Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.08.1999, Síða 2

Bæjarins besta - 18.08.1999, Síða 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn: H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson Sólgötu 9, 400 ísafjörður HalLdór Sveinbjörnsson ■b 456 4560 Ritstjóri: 0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson Netfang prentsmiðju: Blaðamaður: hprent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar: http ://vrww. snerpa. is/bb bb@snerpa.is Bæjarins testa er í samtökum bæjar- og héraðs- fréttahlaða. Eftlrprenton, hJjóðrltnn, notkun ljósmynda ^ og annars efnls er óheimll nema heimllda sé getlð. Margt er það í kotí karls Af heimsókn kínverska sendiherrans á Islandi, Wang Ronghua, til Bolungarvíkur og ísafjarðar, sem við greindum frá í síðasta blaði, má ráða að margt er það í koti karls sem kóngs er ekki í ranni. Isfirsk iðnfyrirtæki eru framsækin og í fararbroddi á mörgum sviðum varðandi tækninýjungar í fiskvinnslu og hafa áunnið sér mikinn og góðan orðstír innan lands sem utan. Ahugi kínverska sendiherrans á því sem hér er að gerast á þessum vettvangi kom berlega í ljós í heimsókn hans til þessara fyrirtækja. Þótt ekki sé við þ ví að búast að slíkar heimsóknir leiði til skjótra og mikilla viðskiptasambanda fer ekki á milli mála að í þeim felst talsverð auglýsing fyrir þau fyrirtæki, sem gestirnir sækja heim. Og væntanlega felur heim- sóknin í sér aukinn skilning milli gesta og gestgjafa al- mennt séð. Góðu heilli er af sú tíð að mestu að bæjaryfirvöld séu að vasast í atvinnulífi með beinum hætti. Þó ber því ekki að neita að nú á seinni tímum hafa sveitarstjórnir sums staðar orðið að grípa í taumanna með einum eða öðrum hætti þegar í öll skjól er fokið þótt óljúft þyki. Enda þótt þessi almenna breyting hafi fært sveitar- stjómarmönnum aukið svigrúm til annarra viðfangsefna er ekki þar með sagt að þeir séu lausir ailra mála hvað atvinnulífíð varðar. Auðvitað verða bæjaryfirvöid að vera vakandi yfír því öllum stundum að fyrirtækjum sé búið sem best umhverfi fyrir starfsemi sína. Sveitarfélag þrífst ekki án góðra fyrirtækja. An beinna afskipta geta sveitarstjórnir komið til liðs við fyrirtæki á ýmsa vegu. Heimsóknir í Ifkingu við hingaðkomu kínverska sendiherrans geta vegið drjúgt þegartil lengri tímaerlitið. Þrátt fyriryfirburði stórþjóða á flestum sviðum hátækni og vísinda státum við af ýmsu á okkar sérsviðum, sem hjá þeim er ekki til staðar. Máttur auglýsinga verður seint metinn. Frumkvæði sveitarstjórna í kynningu á héraði, mannlífi þar og því sem er að gerast í skóla- og félagsmálum, atvinnu- og menningarlífi og hvernig búið er að æskunni, sem á að erfa landið, er áreiðanlega miklu happadrýgra og árang- ursríkara en að sveitarsjóður leggi fáeinar krónur í púkk til að ýta fleyi af vanefnum byggðu úr höfn. Um þennan þátt verða þeir að vera sér meðvitaðir, sem tekið hafa að sér að stjórna sveitarfélagi. -s.li. OQÐ VIKUNNAÐ Peningar / fé Orðin peningar ogfé eru notuð um verðmæti sem mæld eru í krónum eða dollurum eða öðrum gjaldmiðlum nútímans. Bæði eiga rætur að rekja til þeirra tíma, þegar ekki var notast við slegna mynt eða seðla í viðskiptum, heldur eignir af áþreifanlegra tagi. Bæði merkja upphaflega búfénað, sbr. b úpeningur, peningshús,, búfé.fé er rekið á fjall eða því slátrað o.s.frv. Þetta minnir á, að t.d. hlutafé getur verið reitt af hendi með öðru en beinhörðum gjaldeyri, t.d. með tækjabúnaði, vinnuframlagi o.fl. Orðið fé-lag merkir reyndar, að menn leggi fé í einn sjóð í ákveðnum tilgangi. Pétur H. Pálsson, stjórnarformaður Fjölnis hf. er Dýrfírðingur í föðuræt Fjórír kostir yarð: húsnæði fyrir vimi' Langstærsti hluthafinn í hinu nýjafyrirtæki áÞingeyri, Fiskvinnslunni Fjölni hf., er útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækið Vfsir hf. í Grindavík. Framkvæmdastjóri Vísis hf. er Pétur Hafsteinn Pálsson, stjórnarformaður Fjölnis hf. I samtali við BB sagði Pétur, að strax yrði gengið í að koma sér niður á húsnæði fyrir fisk- vinnslu félagsins á Þingeyri. Hann sagði að þar kæmu fjórir kostir til greina: I fyrsta lagi að náð verði samkomulagi um frystihúsið á Þingeyri eða hluta þess, í öðru lagi að kaupa sláturhúsið áÞingeyri, í þriðja lagi að fá fiskvinnsluhús Unn- ar ehf. og stækka það, og í fjórða lagi að byggja nýtt hús. Pétur segir reksturinn á Þingeyri leggjast vel í sig. „Þetta eru hlutir sem við kunnum og meðan rekstrar- grundvöllurinn er í lagi held ég að engu sé að kvíða okkar megin.“ Stefnt er að því að Fisk- vinnslan Fjölnir hf. komi á fót fiskmarkaði á Þingeyri, sem auk þess að reka upp- boðsmarkað veiti skipum og bátum sem um höfnina fara margvíslega þjónustu, líkt og gert er á Djúpavogi, þar sem Vísir er einnig þáttakandi í útgerð og fiskvinnslu. „Já, við teljum okkur þurfa að hafa mjög öfluga hafnarþjónustu, bæði ftskmarkað og aðra þjón- ustu, bæði til að laða að önnur skip og til að þjónusta okkar skip“, segir Pétur. Hlutafjáraukning ekki ólíkleg Eins og fram kemur annars staðar hér í blaðinu er hlutafé Fjölnis hf. 400 milljónir. Heimild er fyrir því að auka hlutaféð upp í 500 milljónir, - „og verði mikill áhugi er ekki óliklegt að það verði gert og hluthafar afsali sér þá for- kaupsrétti“, segir Pétur. í stofnsamningi Fiskvinnsl- unnar Fjölnis hf. segir m.a.: „Tilgangur félagsins er að stuðla að endurreisn og efi- ingu atvinnulífs á Þingeyri, einkum á sviði fiskvinnslu og annars tengds atvinnurekstrar. í því skyni er það tilgangur félagsins að afla sér veiði- heimilda í íslenskri fiskveiði- lögsögu að því marki, að fé- lagið verði í framtíðinni sjálfu sér nægt um hráefnisöflun. Þá er það tilgangur félagsins að afla sér nauðsynlegrar rekstr- araðstöðu og tækjabúnaðar til fiskvinnslu með kaupum og/ eða leigu á fasteignum og öðr- um búnaði..." Takmarkanir á sölu kvóta og flutningi frá Þingeyri I samþykktum félagsins segir: „Aflaheimildir sem fé- lagið hefur aflað sér með kaupum eða kann að eignast með öðrum hætti verða því aðeins seldar frá félaginu, að fyrir slíkri ákvörðun liggi gilt samþykki hluthafafundar í fé- laginu. Slík samþykkt er því aðeins gild að hún hafi verið samþykkt með sama atkvæða- magni og þarf til breytinga á samþykktum félagsins sam- kvæmt 93. gr. hlutafélaga- Iaga.“ Tilgangurinn með ákvæði þessu er að tryggja sem best styrk félagsins á Þingeyri. Samskonar ákvæði er í sam- þykktunum varðandi ákvörð- un um að flytja félagið frá Þingeyri. Dýrfirðingur í föðurætt og Fjölnisnafnið kært Pétur H. Pálsson, stjórnar- formaður Fiskvinnslunnar Fjölnis hf„ er Dýrfirðingur í föðurætt. Faðir hans, Páll H. Pálsson, forstjóri Vísis hf. í Grindavík og einn af stofn- endum fyrirtækisins, er sonur Páls Jónssonar og Jóhönnu Daðeyjar Gísladóttur, en þess má geta að systir hennar er Svanfríður Gísladóttir, ekkja Hjartarheitins stapa á ísafirði. „Afi átti á sínum tíma útgerð- arfyrirtækið Fjölni í Dýrafirði, sem gerði út bátinn Fjölni og átti helming í Hilmi. Fjölnir er nafn sem er okkur kært“, segir Pétur. Rótgróið fjöl- skyldufyrirtæki Vísir hf. í Grindavík er 35 ára gamalt fyrirtæki. Páll H. Pálsson stofnaði það ásamt tveimur öðrum, þeim Ásgeiri Lúðvíkssyni og Kristmundi Finnbogasyni frá Hvammi í Dýrafirði, mági sínum, en Kristmundur gerði út Sanda- Árshlutareikningur Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal lagður fram 43,6 inilljóna hagnaður fyrstu sex mánuði ársins Hraðfrystihúsið hf. í Hnífs- dal hagnaðist um 43,6 millj- ónir króna fyrstu sex mánuði þessa árs á móti 50 milljóna hagnaði fyrstu sex mánuði síðasta árs. Þessar upplýsingar koma fram í árshlutareikningi fyrirtækisins sem kunngerður var í gær. Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust um 57 milljónir króna milli ára, úr 855 milljónum fyrstu sex mánuði síðasta árs í 912 milljónir í ár. Hagnaður fyrir afskriftir nam 147 millj- ónum króna á móti 134 millj- ónum árið á undan. Eigið fé Hraðfrystihússins var 614 milljónir í lok tíma- bilsins og er það tæp 22% af niðurstöðu efnahagsreikn- ings. Fjárfestingarfyrirtækis- ins á tímabilinu námu 98 milljónum krónasem skiptust þannig að 72 milljónir fóru til endurbóta á skipum félagsins, 13,5 milljónir til endurbóta á fasteignumog 1 l,9milljónum var varið í nýjar vélar og tæki. Veltufé frá rekstri nam 95 milljónum króna á tímabilinu á móti 80 milljónum króna árið á undan. Veltufjárhlutfall félagsins var 1,3 á móti 1,39 árið á undan. Hraðfrystihúsið hf. rekur bolfiskvinnslu í Hnífsdal, rækjuverksmiðju í Súðavík og gerði út fimm skip og einn bát á tímabilinu, þar af voru tvö þeirra leiguskip. Starfsmenn félagsins eru um 160, hlut- hafar eru 123 og til þeirra greiddi félagið 23,7 milljónir króna í arð á tímabilinu. Þann 30. júní sl. undirrituðu stjórnir Hraðfrystihússins hf. og Gunnvarar hf. áætlun um sameiningu félaganna, en hún gerir ráð fyrir að hluthafar í Gunnvöru fái eingöngu hluta- bréf í Hraðfrystihúsinu hf. í stað hlutabréfa í Gunnvöru. Sameiningin mun taka gildi frá 1. janúar sl„ 0g munu skiptahlutföll byggja á efna- hag í árslok 1998 að teknu tilliti til afkomu félaganna á tímabilinujanúartil maí 1999. Hluthafafundir verða vænt- anlega haldnir um næstu mán- aðamót þar sem samruni fé- laganna verður tekinn fyrir. Gert er ráð fyrir að sameining félaganna munu leiða til auk- innar hagræðingar. Einbýlishús tilsölu Til sölu er Hrannargata 3, sem er endur- byggt 142m2 elnbýlishús á tveimurhæðum. Allt nýtt. Verð kr. 9,5 milljónir. Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Guð- mundsson hdl., Hafnarstræti 1, ísafirði, sími 456 3244, fax 456 4547. 2 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.