Víðförli - 15.12.1990, Side 26
inum. Þau eru aðallega sótt af
heimamönnum en þó má geta þess
að tryggustu þátttakendurnir á bók-
bandsnámskeiði koma alla leið úr
Húnavatnssýslu. Auk Lionsklúbbs-
ins hafa kvenfélögin í Skagafirði átt
innhlaup á Löngumýri með nám-
skeið og fundi. Og vinnuvaka kven-
félaganna er fastur liður. Þá koma
konur á föstudagskvöldi og dvelja til
sunnudags við gerð ýmissa muna
sem svo eru seldir á basar á sunnu-
daginn. Þá er einnig kaffisala.
Ágóðinn rennur yfirleitt til líknar-
mála. Þetta hefur viðhaldist hér allar
götur frá því er vinnuvaka var á dag-
skrá þegar safnað var til húss
Krabbameinsfélags íslands við
Skógarhlíð í Reykjavík. Já, það er
oftast glatt á hjalla á Löngumýri.
Söngmálastjóri kom að vanda og
æfði kirkjukóra og organista í
Skagafirði. Og Haukur er svo vin-
sæll að kórar koma alla leið úr Vest-
ur-Húnavatnssýslu til að hitta hann.
Auk þess sem nefnt hefur verið er
fjöldi hópa sem hefur komið til gist-
ingar og annarrar aðhlynningar,
bæði kórar og kirkjukvenfélög að
sunnan, ásamt fleiri félagasamtök-
um. Mér sem þessar línur rita finnst
þetta fjölbreytt og harla skemmti-
legt. Við horfum björtum augum til
framtíðar. Guð sem vakir yfir oss
hefur veitt ríkulega blessun.
Bestu kveðjur.
Margrét Jónsdóttir
Margrét Jónsdóttir er forstöðu-
maður á Löngumýri.
Barnahornið — Segðu jólasöguna og litaðu myndina
Hér er teikning úr jólasögunni.
Það er gaman að segja frá því sem
gerðist, kannski skrifa söguna á sér-
stakt blað. Til þess að myndin verði
fallegri, ætti að Iita hana.
Ef krakkarnir eru ekki alveg vissir
á jólasögunni, geta þau beðið pabba
eða mömmu, kannski afa eða ömmu
að hjálpa sér. Og til þess að vita ná-
kvæmlega hvernig jólasagan er, er
hægt að fletta upp í Biblíunni og lesa
hana þar. Þá finnur maður Lúkasar-
guðspjall í Nýjatestamentinu, flettir
upp á öðrum kafla og þar byrjar
jólasagan í fyrsta versinu sem svo er
kallað, fyrstu setningunni en hún er
merkt með tölustafnum 1 og kallast
þessvegna fyrsta vers og svo kemur
annað vers. Þar er talan 2 o.s.frv.
Það væri gaman ef þið senduð
Víðförla jólasögurnar ykkar. Besta
sagan fær verðlaun. Skrifið utan á
bréfið:
Víðförli, Biskupsstofu, Suður-
götu 22, 150 Reykjavík. Merkt:
Barnahornið.
26