Víðförli - 15.12.1990, Blaðsíða 31
Helgihald Austur
kirkjunnar
Vaxandi áhugi fólks á trúmálum
og andlegri iðkan hefur ekki síst
beinst í austurátt sem allir vita. Aust-
urkirkjan sem svo er nefnd eða
Ortodoxa kirkjan býr yfir miklum
fjársjóðum og langri hefð hvað varð-
ar bænalíf og helgihald.
Nú í vor, dagana 28. mars — 7.
apríl verður námskeið á fræðasetri
Alkirkjuráðsins í Bossey í Sviss
undir yfirskriftinni: Guðfræði Aust-
urkirkjunnar og Guðsdýrkun.
Þátttaka í námskeiðinu kostar um
25 þúsund krónur, en möguleiki er á
einhverjum styrkjum frá Alkirkju-
ráðinu. Fræðsludeild veitir nánari
upplýsingar.
7. heimsþing Alkirkju-
ráðsins í Ástralíu
Alkirkjuráðið heldur heimsþing
sín á 7—8 ára fresti. Síðast var það
haldið í Vancouver í Kanada 1983.
Nú er nýtt heimsþing í uppsigl-
ingu, það verður haldið í Canberra i
Ástralíu dagana 7. — 20. febrúar
1991. Yfirskrift þingsins er: Kom
heilagur andi og endurnýja sköpun
þína alla.
Þetta er í fyrsta sinn sem yfir-
skriftin er sótt til þriðju greinar trú-
arjátningarinnar, um hinn heilaga
anda. Yfirskriftin vísar jafnframt til
umhverfismála, sem verða mjög til
umræðu á þinginu. Voru reyndar
haldin þing víða um heim til undir-
búnings heimsþinginu, þar sem
áhersla var lögð á ábyrgð hins
kristna manns gagnvart sköpun
Guðs.
íslendingar mega senda tvo at-
kvæðabæra fulltrúa á þingið, en inn-
an Alkirkjuráðsins eru ákveðnar
reglur um skiptingu fulltrúa þannig
að ungt fólk, konur og leikmenn fái
sína fulltrúa ekki síður en prestar.
Fulltrúar íslensku kirkjunnar verða
Ólafur biskup og Adda Steina
Björnsdóttir fréttamaður og guð-
fræðingur.
Prestar þurfa að læra
stjórnun
Finnskur guðfræðingur, Harri
Palmu hefur lagt fram doktorsrit-
gerð sem fjallar um sess og starf
prestsins. Þar segir að menntun
prestsins beinist fyrst og fremst að
predikunarstarfi hans, þrátt fyrir að
þriðjungi og jafnvel helmingi
tíma hans sé varið til stjórnunar-
starfa. Margir prestar vilja umframt
allt sinna hinum eiginlegu prests-
störfum og víkja sér undan stjórn-
unarkröfunni, enda hafa þeir fæstir
fengið þjálfun og menntun í stjórn-
un, þótt það skipti megin máli í starfi
safnaðar hvernig samstarfið gengur
milli starfsmanna og sóknarnefndar.
Enda á um þriðjungur safnaðanna
við vandamál að stríða af þeim or-
sökum segir Harri Palmu.
Nýr erkibiskup
af Kantaraborg
Hinn nýi yfirmaður biskupakirkj-
unnar, Georg Carey, kemur á óvart.
Hann var vígður biskup fyrir aðeins
tveimur árum og fæstir álitu að hann
kæmi til greina sem erkibiskup. En
svo reyndist, að Margrét Thatcher
valdi hann en ekki erkibiskupinn af
Jórvík þegar kom til lokaákvörðun-
ar. Hann vill ekki vera kallaður „ka-
rismatiker" en hefur hins vegar
greint frá því á blaðamannafundum
að hann eigi endurnýjunarstarfi
hinnar karismatisku hreyfingar mik-
ið að þakka.
Biskupakirkjan á Englandi á í al-
varlegri kreppu, og gengur illa að
halda utanum svo margbreytileg
sjónarmið sem þar er að finna. Einn
biskupanna, biskupinn af Durham,
hefur dregið í efa upprisu Jesú og
meyjarfæðinguna og þess hefur ver-
ið krafist af ákveðnum hópum innan
kirkjunnar að hann láti af embætti.
Þeir hópar hafa líka litið með mikilli
varúð á starf nýja erkibiskupsins að
koma á samtali milli biskupakirkj-
unnar og kaþólsku kirkjunnar á
breiðum grundvelli og telja að slíkt
kunni að leiða til málamiðlana í
kenningunni.
Tímabær ráðstefna
í vor
Ástand og umhirða kirkjugarða
hefur löngum verið til umræðu
manna á meðal en nú hefur Skipu-
lagsnefnd kirkjugarðanna ákveðið
að efna til ráðstefnu i vor með um-
sjónarmönnum kirkjugarða til þess
að koma sem bestri skikk á þessi mál
og kynna nýjar hugmyndir og að-
ferðir.
Ráðstefnan verður haldin dagana
2. — 4. inaí 1991 í Garðyrkjuskólan-
um í Hveragerði, en þar er hin ágæt-
asta aðstaða. Verður öllum kostnaði
í hóf stillt. Landslagsarkitektar og
skrúðgarðameistarar munu annast
fræðsluna en auk þess verður farið í
skoðunarferðir.
Skólastjóri Garðyrkjuskólans
mun annast hina faglegu hlið með
undirbúningsnefnd en stjórn og
skipulag er allt í höndum Aðalsteins
Steindórssonar framkvæmdastjóra
Skipulagsnefndar kirkjugarða. Tek-
ur hann við skráningu á ráðstefnuna
og veitir frekari upplýsingar, sími
hans er 91-621500 á Biskupsstofu og
98-34216 heima.
Kvennanámskeiöin
blómstra
Fræðsludeild Biskupsstofu hefur
boðið upp á námskeið sérstaklega
ætluð konum í forystustörfum í
söfnuðum, bæði sóknarnefndum,
kvenfélögum, kórum og í almennu
safnaðarstarfi. Halla Jónsdóttir hef-
ur stýrt námskeiðunum sem haldin
hafa verið viða um land. Nýlokið er
tveimur námskeiðum, var annað í
Grindavík en hitt í Innri Njarðvík. í
Njarðvíkum tók námskeiðið 4 kvöld
en í Grindavík langa helgi og eitt
kvöld að auki.
Fræðsludeild veitir nánari upplýs-
ingar og einnig stjórnandinn Halla
Jónsdóttir sími 91-23585.
Vinasöfnuður í
Danmörku
Hér í blaðinu er eftirtektarverð
grein um samþykkt Kirkjuþings um
vinasöfnuði. Þar er fyrst og fremst
miðað við tengsl íslenskra safnaða
og þeirra í fátækum löndum svo sem
í Afríku eða í Austur Evrópu. En
það mætti líka líta til granna okkar
á Norðurlöndum sem einn valkost-
inn. Blómlegur söfnuður á Jótlandi
Grindstedssóknin, sem er 12 km. frá
Billundflugvelli óskar eftir að tengj-
ast íslenskum söfnuði á þessum
grundvelli. Þeir eiga vinasöfnuði á
öðrum Norðurlöndum. Skammt frá
Grindsted er Legoland og Ljóna-
garðurinn frægi. Söfnuðurinn vill
mjög gjarnan senda hóp til íslands
t.d. í sumar og taka á móti íslending-
um og vinna út skemmtilega og lær-
dómsríka dagskrá.
Nánari upplýsingar hjá
fræðsludeild.
31