Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 9

Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 9
9 að finna í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem blátt bann er við árásarstríðum utan heimilda öryggisráðsins eða í sjálfsvörn. Hernaðaríhlutun NATO utan þessa ramma grafa undan friði á heimsvísu, fela í sér alvarleg brot á þjóðarrétti og ber að fordæma. Vinstri græn: Mjög slæm. Það upplausnarástand sem er í þessum ríkjum, með öllum þeim mannlegu hörmungum sem þeim fylgja bera því skýrast vitni. Viðreisn: Viðreisn telur ekki að ákvarðanir um stuðning Íslands við stríðsrekstur hafi alltaf verið góðar. Alþýðufylkingin: Að það hafi verið slæm ákvörðun er vægt til orða tekið um árásarstríð með tilheyrandi stríðsglæpum. Skömm sé þeim flokkum sem stóðu að þessum ákvörðunum. Hver er afstaða stjórnmálahreyfingarinnar til eftirfarandi staðhæfingar: „Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru ein mesta ógnin við frið í heiminum um þessar mundir.“ Veljið einn eftirtalinna svarmöguleika: (Mjög ósammála, frekar ósammála, hvorki né, frekar sammála, mjög sammála) Samfylkingin: Mjög sammála. Framsóknarflokkurinn: Það er varla hægt annað en vera mjög ósammála framangreindri staðhæfingu. Sé horft til þeirrar ógnar sem stafar af hryðjuverka- og skæruliðahópum víða um heim auk ríkja sem eru undir stjórn einræðisherra eða leiðtoga sem ítrekað virða leikreglur lýðræðis og

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.