Víðförli - 15.12.1990, Síða 17

Víðförli - 15.12.1990, Síða 17
Sr. Hjörtur Magni rabbar við hópinn sinn. og súkkulaði. Og var það vel þegið og þakkað af unga fólkinu. Aldraða fólkið á Garðvangi í Garði var heimsótt í Útskálasókn. Börnin sungu sumar- og sköpunar- söngva, lásu úr ritningunni og fluttu bænir. Líkaði vistfólki vel við gesti sína og þeirra framlag. Einnig þar var öllum boðin hressing i lokin og var hún vel þegin. Hápunktur vordaganna voru hvítasunnuguös- þjónusturnar Var þar um einskonar „Smiðju- guðsþjónustur“ að ræða, þar sem börnin báru fram afrakstur vinnu sinnar, í söng, á myndrænan hátt, með ritningarlestri og bænargjörð. Má vissulega segja að báðar kirkjur Hvalsnes og Útskála hafi verið þétt setnar og vel hafi tekist til í alla staði. Óhætt er að segja að niðurstaða allra þeirra sem að framkvæmd þess- ari stóðu, sé sú að vel hafi til tekist. Börnin sýndu mikinn áhuga, þau virtust meðtaka fræðsluna opnum huga og nutu trúarsamfélagsins, þau voru skapandi í starfi sínu og auðug að hugmyndum. Vordagarnir efldu tengsl kirkjunnar við ýmsar helstu stofnanir samfélagsins svo sem skóla, frystihús og dvalarheimili aldraðra. Þetta var því eins og nú er gjarnan sagt, mjög gott mál, sem verður endurtekið næsta vor. í starfi sínu kemur presturinn einnig inn á þau svið þar sem alvara lífsins blasir við, þ.e.a.s. þegar fólk verður fyrir áföllum og tekist er á við sorgina. Bölið og sorgin er nokkuð sem allir upplifa fyrr eða síðar á lífs- leiðinni, sorgin gleymir engum. Sorgarstundir Bjarmi, samtök um sorg og sorg- arviðbrögð hafa starfað um nokkurt skeið á Suðurnesjum. Þörfin fyrir samtök sem hafa það að markmiði að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð syrgjenda er mikil. Al- menn þátttaka í því sem boðið er uppá á vegum Bjarma, hefur marg- sinnis staðfest mikilvægi og tilveru- rétt samtakanna. Nú þegar þessar Iínur eru ritaðar er nýlokið opnum fundi sem við héldum hér í Útskálakirkju á vegum Bjarma. Var þar fjallað um hið vandmeðfarna efni „Sjálfsvíg og sorg“. Sr. Ólafur Oddur Jónsson flutti erindi og Ólöf Helga Þór fé- lagsráðgjafi og formaður sorgar- samtaka í Reykjavík tók einnig til máls. Síðan voru athyglisverðar um- ræður yfir kaffibolla hér í Útskála- húsinu en fundurinn var vel sóttur. í lokin var bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni. Á leið til kirkju og fræða. Slíkir fundir eru haldnir mánaðar- lega þar sem fjallað er um ýmislegt það sem tengist sorginni og sorgar- ferlum. Hér má einnig nefna „Nærhópa“ sem hafa verið og eru starfræktir á vegum Bjarma og eru þeir nokkuð séreinkennandi í starfsemi samtak- anna. Er unnið saman i nokkrar vik- ur í trúnaðarhópi þar sem fjallað er um sorgina, sorgarferilinn og það hvernig best er að takast á við sorg- ina. Hefur slík hópvinna gefist mjög vel og margir komið út sterkari eftir slikar samverur og jafnvel tilbúnir til að styrkja aðra í sinni sorg og miðla þannig af reynslu sinni. Og nú er aðventan og ljósahátíðin framundan. Á þeim tíma er mikil- vægt að sinna syrgjendum. Þá leita minningar á hugann og tómleiki og söknuður gera vart við sig, andstætt þeirri gleði sem aðrir upplifa. Því boðar Bjarmi til fundar á aðvent- unni þann 5. des i Útskálakirkju. Þar mun Þröstur Steinþórsson prest- ur í söfnuði Aðventista og einn helsti hvatamaður að stofnun Bjarma á Suðurnesjum, fjallaumefnið „jólin, trúin og sorgin“. Gott er að koma saman á aðventunni og eiga saman friðsæla kvöldstund og hugleiða boðskap jólanna og það erindi sem hann á við syrgjendur. Hef ég hér nefnt tvennt úr hvers- dagsönn prests sem er hvort tveggja í senn krefjandi og gefandi. Annars- vegar er gleði og gáski og hinsvegar alvara og sorg. Þegar ég hugleiði þetta tvennt svona samhliða, hvarfl- ar það að mér að, stundum a.m.k. finnst mér það forréttindi að fá að vera prestur. Kær kveðja, Hjörtur Magni Jóhannsson, sóknarprestur í Útskálaprestalli 17

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.