Dagfari - okt 2017, Qupperneq 19

Dagfari - okt 2017, Qupperneq 19
19 Við kaupum hjólastólalyftu! - stórátak í söfnun hlutafjár Eins og ítrekað hefur verið rakið á þessum vettvangi hafa Samtök hernaðarandstæðinga lengi litið á það sem forgangsmál að bæta aðgengismál í Friðarhúsi. Lengi vel strönduðu þó framkvæmdir á því að talið var óframkvæmanlegt, nema með svimandi kostnaði og gríðarlegum breytingum á húsnæðinu. Í sumar dró hins vegar til tíðinda í þessum málum og var pöntuð hjólastólalyfta sem vonir standa til að verði komin upp ekki síðar en í nóvember. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir alla aðstandendur Friðarhúss enda voru aðgengismálin ekki boðleg áður. Í tilefni af þessu var ákveðið að ráðast í átak til að safna nýju hlutafé í Friðarhús. Bæði meðal friðarsinna sem ekki eru í hluthafahópnum nú þegar og hinna sem fyrir eiga hlut eða hluti. Þegar þetta er ritað hafa safnast yfir 600 þúsund krónur í nýju hlutafé og styrkjum, sem er meira en þriðjungur af áætluðum kostnaði. Sjálfsagt er að hvetja þau sem geta látið af hendi renna til að veita þessu góða verkefni lið og komast jafnframt í skemmtilegan hóp í fjölmennasta einkahlutafélagi landsins: Friðarhúsi SHA ehf. Auk hlutafjársöfnunarinnar hafa Samtök hernaðarandstæðinga eyrnamerkt tiltekna fjárhæð til lyftukaupanna en vonir standa þó til þess að nýtt hlutafé fari langt með að standa undir framkvæmdinni. Lyftan mun að sjálfsögðu auka verðmæti hússins og notkunarmöguleika sem og sýna í verki ákveðin gildi. Hver hlutur er 15.000 kr. kennitala Friðarhúss er 6004042530 og reikningsnúmer er 130-26-2530. Unnt er að kaupa hlut með því að greiða inn á reikninginn í netbanka og setja nafn hluthafa í skýringu.

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.