Víðförli - 15.12.1990, Qupperneq 23
Hugleiðing um samþykkt Kirkjuþings:
Um vinasöfnuði
þjóðkirkjunnar
Samþykkt síðasta Kirkjuþings um
hugsanlega vinasöfnuði felur í sér
tilmæli „til safnaða þjóðkirkjunnar,
að þeir, hver og einn eða í samvinnu
við aðra, beiti sér fyrir því að eignast
vinasöfnuði í þeim heimshlutum þar
sem fátækt er mikil“ eins og segir
orðrétt í tillögunni.
Tilgangurinn með vinasöfnuði er
að kynnast kjörum annarra og að-
stæðum, sem eru gjörólíkar okkar
og fá e.t.v. tækifæri til að rétta fram
hjálparhönd með einhverjum hætti.
Við skulum strax gera okkur grein
fyrir því að þetta starf þarf ekki og á
ekki að hefjast með neinum látum.
Heillavænlegra er að byrja smátt
og láta reynsluna tala. Við skulum
heldur ekki láta tungumálaerfið-
leika vaxa okkur í augum, fátækt
fólk spyr ekki um málakunnáttu.
Það þarfnast skilnings, vináttu,
aðstoðar.
Hvernig er best að hefja þetta
starf?
Samkvæmt tillögunni mun
Kirkjuráð siðar kynna öllum söfn-
uðum málið.
Sé áhugi fyrir hendi sýnist mér að
gangur málsins gæti orðið sá, að
sóknarnefnd eða safnaðarfundur
Islendingar eru í eðli sínu hjálp-
söm þjóð og úrræðagóðir, þegar
mikið á reynir. Eigi að síður höfum
við ekki Iagt fram okkar skerf til
þróunaraðstoðarinnar á vegum
Sameinuðu Þjóðanna. Gæti ekki að-
stoð við vinasöfnuði jafnað ofurlítið
þann halla í næstu framtíð? Ég trúi
því, að fjölmargir einstaklingar í
söfnuðum landsins hafi áhuga á
þessu máli og vilji leggja hönd á
plóginn. Við þurfum að undirbúa
málið vel og finna því réttan farveg,
svo að hægt sé að hefjast handa.
Þegar fram liða stundir getur
svona starfsemi þróast í fleiri áttir en
til beinnar þátttöku í hjálparstarfi.
Hjálparstarf getur falist í fleiru en
matar-, lyfja- og fatasendingum,
þótt það sé mikilvægt þurfandi
fólki.
Hlýhugur, vinátta, fyrirbænir og
gagnkvæm kynni og heimsóknir eru
Iíka mikils virði. íslendingar ferðast
mikið. Vel sé ég fyrir mér, að ein-
hverjir úr heimasöfnuðum gætu not-
að sumarleyfið til að heimsækja
vinasöfnuð. Rætt yrði við fólkið,
kjörum þess kynnst og myndir tekn-
ar. „Sjón er sögu ríkari.“ Síðan
kæmu fulltrúar vinasafnaðarins í
heimsókn til okkar til að kynnast líf-
inu hér af eigin raun. Kannski eina
tækifærið í lífinu fyrir þetta fólk til
að hleypa heimdraganum.
Eigum við ekki að athuga þetta
mál í fullri alvöru?
Með bestu kveðju.
Guðmundur Magnússon
tilnefni 3 eða 5 menn í undirbúnings-
nefnd, sem hefði það hlutverk að
kynna sér málið vandlega og gera til-
lögur um framkvæmd og framtíðar-
markmið.
í þessu sambandi skal á það bent
að Biskupsembættið mun veita
„þeim söfnuðum er þess óska, upp-
Iýsingar og aðstoð til að hefja þetta
starf“.
Það færi vel á því einmitt nú að
hugleiða þetta mál vel og vandlega,
þegar þjóðkirkjan hefur ákveðið, að
eitt meginverkefni hennar næsta ára-
tuginn skuli vera safnaðaruppbygg-
ing. I því felst mikið og margþætt
starf.
Guðmundur Magnússon, Reyðar-
firði erfrœðslustjóri Austurlands og
var kjörinn í kirkjuráð í haust.
23
Guðmundur Magnússon