Tónamál - 01.11.1970, Side 9

Tónamál - 01.11.1970, Side 9
þröngum fjárhagsramma, sem henni er ætlaður til að gegna hlutverki sínu. FYRIR FÓLKIÐ Fengi hljómsveitin hinsvegar nægi- legt fé til að ferðast um landið og leika fyrir fólkið, mundi afstaða almennings til hennar gjörbreytast, því án kynna af lifandi tónlistarflutningi getur ekki vaknað áhugi hjá fólki fyrir tónlist. Langar mig í því sambandi til að vitna í svar Bernhards Shaw, þegar hann var spurður hvaða munur væri á því að hlusta á tónverk flutt af hljómplötu eða í tónleikasal flutt af sinfóníu- hljómsveit. Svar hans var á þá leið, að munurinn væri sá sami og að tala við unnustu sína í síma, eða faðma hana að sér. Fengi hljómsveitin að stækka, gæti hún ráðizt í flutning stærri verka og aukið fjölbreytni í verkefnavali, farið inn á fleiri svið tónlistarinnar. Fengi hljómsveitin raunverulegan tón- leikasal til starfsemi sinnar kæmist fólk að raun um, að það, sem það hefur hingað til álitið hljóm sveitar- innar, er bara daufur ómur af því sem hún hefur til að bera. Að flytja tónlist í slæmum sal er jafn fráleitt og að halda málverkasýningu í kartöflukjall- ara. Á BREIÐARI BRAUT Þrátt fyrir þetta heldur dapra yfírlit mitt á starfi og tilveru S. í. á tuttugu ára æviferli hennar, trúi ég á það, að kapp það, sem einkenndi baráttuhug frumherjanna lifi enn í brjóstum manna, sem eru þess megnugir að leiða hljóm- sveitina inn á breiðari og greiðfærari veg en hún hefur hingað til þurft að skrönglast eftir. í þau tuttugu ár, sem hún hefur lifað, hefur það atvikazt svo, að ég hef haft töluvert af hljómsveit- inni að segja, bæði sem starfsmaður hennar og sem fulltrúi hljómsveitar- fólks í viðræðum við forráðamenn. Kynni mín á afstöðu megandi manna til hljómsveitarinnar gefa mér fullt tilefni til bjartsýni og held ég að ég halli ekki á neinn, þó ég eigni núverandi menntamálaraðherra, Gylfa Þ. Gísla- syni öðrum mönnum fremur heiður- inn af því að hljómsveitin skuli vera til í dag. Á útmánuðum ársins 1969 skip- aði ráðherra nefnd til að kanna starfs- grundvöll og fjármál hljómsveitarinnar, með framtíðarskipulag í huga. Sú nefndarskipan svo og frammistaða hljómsveitarinnar á Listahátíð í júní sl. mun, ef að líkum lætur, vera sú lyftistöng, sem beðið hefur verið eftir. Gunnar Egilson. ar vel niður fyrir lágmarkið. Enn fleiri óheillastefnur í rekstri sveitarinnar fóru að koma í ljós; hljómsveitin hætti að stækka, skólatónleikum fór fækkandi og eru reyndar líka komnir vel niður fyrir lágmarkið, hljómsveitin fer að missa góða menn úr landi vegna bágra launakjara en samhliða þessu aukast kröfur þær sem gerðar eru til hljóm- sveitarmanna til mikilla muna. Það verður að segja hljómsveitar- fólki til lofs, að það hefur mætt þessu erfiða tímabili með frábærri elju og dugnaði, treystandi á það að með þrautseigjunni hljóti að koma að því að forráðamenn sjái að betur verði að hlúa að þessari starfsemi. Ekki má skilja orð mín svo, að ég telji þessa óheillaþróun vera sök Ríkisútvarps- ins, öðru nær. Rekstur útvarpsins á hljómsveitinni hefur verið til mikils sóma og vil ég fullyrða að hljómsveitin væri ekki stödd þar sem hún er í dag, þrátt fyrir allt, ef útvarpið hefði ekki staðið að henni. Oft hefur gengið á ýmsu með rekstur sveitarinnar og til- veran staðið tæpt, bæði vegna óánægju hljómsveitarfólks með kjör sín og á- hugaleysis og skilningsleysis utanað- komandi aðilja á hlutverki hennar. Ósjaldan hafa heyrzt ókvæðisorð í hennar garð, talað um óþarfa bruðl á almannafé með því að vera að reka svona hljómsveit, nær væri að verja þeim peningum, sem í hljómsveitina fara í eitthvað gagnlegra. í sjálfu sér eru þessar óánægjuraddir skiljanlegar, — hljómsveitin er ung og hefur ekki náð til nema mjög takmarkaðs hluta þjóðarinnar, en það stafar af allt of TIL BJARTSÝNI" TÓNAMÁL 9

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.