Víðförli - 15.12.1990, Síða 14

Víðförli - 15.12.1990, Síða 14
Vidtal viö Kjell Holm Fyrr á þessu ári þinguðu forystumenn norrænu prestafélaganna hérlendis. Víðförli spurði formann danska prestafélagsins fregna um kjör presta í landi þeirra Hvað er í fréttum — frá Dönum... Það eru miklar breytingar í dönsku kirkjunni sem annars staðar. Þar fer að sjálfsögðu fram kjara- barátta en hún beinist ekki aðallega að hærri launum heldur að meiri og betri frítíma. Það er ekki alltaf auð- velt að finna starf fyrir maka prests- ins, þar sem hann nýtur sín. Reyndar eru prestar í hraðvaxandi mæli giftir innbyrðis, þannig er ástatt um 100 hjón. Tveir þriðju guðfræðinema eru konur og þær eru líka meirihluti þeirra er vígjast. Mjög oft eru slík prestahjón með I/2 stöðu. Konan er í hálfu starfi sem aðstoðarprestur þegar börnin eru lítil en dæmið snýst oft við þegar börn komast á táningaaldur, þá fer faðirinn gjarnan í hálft starf. En það er erfitt að samhæfa sumarleyfi og helgarfri við þessar aðstæður. Hverskonar embœtti eru eftirsótt meðai presta? Það vilja margir þjóna prestakalli með um 2000 manns, ekki langt frá einhverri stóru borginni þar sem kirkjuleg hefð er lifandi og virk. Hvernig er menntun presta háttað? Háskólanámið er 5 ár og síðan fjögurra mánaða starfsþjálfun áður en þeir fá vígslu. Fyrstu fjögur árin í starfi verða þeir að sækja vikulangt námskeið hvert ár til að byggja sig upp og efla í starfi. Mikil áhersla er á símenntun enda sérstök stofnun Præstehojskolen sem annast það. Sérhæfing verður æ meiri innan hins kennimannlega starfs, og það eykur starfsgleðina. Metnaðurinn beinist í auknum mæli að því að kunna vel sitt fag sem prestar og njóta þess. Það er t.d. vaxandi hópur presta sem vill ekki verða prófastar, sem er stjórnunarstaða í Danmörku heldur sinna prestsþjónustu ein- göngu. Hvernig eru húsnæðismál danskra presta? Yfirleitt ágæt. Almennt hafa prestar skrifstofur sínar heima. Söfnuður borgar fyrir hita, ljós og innbú þar, þótt skrifstofa sé líka i safnaðarheimili. Það er viðurkennt að lestur og vinna prestsins heima er hluti af starfi hans. Litið er svo á að 25% af tíma prests eigi að vera til lesturs og náms, en 75% til almennrar prestsþjón- ustu. Hvað tekur mestan tíma í starfi hins dæmigerða danska prests? Ætli það séu ekki skírnarheim- sóknirnar. Viku fyrir skírn eða svo, heimsækir prestur heimili barnsins að kvöldi til. Með þessari tímasetn- ingu viljum við tvennt, hitta sem flesta úr fjölskyldunni og vinna gegn þeirri mynd að prestur sé 9-5 starfs- maður. Þessar heimsóknir eða hús- vitjanir verða oft mjög mikilvægur þáttur í uppbyggingu safnaðarins. Tvímenningsprestaköll eru ekki óalgeng í Danmörku, hvernig er starf prestanna þar skipulagt? Þeir skipta vöktum. Sá sem messar á sunnudegi, á bakvakt alla þá viku vegna aukaverka. En auðvitað skapast þarna vandi, menn sækja stundum meira til annars prestsins, þótt vaktir séu skipulagð- ar. Annir eru visst stöðutákn fyrir prest. Allir prestar vilja vera mikið notaðir. Þess vegna hafa menn stundum skipt prestaköllum land- fræðilega. Hvernig er embættaveitingum háttað? Prestakall er auglýst og umsóknir berast. Sóknarnefnd velur 3-5 um- sækjendur og býður þeim að koma til viðtals og flytja messu. Þeir eiga fund með biskupi og kjörmönnum, sem síðar greiða atkvæði. Ef um- sækjandi fær 2A atkvæða er ráðherra bundinn að veita honum embætti. Eru Danir áhugasamir um kirkjumál? Ekki sem skyldi, enda stendur kirkjan sig ekki nógu vel. Það er hluti af vandamálinu. Lífsstíll okkar gerir menninguna yfirborðskennda, enda sjaldan spurt hinna afgerandi spurninga um líf og dauða. Hlutverk presta er ekki síst að hjálpa fólki að gera sér grein fyrir, og orða, þau vandamál sem steðja að okkur sam- eiginlega. En þá verða þeir að vera kunnugir lífi samtímans, hvað er efst á baugi í umræðunni í listinni, ásamt því auðvitað að vera vel að sér í biblíunni. Til þess að skilja kristindóminn, sagði Grundtvig, verða menn að 14

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.