hvað- eina annað sem það þarfnast. Við viljum Iíka að fólk almennt geti fundið hjá okkur gjafavöru sem er vönduð og falleg. í tengslum við skírnir eigum við ávallt skírnarkerti, skírnarserviettur og skírnarkjóla og í tengslum við fermingar erum við með víðtæka pöntunarþjónustu við landsbyggðina með sálmabækur og gyllingu á þær, fermingarkerti og servíettur með áletrun og margt fleira. Þetta er þjónusta sem Kirkju- húsið hefur innt af hendi í mörg ár sem við göngum inn í og viljum bæta sem kostur er. Draumurinn er að geta komið upp myndarlegu barnabókarhorni, það verður gaman að spreyta sig á því. — Hvernig líður ykkur í vinn- unni? Okkur finnst gaman í vinnunni, við eigum einstaklega vel skap sam- an allar þrjár. Reksturinn er fjöl- breyttur og margt skemmtilegt sem gerist er glima þarf við. Við höfum hver sitt verksvið en göngum allar i afgreiðsluna þegar mikið er að gera. Hún situr i fyrirrúmi. Við settum okkur eina reglu þegar við byrjuð- um: Að veita góða og lipra þjónustu. Það var líka það eina sem við kunn- um í verslunarrekstri. — Hverjir eru draumar ykkar um framtíðarstarfið? Eg held að við séum búnar að koma rekstrinum á þann grunn sem við viljum byggja á en nú er að ganga að því með krafti að efla hann og styrkja. Við viljum að Kirkjuhúsið verði staður þar sem fólk leitar að góðum hlutum en komi líka án er- indis og finni þar eitthvað sem eflir og bætir. Við þurfum að gefa út fleiri bækur með leiðsögn á vegi trú- arinnar, bæði fyrir leitandi fólk en einnig til að næra trúarlíf kristins fólks. í þessu samfélagi fjölhyggjunnar sem við lifum í og nýaldarhreyfingar ná fótfestu þurfum við að geta boðið upp á gott Iesefni. Við viljum einnig geta gefið góða mynd af kirkjunni hér í þjónustu- miðstöðinni. WtíUM Nú fyrir jólin höfum við á boð- stólnum sitthvað til jólagjafa, en það eru gripir sem fela í sér gildi og gætu eflt hið trúarlega með fólki. Við flytjum inn fjölbreytt úrval kerta- stjaka og vönduð kerti, veggkrossa af ýntsum stærðum óg gerðum og helgimyndir, IKONA frá Cirikk- landi. Við viljum koma fram við við- skiptavinina þannig að þeir skynji það samfélag sem felst í því að við er- um öll Guðs börn. Við vonum líka að fólk finni að það er velkomið hingað í Kirkjuhúsið — þjónustu- miðstöð kirkjunnar. 13

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.