Tónamál - 01.11.1970, Side 12

Tónamál - 01.11.1970, Side 12
 HLJÓÐFÆRALEIKARAR VELJA BRI DGESTO N E Tek að mér stillingar og viðgerðir á píanóum - fljót og góð vinna. LEIFUR H. MAGNÚSSON Njálsgötu 82 Sími 25583 Látið yfirfara hljóðfæri yðar a. m. k. árlega, því þannig endist hljóðfærið betur og verður yður ódýrara í rekstri. NÝIR SAMNINGAR Framhald af bls. 10 YFIRLÝSING Að gefnu tilefni lýsir Samband veitinga- og giJtihúsaeigenda og Félag íslenzkra hljómlistarmanna því hér með yfir, að ekki ber að líta á hljóm- sveitarstjóra sem sjálfstæðan atvinnurekanda eða verktaka enda er hann eingöngu verkstjóri hljómlistarmanna á vinnustað. Hljómlistarstjóra ber að leggja fram sundurliðaðan reikning með fullnægjandi upplýsingum m. a. með nöfnum hljómlistarmanna, heimilisföngum, fæðingardögum og nafn- númerum. Reykjavík, 8. júlí 1970. F. h. Félags íslenzkra hljómlistarmanna. Sverrir Garðarsson F. h. Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda. Konráð Guðmundsson Samningur milli Félags ísienzkra hljómlistarmanna og ráðningarstjóra sjó- hersins, bandarísku herstöðvarinnar, Keflavík, gerður fyrir hönd íslenzka varnarliðsins: 1. Tilgangur þessa samkomulags er að kveða nánar á um kaup og kjör til handa íslenzkum hljómlistarmönnum, sem koma fram á skemmtistöð- um hersins á íslandi. 2. Félag íslenzkra hljómlistarmanna tekur á sig þá ábyrgð að sjá ráðning- arstofu hersins fyrir öllum tónlistarflutningi, er hún kann að óska eftir. Svo skuldbindur FÍH sig til að reyna að útvega allar þær hljómsveitir, sem herinn óskar eftir gegn þeirri greiðslu, sem nánar er tiltekið um síðar í samningi þessum. 3. Ráðningarstjóri hersins skal starfa sem fulltrúi FlH hjá skemmtistöð- um hersins og skuldbindur sig til að gæta réttar félagsmanna á þeim slóðum, um leið og allar ráðningar gerist í samráði við skrifstofuFÍH. 4. Samningur þessi er byggður á samningum milli SVG og FÍH, er gerður var 6. júní 1969, ásamt hugsanlegum breytingum. Ákvæðin um hljóð- færaafnot og fyrningar eru tekin úr samningum milli FÍH og Þjóðleik- hússins. Þetta er að sjálfsögðu gert á þennan hátt með tilliti til fjarlægð- arinnar milli Reykjavíkur og hersvæðisins, og annars mismunar á því að koma fram í Reykjavík eða á Suðurnesjum. 5. Eins og kemur fram í samningum við SVG er lágmarksgrunnkaup hljómlistarmanna kr. 173,90 á klst., að viðbættri vísitölu. Þar af leiðir, að kaupbætur eru reiknaðar þessu til viðbótar auk vísitölu að viðbættu eftirfarandi: Fatapeningar 2%, orlof 9%, verkfæragjald 8% Hækkanir eða lækkanir á gjaldskrá þessari eru komnar undir því að breytingar geti orðið á samningum milli SVG og FÍH. Aukagreiðslur hljómlistarmanna skulu vera: a. Fyrir vinnu á laugardegi skal kaupið á tímann vera 20% hærra. b. Öll vinna sem fram fer á lögboðnum íslenzkum frídögum skal greidd með 25% álagi, en þeir dagar eru: Nýjársdagur, skírdagur, föstu- dagurinn langi, páskadagur, annar páskadagur, sumardagur fyrsti, uppstigningardagur, fyrsti maí, hvítasunnudagur, annar x hvítasunnu, jóladagur og annar jóladagur. c. fyrir alla vinnu á eftirfarandi frídögum (íslenzkum) og eftir kl. 1, e eftir miðnætti alla daga skal greiða 100% álag á tímakaupið: 17. júní, aðfangadag og gamlársdag. 7. Hljómlistarmanni skulu greiddar fjórar stundir, lágmark, sé hann kallaður til vinnu. Skal sú vinna vera innt af hendi fyrir kl. 1 eftir mið- nætti. Ferðapeningar eru ekki taldir með í lágmarkskvaðningu. 8. Hljómlistarmaður á rétt á greiðslu fyrir þann tima, sem hann eyðir í ferðir til og frá vinnustað, og fyrir þann tíma, sem það tekur hann að koma sér fyrir áður en leikur hefst og að taka saman, að leik loknum. Fer þessi greiðsla fram sem hér segir: a. Hljómlistarmaður frá Reykjavíkursvæðinu fær aukalega greiddar tvær stundir á kvöldi. b. Hljómlistarmaður frá Keflavík fær aukalega greidda eina stund. 9. FÍH skuldbindur sig til þess að ráða fulltryggðar bifreiðir ásamt meira- prófsbílstjóra til að annast flutninga á hljómlistarmönnum, og skal kostnaður greiddur með krónum 3000,00 fyrir hvern hóp, sem saman- stendur af þrem eða fleiri. Ef verðlag breytist hjá sérleyfishöfum póst- þjónustunnar, á að endurskoða þessa upphæð. 10. Hverjum hljómlistarmanni og bifreiðarstjóra skal séð fyrir léttri mál- tíð þeim að kostnaðarlausu. 11. Hvíldartími hljómsveitar skal nema 15 minútum hverja klukkustund. 12. FÍH skal útbúa reikninga fyrir hvert vinnukvöld hverrar hljómsveitar, sem sýnir nafn, heimilisfang, fæðingardag, nafnnúmer og þóknunar- upphæð hvers og eins hljómlistarmanns. Mun síðan FÍH verða greitt samkvæmt þessum reikningum. FÍH skal greitt á hverja reikningsupphæð hvers reiknings er félagið útbýr á hendur Varnarliðinu: a. Umboðslaun 5% af heildarupphæð. b. Til Styrktar- og sjúkrasjóðs FÍH 3f%. Skal FÍH annast og bera ábyrgð á sjóði þessum, eins og kveður á um í iið 8 í samningnum við SVG. c. Til Orlofsheimilasjóðs, 0,25%. d. Til Lífeyrissjóðs skal greitt samkvæmt samningum Alþýðusam- bands íslands og Vinnuveitendasambands íslands frá 19. maí 1969. e. Krónur 75,00 skulu greiddar fyrir hljóðfæratryggingu, að hverri vinnulotu lokinni. Skal FlH hlýta sömu ábyrgð og í lið 9 í SVG samningnum. 13. Samningur þessi gildir frá 1. maí 1970 til 30. apríl 1971. Má segja honum upp á hvaða tíma sem er eftir 30. apríl 1971, af hvorum aðila sem er, þó með 30 daga fyrirvara. 14. Samningur þessi þarf til að öðlast gildi, samþykki Vinnumiðlunar- stjórnar og Varnarliðsins og fundar í Félagi íslenzkra hljómlistarmanna. 12 TÓNAMÁL

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.