Víðförli - 15.12.1990, Page 25

Víðförli - 15.12.1990, Page 25
Fréttabréf frá Löngumýrarskóla Þegar á að segja fréttir héðan frá Löngumýri fer mér eins og skáldinu að ég segi: „Hvar skal byrja, hvar skal standa?“ Hann þurfti að sjá yfir gjörvallan Skagafjörð og honum var bent á Tindastól sem hentugan út- sýnisstað. En ég ætti að geta staðið hér heima og gengið um. Er ég lít til baka til sl. árs renna atburðirnir hjá sem árstraumur. Ef vel er að gáð má greina breytingar á straumfallinu, eitthvað sem sker sig úr. En kannski er rétt að geyma það, en greina frá hinum jafna stöðuga straumi sem mest fer fyrir. Eins og flestum er kunnugt er Löngumýrarskóli eign Þjóðkirkju íslands frá 1962. Hér var þá rekinn hússtjórnarskóli og var svo til ársins 1977. Og ennþá fer t'ram heimilisfræðikennsla fyrir nemend- ur grunnskólans í Varmahlíð allt skólaárið. 500 fermingarbörn Síðastliðin ár hafa verið haldin fermingarnámskeið sem eru opin öllum börnum á Norðurlandi. I fyrra komu 12 hópar eða öll börn úr Húnavatns-, Skagafjarðar- og Eyja- fjarðarsýslu auk nokkurra úr Þing- eyjarsýslu og þau lengst að komnu alla leið frá Bakkafirði en þangað eru líklega um 500 km. Samtals tæp- lega 500 börn. Með þeim í för voru prestar þeirra og á staðnum var sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ sem var öllum hópum til aðstoðar í fræðslu og leik. Ég tel þessi nám- skeið geta verið mjög gagnleg og stuðla að nánara sambandi barn- anna við fræðara sinn og kirkjuna. í 14. sinn orlofsdvöl í þriðja lagi má nefna sumarstarf- ið sem er kannski þungamiðja starf- seminnar á Löngumýri, en þar á ég við orlofsdvalir fyrir aldraða sem eru allt sumarið. Þær hófust 1973 og eru að því er virðist sívinsælar. Meirihluti fólksins kemur úr þétt- býlisstöðum á suðvesturhorninu en einnig er nokkuð hér af norðurland- inu. Margir koma aftur og aftur og ég spurði eina konu Þorbjörgu Jóns- dóttur úr Reykjavík: „Hvað ert þú búin að koma oft Tobba mín?“ og hún svaraði að bragði: „Þetta er nú 14. skiptið“. En sennilega á hún líka metið. Hér dvelja menn við hvíld, samveru, ferðalög, skemmtan og helgihald. Á hverju sumri hafa dval- ið u.þ.b. 200-230 manns. Þá hafa einnig hópar eldri borgara frá Dan- mörku sótt okkur heim sl. 4 ár. Fyrst dvelja þeir í Skálholtsskóla en koma síðan að Löngumýri. Myndast hefur ágæt samvinna milli skólanna um þetta. Fundir og heitur pottur Þá er að geta þess sem sérlega sker sig úr. Við urðunt þeirrar ánægju að- njótandi að hýsa Leikmannastefnu Þjóðkirkjunnar sl. vor. Að mörgu leyti var það ekki svo einfalt. Endur- bætur hafa farið fram á húsnæði skólans sl. 3 ár. Og síðari hluta vetrar stóðu yfir viðgerðir og var eldhúsið í þessum áfanga. Varð því að notast við eina eldavél og vask, staðsett í geymslu. En allt tókst vel, því ráð- stefnugestir lögðu góðviljann til. M.a. þurfti að nota borðstofu sem fundarsal. Sl. haust er haldin var fjölmenn norræn ráðstefna „Nor- disk religionspedagogisk konfer- anse“ voru sömu annmarkar varðandi fundarsalinn. En allt leyst- ist það mjög vel. Þessi norræna ráð- stefna var sérlega skemmtileg. Þar sem gistiplássið hér er aðeins fyrir um 40 manns þurftum við að leigja húsnæði fyrir flesta Islendingana á bændagistingunni í Lauftúni, sem er næsti bær við Löngumýri. Þátttak- endur voru mjög ánægðir svo sem hefur komið fram í kveðjum frá þeim. Fegurð umhverfisins og heiti potturinn hefur mikið að segja. Fjöl- mennt kristniboðsmót er haldið á Löngumýri í júlí ár hvert. Koma þá oft um 100 manns. Unga fólkið gistir í tjöldum í garðinum. Þessi mót hafa verið sl. 10 ár. Og hestamenn líka SI. sumar var haldið á Vindheima- melum í Skagafirði Landsmót hesta- manna. Þurfti þá allt tiltækt gistipláss, og Langamýri var pöntuð með 2. ára fyrirvara. Hér gistu ýmsir starfsmenn meðan á mótinu stóð og féll sá heiður okkur í skaut að taka á móti forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur og standa fyrir veislu þeirri sem hestamenn héldu henni, allt gekk það vel þótt ekki værum við sem ábyrgðina bárurn með öllu laus við kvíða. Konur aö störfum og kórar við söng Skólinn á frá gamalli tíð tæki til bókbands og vefnaðar og eru því námskeið í þessum greinum að vetr- 25

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.