Tónamál - 01.11.1970, Qupperneq 11
náttúra
Árið 1969 má með sanni nefna ,,Pop-
árið mikla". Það er enginn vafi á því,
að þau umbrot, sem hristu upp í popinu
þetta annálaða sumar hafa verið mjög
hagstœð fyrir íslenzka pop-menningu.
„Ég hef heyrt að þeir ætli að kalla
hana Náttúru", sagði Karl Sighvats-
son við mig er ég hafði lokið við að
skrifa niður frásögn hans á ferli Flow-
ers, sem um þær mundir var að líða
undir lok.
Náttúra, hvað var það? Ef ætti að
feðra króann dæmist hann víst á Jónas
R. Jónsson, því þarna var loks full-
sköpuð sú hugmynd, sem hann hafði
lengi velt fyrir sér eftir að hann neydd-
ist til að yfirgefa Flowers.
Náttúra, frumlegt? Já, vissulega telst
það sérstætt hljómsveitarnafn.
„Þetta datt út úr Bjögga á æfingu“,
sagði Jónas.
Bjöggi er gítarleikarinn, sem týnist
í eigin hári þegar honum tekst hvað
bezt upp. Björgvin Gíslason, eins og
hann er skráður hjá manntalinu, er
vissulega einn okkar fingrafímustu gít-
arleikara og svo býr hann líka yfir
tónskáldahæfileikum, sem ekki hafa
blómstrað að neinu marki ennþá.
„Við stefnum að því að flytja músík,
sem við höfum ánægju af að túlka, og
við vitum að fellur einnig í smekk
fólksins". Svo mæltist trumbuslagara
Náttúru, Rafni Haraldssyni, er ég
spjallaði við þá félaga er dró að því að
því að Náttúra skyldi koma fram í
uðin og sögðu margir hverjir að nú
væri „grúppan“ búin að vera, mönn-
um var vart láandi slíkur þankagangur,
því fyrir utan það að vera góður söngv-
ari, var Jónas sterkasti persónuleikinn
í hljómsveitinni, hörku duglegur og á-
huginn ódrepandi.
En grýlu spárnar hafa svo sannar-
lega ekki þrifizt vel, því einmitt um
þessar mundir hefur Náttúra aldrei
verið betri.
Pétur Kristjánsson var ekki öfunds-
verður að taka við af Jónasi, en um
oVi
Framhald á bls. 13
fyrsta sinn, en það var í júlímánuði ‘69.
Síðan hefur Náttúra eflzt jafnt og þétt,
um leið og hún hefur farið eðlilegum
hraða upp vinsældastigann, en í lok
maí hrikti heldur óþægilega í máttar-
stoðum hljómsveitarinnar, er Jónas til-
kynnti að hann hefði ákveðið að yfir-
gefa hljómsveita-„bransann“.
„ÞRUMU LOSTNIR“
„Við urðum þrumu lostnir“, sagði
Rabbi við mig er málið var gert lýðn-
um ljóst. Náttúrufylgjendur hristu höf-
Sp. Já, halló, er þetta hjá Baldri
Geirmundssyni ?
Sv. Já, en hann er ekki heima, hann
er niður í stöð.
Sp. Nú, er það. Er hægt að ná í
hann þar?
Sv. Já, já, hringdu bara í 3251.
Sp. Jæja, þakka þér fyrir, blessuð.
Sv. Það var ekkert, blessaður.
Sp. Já, halló.
Sv. Mjólkurstöðin.
Sp. Er hægt að ná tali af Baldri
Geirmundssyni ?
Sv. Ætli það ekki. (1 fjarska: Bald-
ur! Baldur....)
Sp. Er þetta Baldur. Þetta er hjá
Tónamálum, blaði F. 1. H.
Sv. Nú, komdu sæll.
Sp. Hverjir skipa hljómsveitina hjá
þér núna ?
Sv. Auk mín eru það Karl Geir-
mundsson, gítar . . .
Sp. Er það bróðir þinn ?
Sv. Já, og svo kemur Halldór
Hauksson á bassagítar og syng-
ur, síðan kemur Samúel Einars-
íngibtjörg
„KRUMMI"
SLÆR
Á
ÞRÁÐINN
VESTUR
Á
FIRÐI
son á trommur, svo Baldur Ól-
afsson, sem er lika með gítar.
Sp. Hvað spilar þú á, og hvað með
Ingibjörgu ?
Sv. Að sjálfsögðu syngur Ingibjörg
Guðmundsdóttir með okkur, en
ég spila á sax og orgel.
Sp. Hvaða músík spilið þið nú helzt ?
Sv. Tja, það er nú mest pop fyrir
krakkana, svo spilum við líka
soldið blandaða dansmúsík.
Sp. Spilið þið oft?
Sv. Svona einu sinni, tvisvar í viku.
Sp. Hver er afstaða ykkar til F.
í. H.?
Sv. Ja, þið eruð nú svo langt í
burtu.
Sp. Eftir hvaða taxta spilið þið ?
Sv. Við förum svona eftir því, hvern-
ig aðsóknin er hverju sinni. Ann-
ars höfum við tekið þrjú þúsund
á mann úti á landsbyggðinni.
Sp. Hvað er að frétta um plötur frá
ykkur ?
Sv. Við spiluðum inn á eina i vor
með lögunum: Þín innsta þrá
og Mín æskuást, en það kemur
önnur í haust.
Sp. Hvað er á henni og hver gefur
hana út?
Sv. Hún er gefin út af S.G.-hljóm-
plötum, en um lögin er það að
segja, að annað er franskt, en
hitt er heimatilbúið.
Sp. Hvenær komið þið til með að
spila hér fyrir sunnan ?
Sv. Við verðum þarna í september
og spilum þá í Stapa 11., en
annað hvort að Hvoli eða Ara-
tungu þann 12.
Sp. (Hugsar: Nú já, það á ekki að
láta hneppa sig í félagið). Spyr:
Þú sendir mér máske mynd ?
Sv. Já, já, alveg sjálfsagt.
Sp. Veiztu addressuna okkar?
Sv. Nei.
Sp. Hún er Laufásvegur 40.... En
veiztu hver kauptaxtinn er nú?
Sv. Nei.
Sp. Hann er 307 krónur 35 aurar á
timann, svo þakka ég þér rabb-
ið og labbaðu nú við hjá okkur
og fáðu blaðið.
Sv. Já, þakka þér fyrir og vertu
sæll.
Sp. Sæll sömuleiðis.
Tólið.
(Krummi)
TÓNAMÁL 11