Víðförli - 15.12.1995, Qupperneq 18

Víðförli - 15.12.1995, Qupperneq 18
Birna Friðriksdóttir Hildur Gunnarsdóttir Þá voru jólin komin Aðventan var mikill annatími á bernskuheimili mínu, sem var prestsheimili á Húsavík. Þar var m a r g t e i n n i g öðruvísi en á öðr- um heim- ilum á Húsavík, b æ ð i v e g n a s t a r f s pabba, en einnig vegna þess að mamma var dönsk og hafði hún flutt með sér danska jólasiði. Eg man t.d. ekki eftir að að- ventukrans sæist á öðrum heim- ilum en okkar. Þá var á aðventu mikil konfektgerð. Mamma gerði fínt konfekt úr marsípani, en við fengum að bjóða heim krökkum og gera konfekt úr einhverju deigi sem ég veit ekki hvað var. Og það var nú ekkert gott á bragðið en mikið var það gaman. Svo var það laufabrauðið. Já, og jólakortin. Við krakkarnir bjuggum til öll jólakort sem við sendum. Það var gleðidagur hjá okkur krökkunum þegar skipið kom með jólaeplin og kaupfélagið ilmaði af þessum dásemdum. Enn þann dag í dag finnst mér eplalyktin vera jólalykt. En jólin komu þegar við sett- umst inn í kirkjuna á Húsavík og klukkan sló 6. Það var kirkjan okkar, því að pabbi var prestur- inn og mamma organistinn. Þegar við komum heim úr kirkjunni á aðfangadagskvöld var kveikt á kertum út um allt hús. Aldrei hef ég séð jafnmörg kertaljós. Við settumst að borði og pabbi flutti okkur hugvekju. Að borðhaldinu loknu var kveikt á kertunum á jólatrénu, sem var trégrind, bundin eini- hríslum. Enn þann dag í dag á ég erfitt með að henda jólatrénu - alvöru jólatré! Einn er sá siður í mínu jóla- haldi sem ekki tengist rnínu bernskuheimili. Frá því að ég fyrst las kvæði Stefáns frá Hvítadal „Bernskujól" hef ég á hverjum jólamorgni sest út af fyrir mig og lesið það fyrir sjálfa mig. Er hneig að jólum, mitt hjarta brann. I dásemd nýrri hver dagur rann. Það lækkaði stöðugt á lofti sól. Þau brostu í nálægð, mín bernskujól. Að sjöttu stundu um síðir dró. Kveldið var heilagt, er klukkan sló. Þá hljóðnaði fólkið. Ég heyrði og fann, að ljóssins englar þá liðu í rann. Ó, blessuð jólin, er barn ég var. Ó, mörg er gleðin að minnast þar. í gullnum Ijóma, hver gjöf mér skín. En kærust voru mér kertin mín. Því Lausnari heimsins þeim ljóma gaf. Þau fegurst lýstu, er fólkið svaf. Þau kerti brunnu svo bjart og rótt, í Jesú nafni um jólanótt. (Úr kvæðinu „Jól“ eftir Stef- án frá Hvítadal.) Jólin og undir- búningurinn Ég er alin upp í Reykjavík, í Hátúninu. Ég var langyngst af systkinum mínum, svo að ég var bara átta ára þegar ég varð móðursystir. En fjölskyldan mín var stór þegar ég var stelpa, hópur af börnum og fullorðnum. Ég var í barnakór í Laugarneskirkju, svo að þar undirbjuggum við sálmana á aðventunni. Undirbúningurinn heima var með hefðbundnu sniði. Helgina fyrir jól settumst við niður með pabba til að pússa silfrið. Þá voru að koma jól. Þetta var sérstakt því að pabbi kom ekki annars svo mikið nálægt heimilisstörfunum. Við fengum stundum tvo kjóla, jólakjól og ballkjól, sem pabbi keypti erlendis. Svo voru það eplin, jólaeplin. Það angaði allt húsið af jólaeplalykt. A aðfangadagskvöld borðuðu allir heima, þá var langt borð yfir báðar stofurnar, enda vorum við oft um 20 manns. Og þar var líf og fjör, margir krakkar. Síðastliðin 6 ár hef ég sungið í kirkjukómum í Grafarvogi. Mín aðventa, minn jólaundirbún- ingur, tengist því sálmasöngnum, undirbúningi aðventukvölds í kirkjunni og jólaguðsþjónust- unum. Mest af öllu held ég upp á sálminn „Fögur er foldin“ þó margir séu þeir fallegir jólasálmam- ir. Fjölskyldan mín er saman á aðfangadags- kvöld, mamma er hjá okkur til skiptis eftir að pabbi dó og við borðum sama og gleðjumst. Á jólanótt les ég. Svo taka við fjölmenn fjöl- skylduboð. í mínum huga eru jólin tengd stórri fjölskyldu, fullorðnum og börnum, sem gleðj- ast og fagna saman á hátíðlegum jólum. Eitt vil ég nefna að lokum en það er helgi- haldið sem er fyrir starfsfólk Biskupsstofu á að- ventu. Það var góð viðbót fyrir mig við undir- búning jólanna fyrir huga og hjarta. Hildur Cunnarsdóttir. 1 8 VÍÐFÖRL!

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.