Dagfari - okt. 2017, Side 18

Dagfari - okt. 2017, Side 18
18 undirbúningsvinnuna og sannfæra nógu mörg lönd um ágæti þessarar aðferðafræði. Árið 2015 samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að stofna undirbúningshóp og síðustu tvö árin fór samkomulagið að taka á sig mynd. Fyrr á þessu ári voru haldnar stórar ráðstefnur um málið á vegum Sameinuðu þjóðanna. Og á fundi nú um mánaðarmótin júní/júlí samþykktu 121 af 193 aðildarríkjum SÞ sáttmálann. Frá og með 20.september gefst ríkjum heims kostur á að undirrita samninginn og um leið og 50 ríki hafa gert það, verður hann fullgildur sáttmáli Sameinuðu þjóðanna og gildir fyrir viðkomandi lönd. Það verða augljóslega í fyrstu lönd sem ekki eiga kjarnorkuvopn, en ef horft er til sögunnar – eins og til dæmis samninginn gegn jarðsprengjum – þá mun þetta setja mikinn þrýsting á kjarnorkuveldin að breyta kjarnorkustefnu sinni. Það segir sína sögu að á fundinum í sumar, neituðu öll NATO-ríkin nema eitt að taka þátt. Hollendingar ákváðu að senda fulltrúa til viðræðnanna, en voru húðskammaðir af Nató og kusu því einir þjóða gegn samningnum. Það liggur fyrir að Nató gaf út þá línu að það ætti að sniðganga samninginn og allar umræður um hann. Og nú á dögunum birtu sænskir fjölmiðlar leyniskjöl um að bandaríkjastjórn hafi varað Svía eindregið við að taka þátt í viðræðunum. Nokkur Evrópulönd, s.s. Svíar, Írar, Austurríkismenn, Sviss, Malta og Kýpur samþykktu sáttmálann. Þau eiga það öll sameiginlegt að vera ekki í Nató og þurfa því ekki að undirgangast kjarnorkustefnu þess. Krafa okkar friðarsinna hlýtur að vera sú að íslensk stjórnvöld skipti um stefnu og undirriti sáttmálann tafarlaust. Með því er hugsanlegt að dregið verði úr þeirri kjarnorkuvá sem nú vofir yfir mannkyninu. -Takk fyrir. Ingibjörg Haraldsdóttir

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.