Víðförli - 15.12.1995, Side 17
Kærleiksandi
kirkju leiðir
SáJmur eftir sr. Braga J. Ingi-
bergsson, fluttur á Hólahátíð
1995
Kærleiksandi kirkju leiðir.
Kristi eilíft vitni ber.
Hlýjan faðminn bjarta breiðir
barni mót er innar fer.
Ó, vor Drottinn,
helga brauð og vín sem ber.
Drottinn máltíð friðar færir,
frelsun veitir dýrðarhár,
trúarandann endurnærir,
allra græðir hjartasár.
Ó, vor Drottinn,
þerra á hvarmi sérhvert tár.
Vér að náðarborði berum
breyskan huga og fánýt völd.
Veik og hrösul öll vér erum,
einn ber Kristur syndagjöld.
Ó, vor Drottinn,
líkn þín varir ár og öld.
Leiðréttinp
Þau leiðu mistök urðu í síð-
asta blaði að nafn eins greinar-
höfundar misritaðist. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson var sagð-
ur Sigurjónsson. Viðkomandi er
beðinn velvirðingar á þessu.
Þættir um konur
og Kristsmenn
Á vegum Alþingis er nú í smíðum
viðamikið verk sem hlotið hefur
vinnuheitið Saga kristni á íslandi í
1000 ár. I eldri kirkjusögum hefur
hlutur kvenna verið svo til enginn, í
þeirri nýju er reynt að bæta þar úr.
Að því er þó ekki auðhlaupið þar
sem rit og rannsóknir um konur og
kirkju eru af afar skornum skammti.
Með það fyrir augum að grafa
fram hinn gleymda hluta kvenna í
sögunni var á síðasta vori efnt til
hugmyndastefnu á vegum ritstjórnar
kirkjusögunnar. Afrakstur ráðstefn-
unnar var góður og var þar fluttur
fjöldi erinda þar sem konur voru
dregnar fram í ljósið.
Fyrsta ritgerðasafnið um konur og
kristni lítur nú dagsins ljós. Það er
með útgáfu níu þeirra erinda sem
flutt voru á ráðstefnunni.
Þar má nefna að Elsa G. Guðjóns-
dóttir textílfræðingur fjallar um
kirkjulegar hannyrðir frá fyrstu tíð.
Agnes Arnórsdóttir sagnfræðingur
skoðar hvernig gjafir við stofnun
hjónabands endurspegla þróun og
viðhorf frá forngermönskum hefðum
til kristinna hugmynda.
Ásdís Egilsdóttir bókmenntafræð-
ingur skoðar kvenímyndir erlendra
trúarrita í íslenskum biskupasögum.
Margrét Eggertsdóttir bókmennta-
fræðingur leitar uppi konur sem ortu
sálma í lúterskum sið.
Dr. Gunnar Kristjánsson leitar við-
horfa til kvenna hjá Jóni
Vídalín.
Guðrún Ása Gríms-
dóttir handritasagn-
fræðingur segir frá
prestskonum fyrr á
tímum.
Margrét Jónsdóttir
félagsfræðingur seg-
ir frá könnum á hög-
um kvenna í þremur
trúarsöfnuðum.
Þá greinir Helga
Kress bókmennta-
fræðingur frá
áhrifum kristni-
töku á stöðu
kvenna. Og að
lokum tjallar sr.
Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir
um stöðu
kvenna innan
kirkju nú á
tímum.
Hin þunga barrokkumgjörb er minnir á volduga stofnun kirkjunnar, en kjarninn er
manneskjan sjálf í bœn tii Krists á krossinum. Forsíbumynd hinnar nýju bókar „Hin
týnda saga".
víðförli 1 7