Dagfari - okt. 2017, Síða 7

Dagfari - okt. 2017, Síða 7
7 Alþýðufylkingin: Já, tvímælalaust, enda leitun að annarri eins hættu og sóun á verðmætum eins og kjarnorkuvopnum. Styður stjórnmálahreyfingin þá stefnu, sem meðal annars birtist í nýjustu fjárlögum, að auka framlög til hernaðarmála? Samfylkingin: Samfylkingin vill ekki hækka framlög til hernaðarmála. Við viljum vera áfram þátttakendur í starfi Atlantshafsbandalagsins á borgaralegum forsendum. Samfylkingin hefur ekki mótað sér afstöðu til þeirra tillaga sem birtast í fjárlögum á sviði öryggis- og varnarmála. Framsóknarflokkurinn: Framsóknarflokkurinn hefur verið ósammála þeim fjárlögum sem sitjandi ríkisstjórn hefur lagt fram. Í einhverjum tilfellum kann þó að vera réttlætanlegt að setja aukna fjármuni í varnarsamstarf sem Ísland tekur þátt í á jafnréttisgrundvelli. Píratar: Nei. Vinstri græn: Nei. Viðreisn: Viðreisn styður þá stefnu að auka framlög til varnarmála í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Alþýðufylkingin: Nei. Við eigum að nota peningana í að byggja upp og bæta lífið en ekki að eyðileggja og drepa.

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.