Víðförli - 15.12.1990, Page 16
Hjörtur Magni Jóhannsson
Gáskinn og sorgin
Prestur
í hversdagsönn
Sagt er að prestur upplifi í starfi
sínu jafnt gleði sem sorg. Skal hér
greint frá tvennu í hversdagsönn
prests sem annarsvegar vekur gleði
og gáska, en hinsvegar alvöru og
sorg.
Vordagar
I maí síðastliðnum, vikunni fyrir
hvítasunnu nánar tiltekið, var ákveð-
ið að halda „vordaga“ meðal barna í
Útskálaprestakalli á Suðurnesjum.
Framkvæmd vordaganna tókst sér-
lega vel í alla staði og voru börn, for-
eldrar þeirra, kennarar og allir
aðstandendur mjög ánægðir með út-
komuna. Því er ástæða til að gera hér
örlitla grein fyrir framkvæmd vor-
daganna ef einhverjir lesendur Víð-
förla vildu nýta sér hugmyndina í
sínum sóknum.
Vordagarnir voru starfs- og
fræðsludagar, þar sem yfirskriftin
var „Tengsl skapara og sköpunar",
og fjallað var um nánasta umhverfi,
dýralíf, ábyrgð okkar í sköpuninni
og náttúruvernd almennt í því
samhengi.
Það er alkunna að þegar skólum
lýkur á vorin þá verður oft hlé hjá
börnum og unglingum, áður en þau
fara í vinnu, sveit eða í ferðalög með
fjölskyldum sínum. Hugmyndin var
að nýta þann tíma, í eina viku, að
loknum skóla. Að þá yrði staðið fyr-
ir kirkjulegu starfi, hvern dag þar
sem fram færi trúarleg uppfræðsla
jafnhliða leik og starfi barnanna.
Við unnum með börnum á aldrin-
um 6-9 ára. Helsti vandi okkar sem
að þessu stóðu, var sá fjöldi barna
sem þyrsti í að taka þátt. Hópurinn
óx dag frá degi og að lokum var
fjöldinn orðinn allt of mikill, en þó
tókst að lokum á farsælan hátt að
vinna úr þeim vanda.
Niðurstaðan varð sú að hópnum
var skipt í tvennt, þ.e.a.s. eldri hóp og
yngri hóp, og annarsvegar var
fræðsla innanhúss i skóla í u.þ.b.
tvær stundir, og hinsvegar var sam-
tímis, útivist með vettvangskönnun,
leikjum og íþróttum. Síðan var skipt
um vistarverur.
I Sandgerði var komið saman fyrir
hádegi en þar mættu um 80 börn
þegar flest var en í Garði var starfað
eftir hádegi og fjöldinn þar var um
70-80 börn.
Á miövikudeginum var farið
í kirkju og fjöruferð
Börn í Hvalsnessókn áttu sína
morgun-helgistund i Hvalsnes-
kirkju. Síðan var farið út í kirkju-
garð þar sem spurt var um
eilífðarmálin af barnslegri hrein-
skilni. Þá var sóknarnefndarmaður-
inn Sigurbjörn Stefánsson á Nesjum
heimsóttur. Girti hann af reit á túni
sínu þar sem hann hafði nokkra
kálfa börnunum til sýnis. Var sú
heimsókn vel lukkuð og erum við
Sigurbirni þakklát fyrir. Að loknu
kaffi var farið í fjöru þar sem hópur-
inn tvístraðist, sumir leituðu skelja
og kuðunga í listaverk sín sem sýnd
voru í guðsþjónustunni á hvíta-
sunnudag, aðrir söfnuðu sandi og
enn aðrir fóru í sjóinn og komu
blautir heim.
Börn í Útskálasókn komu saman
að Útskálum að Ioknum skólaslitum
Gerðaskóla en þau fóru fram í kirkj-
unni. Að lokinni helgistund í kirkju
var gengið þaðan torfæra leið með
ströndinni út á Garðskagatá þar sem
hún Sylvía sóknarnefndarkona beið
okkar með svalandi drykki.
Á föstudegi voru stofnanir
heimsóttar
I Sandgerði var fiskverkunarhús
Jóns Erlingssonar heimsótt. Þangað
komum við í kaffitímanum þegar
starfsfólk var úti við í sólinni. Börn-
in sungu trúar- og sköpunarsöngva
fyrir starfsfólkið við góðar undir-
tektir og ekki spillti það fyrir að í
lokin bauð verkstjórinn af miklum
myndarskap öllum upp á svaladrykk
16