Víðförli - 15.12.1990, Síða 18
Ragnheiður Sverrisdóttir
frá Æskulýðssambandi kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmi... ÆSKR
Unglingar,
nema hvad?
i
„Mér finnst vera litið á unglinga í
dag eins og síðustu sort, sko það eru
unglingarnir sem enginn vill hafa
eins og börnin þarna í dæmisögunni
þar sem Jesús bannaði lærisveinum
að reka börnin burt,“ sagði Ester i
HLH sem er Æskulýðsfélag Há-
teigskirkju í Reykjavík á Landsmóti
Æskulýðsfélaga í september síðast-
liðnum.
Ég reyndi að fá Ester og hina í
hópnum hennar um Lúkasarguð-
spjall til að ræða um þessa fullyrð-
ingu hennar nánar og úr þeim
umræðum kom sú niðurstaða að
unglingar væru oft litnir hornauga,
fengju hvergi að vera og væru bara
fyrir. Fordómar væru miklir og
„stundum er eins og fólk forðist
mann eins og maður sé eitthvað
hættulegur!“
Umhverfi unglinga í dag er ekki
alltaf eins og þeir kjósa sér. Og
stundum er spurt ..EN HVAÐ GER-
IR KIRKJAN?... Ja, kirkjan er með
guðsþjónustur á sunnudögum (— þá
sofa nú allir unglingar —) svo er nú
boðið í kirkjukaffi stundum (—
unglingar drekka ekki kaffi —). Nei,
ég er ekki að gera grín en stundum
verður okkur svara fátt þegar spurt
er hvað kirkjan geri fyrir ungling-
ana. Þó segi ég stundum í gamni að
unglingar séu sér þjóðflokkur. Þá á
ég við að þeir hafi sér þarfir eða
öðruvísi þarfir en börn og fullorðnir.
En þetta er alveg yndislegt fólk! Það
er bara dálítið sjálfstætt og vill alls
ekki alltaf gera hlutina eins og aðrir
vilja. Ég tel að gildi æskulýðsstarfs
felist meðal annars í því að ungling-
arnir fái að gera hlutina sjálfir og
hafi eitthvað um þá að segja og beri
hæfilega ábyrgð. Þeir ráða nú
ekki alveg öllu en ef starfið á að
ganga vel verða Ieiðtogar að hlusta á
unglingana og taka mark á þeim.
II
Það eru starfandi 11 æskulýðsfé-
Iög í Reykjavíkurprófastsdæmi sem
hafa fundi einu sinni í viku. Félögin
eru mjög ung eða aðeins eins til
tveggja ára og tvö voru stofnuð nú á
haustdögum 1990. Önnur eiga sér
lengri hefð eins og æskulýðsfélagið í
Laugarneskirkju. Á fundum er oft
sungið við gítarundirleik úr söng-
bókinni í Líf og Leik eða söngvum
brugðið upp á glæru.
Fundarefni er mjög fjölbreytt.
Stundum er það fræðandi og þá
gjarnan um málefni sem unglingun-
um er hugleikið eins og að vera ást-
fangin(n), að vera unglingur, hvað
segir Biblían okkur?
Leikir, grín og glens eru heldur
aldrei langt undan þegar æskulýðs-
félög eru annars vegar. Enginn fund-
ur er haldinn án þess að á honum sé
helgistund og þá stund virða allir —
eða læra alla vega að virða hana því
þar eiga engin fíflalæti heima. Við
sem vinnum með unglingunum erum
oft hissa á því hvað vel gengur að fá
ró til að tala um Guðsorð. Unglingar
eru ekki alltaf með læti en það þarf
að aðstoða þá við að búa til umhverfi
til að ná næði. Á helgistundum eru
18