Dagfari - okt. 2017, Síða 2

Dagfari - okt. 2017, Síða 2
2 Stefna stjórnmálaflokkanna í friðar- og afvopnunarmálum Samtök hernaðarandstæðinga sendu öllum þeim flokkum sem bjóða fram í Alþingiskosningunum 2017 eftirfarandi spurningalista. Þrátt fyrir ítrekaðar áminningar og rýmkaðan skilafrest bárust ekki svör frá: Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum og Flokki fólksins. Þá komu heldur ekki svör frá Dögun, sem býður einungis fram í einu kjördæmi. Svör flokkanna voru annars sem hér segir: Er stjórnmálahreyfingin hlynnt veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu? Samfylkingin: Samfylkingin hefur frá upphafi stutt aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og beitir sér þar fyrir friði og mannréttindum. Utanríkisstefna Samfylkingarinnar byggir á góðri samvinnu við önnur lýðræðisríki og virkri þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Framsóknarflokkurinn: Já. Framsóknarflokkurinn telur að aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, ásamt þátttöku í varnarsamstarfi við aðrar þjóðir á jafnréttisgrundvelli, sé sá valkostur sem helst tryggi öryggi almennra borgara hér á landi og íslenska ríkisins. Enda séu mannréttindi og lýðræði leiðarljós slíks varnarsamstarfs.

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.