Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 4

Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 4
4 Framsóknarflokkurinn: Markmið Atlantshafsbandalagsins snúa fyrst og síðast að því að tryggja öryggi þeirra ríkja sem aðild eiga að því. Framsóknarflokkurinn telur að bandalagið hafi að mestu uppfyllt þau markmið sín og hafi lagt mikilvæg lóð á vogarskálarnar við að stuðla að friði og öryggi í Evrópu. Píratar: Frá lokum kaldastríðsins hefur Atlantshafsbandalagið aukið hernaðarumsvif sín á heimsvísu og staðið að ólögmætum árásarstríðum m.a. í Serbíu og Afganistan. Árásarstríð eru eðli málsins samkvæmt ekki til þess fallin að stuðla að friði í heiminum. Vinstri græn: Atlantshafsbandalagið hefur stuðlað að ófriði í heiminum. Það nægir að líta til ástandsins í Afganistan og Írak, þar sem hernaðaraðgerðir Nató hafa átt stóran þátt í að viðhalda upplausnarástandi. Viðreisn: Viðreisn telur að Atlantshafsbandalagið hafi fremur stuðlað að friði. Alþýðufylkingin: Ófriði. Ef það stuðlaði einhvern tímann að friði í gegn um ógnarjafnvægi, þá gerir það það ekki lengur. Hins vegar ýtir það vígbúnaðarkapphlaup, sem tvímælalaust stuðlar að ófriði í heiminum og sóar um leið verðmætum sem gætu nýst í þarfari hluti. Myndi stjórnmálahreyfingin styðja aukin umsvif Bandaríkjahers hér á landi ef eftir því væri leitað? Samfylkingin: Samfylkingin styður ekki aukin hernaðarumsvif hér á landi. Framsóknarflokkurinn: Framsóknarflokkurinn er hlynntur þátttöku í varnarsamstarfi við Bandaríkin og aðrar þjóðir á jafnréttisgrundvelli eins og verið hefur.

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.