Dagfari - Oct 2017, Page 16

Dagfari - Oct 2017, Page 16
16 hernaðarandstæðinga, SGI á Íslandi-friðarhópur búddista, Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna, Friðarhópur leikskólakennara, Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis og Friðar og mannréttindahópur BSRB. Samstarfshópurinn er opinn öllum hreyfingum sem vilja vinna að friði og væri ánægjulegt ef fleiri samtök lýstu sig reiðubúin til að vinna með okkur að þessu mikilvæga málefni. Áður en Samstarfshópurinn var stofnaður höfðu herstöðvaandstæðingar barist fyrir því að Ísland yrði hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum, en sú barátta hófst um 1980 og einnig höfðu samtökin staðið fyrir fjölmennum Keflavíkurgöngum með kröfum um kjarnorkuafvopnun. Herstöðvaandstæðingar keyptu meðal annars spurningu í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunnar í mars 1987 þar sem spurt var um afstöðu fólks til þess að Ísland yrði hluti af kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum. Níu af hverjum tíu lýsti sig fylgjandi því og var reyndar athyglisvert að 83% þeirra sem ætluðu að kjósa Sjálfstæðisflokkinn voru hlynntir því að Ísland yrði lýst kjarnorkuvopnalaust. Sýnir þetta glögglega að stór hluti fólks gerir sér enga grein fyrir því hvað felst í Nató-aðildinni og að Nató er kjarnorkubandalag sem er gjörsamlega andsnúið öllum slíkum skrefum í friðarátt. Herstöðvaandstæðingar fleyttu kertum á Tjörninni í Reykjavík í fyrsta sinn á Hírósímadaginn 6.ágúst 1985 og hefur Samstarfshópur friðarhreyfinga skipulagt slíkar aðgerðir árlega síðan. Kertafleytingar hafa einnig verið á fleiri stöðum á landinu (meðal annars á Akureyri, Egilsstöðum og Seyðisfirði og núna í sumar líka á Ísafirði). Með fleytingum er þeirra sem létu lífið í kjarnorkuárásunum á Hírósíma og Nagasakí minnst en um leið er lögð áhersla á að slíkt megi aldrei koma fyrir aftur og er krafan um kjarnorkuvopnalausan heim yfirskrift aðgerðanna. Nýjar kynslóðir vaxa úr grasi og það er mjög mikilvægt að vitneskjan um hættuna af kjarnorkuvopnum gleymist ekki og baráttan gegn þeim haldi áfram. Á þeim sjö áratugum sem liðnir eru frá kjarnorkuárásunum á Hírósíma og Nagasaki hafa margir samningar verið gerðir um takmarkanir eða bann við kjarnorkuvopnum og tilraunum með þau þótt misjafnlega hafi gengið að framfylgja þeim. Má þar sem dæmi nefna samning um bann við kjarnorkutilraunum í gufuhvolfinu sem gerður var árið 1963, samninga um takmarkanir á eldflaugum sem geta borið kjarnavopn árið 1972 og síðan um fækkun slíkra vopna árið1993.

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.