Víðförli - 15.12.1990, Side 30
Fréttir
Nýtt Kirkjuráð
Kirkjuþing 1990 kaus nýtt Kirkju-
ráð sem starfar til jafnlengdar
Kirkjuþingi eða næstu fjögur árin.
í Kirkjuráði voru kjörnir: Guð-
mundur Magnússon, fræðslustjóri
Reyðarfirði, Gunnlaugur Finnsson á
Hvilft í Önundarfirði, sr. Hreinn
Hjartarson, Reykjavik, sr. Jón Ein-
arsson, prófastur Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd.
Varamenn presta: 1. sr. Þórhallur
Höskuldsson, Akureyri, 2. sr. Sigur-
jón Einarsson, Kirkjubæjarklaustri.
Varamenn leikmanna: 1. Margrét
Jónsdóttir, Löngumýri í Skagafirði,
2. Hólmfríður Pétursdóttir, Reykja-
vík.
Stóraukinn áhugi
skólans
Fyrir sjö árum efndi Námsgagna-
stofnun til námskeiðs rétt fyrir að-
ventu undir yfirskriftinni
Annarskonar jól. Þar fjölluðu nám-
stjórinn í tónmennt og námsstjórinn
í kristnum fræðum um verkefnið,
hvernig nemendur gætu undirbúið
sig undir jólin þannig að þau yrðu
annarskonar en þau sem einkennast
af áti, gjafaflóði og eyðslu. Kenndir
voru margs konar jólasöngvar, sögur
leikir og föndur sem skyldi undirbúa
fólk til að eiga falleg jól. Þátttakend-
ur voru fjórir.
Nú í nóvemberlok var haldið svip-
að námskeið á sama stað með sams-
konar markmiði. Þátttakendur voru
nær 130.
Nýr Skírnir fjallar um
dauðann, kristna trú
og fræðin góð
Ástæða er til að vekja athygli á
nýjum Skírni, 164. árg. Þar er m.a.
fjallað um dauðann eins og hann
birtist í bókmenntum, sögunni og
samtíma. Meðal höfunda eru Vil-
hjálmur Árnason siðfræðingur, Sig-
urður Árnason krabbameinslæknir,
Margrét Eggertsdóttir og Matthías
Viðar Sæmundsson bókmennta-
fræðingar.
Þorsteinn Gylfason fjallar um
kristna trú, Sigmundur Guðbjarnar-
son og Hjörleifur Guttormsson um
ísland og EB, Páll Skúlason og Þórir
Kr. Þórðarson ræða um mannvísindi
og rithöfunda. Fjöldi annarra höf-
unda vekur lesendur þessa Skírnis-
heftis til umhugsunar.
Hagþenkir verðlaunar
CREDO
Undanfarin ár hefur Hagþenkir,
félag höfunda fræðirita og kennslu-
gagna veitt viðurkenningu fyrir vel
unnin fræðistörf.
Viðurkenningarráð Hagþenkis
hefur nýverið mælt með þvi að í ár
hljóti dr. Einar Sigurbjörnsson þessa
viðurkenningu fyrir fræðiritið
Credo, Kristin trúfræði (útgefandi er
Háskólaútgáfan — Guðfræðistofn-
un, 1989). Viðurkenningin er kr.
150.000,
Viðurkenningarráð Hagþenkis
skipa þau Guðmundur Arnlaugs-
son, Mjöll Snæsdóttir, Páll Skúla-
son, Sigrún Klara Hannesdóttir og
Sigurður Blöndal.
Ferð á þýsku
kirkjudagana
næsta vor
Þýsku kirkjudagarnir verða
haldnir í 24. sinn dagana 5.— 9. júní
1991. Aðsetur þeirra verður í Ruhr
héraðinu, aðallega í borgunum Es-
sen, Bochum og Dortmund. Dag-
skráin er að vanda afar fjölbreytt
enda skipta þátttakendur tugum
þúsunda. Þjóðverjar vilja gjarnan fá
gesti frá kirkjum annarra landa,
3000 erlendir gestir voru á síðustu
kirkjudögum sem haldnir voru í
Berlín 1989, en heildar þátttaka var
þá 150.000 manns. Þjóðverjar bjóða
upp á ýmiskonar fyrirgreiðslu, t.d.
útvegun húsnæðis fyrir gesti á kirkju-
dögum. Fræðsludeild Biskupsstofu
veitir nánari upplýsingar.
Samstarf Kirkjuráðs
og þingflokka
Samstarfsnefnd Alþingis og þjóð-
kirkjunnar sem skipuð er fulltrúum
þingflokkanna og kirkjuráðsmönn-
um kemur saman reglubundið undir
forsæti biskups og forseta samein-
aðs þings til skiptis.
Að loknu Kirkjuþingi var haldinn
fundur í nefndinni og þau mál
Kirkjuþings kynnt sem helst koma
til aðgerða Alþingis.
Kirkjuráð kynnti skipulag og
framkvæmdaáætlun i Skálholti og
urðu þar mjög góðar umræður, ekki
síst um markmið og starfsemi Skál-
holtsskóla.
Þá var gerð grein fyrir samþykkt
Kirkjuþings um skilgreiningu
dauðastundar og líffæraflutninga
og um réttarstöðu fólks í vígðri
sambúð.
Kom fram hjá þingmönnum að
það væri áhyggjuefni ef lagasetning
virkaði hvetjandi til skilnaðar þeg-
ar fólk á í fjárhagserfiðleikum.
Þingmenn fögnuðu vilja kirkj-
unnar að skapa athvarf fyrir börn í
safnaðarheimilum og mæta þannig
vanda heimilanna.
Leiðrétting
í leiðara biskupsins í síðasta tölu-
blaði Víðförla, féllu niður orðin —
þeir sem vilja sjá hag — í loka setn-
ingunni.
Greininni lýkur því þannig:
Skilji þetta einhverjir sem flokks-
pólitíska afskiptasemi, segir það að-
eins nokkuð um þá sjálfa en ekki
málstaðinn. Þeir sem vilja sjá hag
safnaðanna eflast, una ekki slíkum
aðförum.
Þetta leiðréttist hér með ásamt af-
sökunarbeiðni.
Framhald á næstu siðu
30