Bæjarins besta - 28.09.2005, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20058
Er Reykjavík bara
höfuðborg Reykjavíkur?
nemi tugum milljarða króna.
Það mátti sjá í Kópavogi við
síðustu lóðaúthlutun að miklir
peningar eru í lóðunum einum
og sér. Þar nemur gróði þeirra
sem fengu úthlutað lóð líklega
eitthvað á annan milljarð
króna, sem hægt er að innleysa
síðar.
Þetta er hin raunverulega
ástæða fyrir því að menn vilja
flugvöllinn burt. En enginn
hefur ennþá haft orð á því hve
mikið af gróðanum á að verja
til þess að byggja upp nýjan
flugvöll og nauðsynlegar
samgönguframkvæmdir til
þess að landsbyggðarmenn,
þeir sem fyrst og fremst nota
þjónustu flugvallarins, verði
jafnsettir. Líklega á ríkið að
borga kostnaðinn af dæminu
en aðrir ætla að hirða gróðann.
Það er lóðið.
Reykjavíkurflugvöllur er
ákjósanlega staðsettur að
mörgu leyti. Hann er við
aðalsjúkrahús landsins og þess
vegna er ferðatími þangað í
lágmarki. Það er mikið
öryggisatriði fyrir fólk utan
höfuðborgarsvæðisins. Nú
Það er engu líkara en að
flestir borgarfulltrúar í Reykja-
vík álíti að borgin sé höfuðborg
án skuldbindinga, hafi engar
skyldur við landsbyggðina.
Það eru aðeins borgarfulltrúar
Framsóknarmanna sem halda
haus í málinu endalausa,
staðsetningu Reykjavíkurflug-
vallar.
Nú er landið í Vatnsmýrinni
orðið svo verðmætt að braskar-
arnir vilja komast í það og
græða. Ætla má að verðmætið
hefur verið ákveðið að ríkið
borgi og byggi nýjan spítala á
Landsspítalalóðinni við
Hringbraut. Það mun kosta um
40 milljarða króna. Ef flug-
völlurinn verður fluttur verður
að taka nýja ákvörðun um
staðsetningu sjúkrahússins.
Ekki verður unað við að gera
suma landsmenn að annars
flokks borgurum að þessu
leyti.
Ríkið hefur ákveðið að reisa
nýja samgöngumiðstöð við
flugvöllinn. Það er skyn-
samlegt og tengir saman
ólíkan ferðamáta. Ætla menn
að skilja samgöngumiðstöðina
eftir en færa flugvöllinn?
Hvers konar vitleysa er þetta?
Og er ekki nóg komið af
skólastarfsemi á þröngu svæði
með Háskóla Íslands á Mel-
unum?
Flugvöllurinn í Vatnsmýr-
inni hefur einnig þann kost að
þaðan er stutt í stofnanir og
verslunarmiðstöðvar og öll
íbúðahverfi á höfuðborgar-
svæðinu eru innan 15 mínútna
ferðatíma. Það verður ekki á
betra kosið og staðsetning
flugvallarins er einmitt ein
helsti kostur höfuðborgar-
svæðisins í augum þeirra sem
utan þess búa.
Þessir hagsmunir eiga að
vera ráðandi við ákvörðun um
breytingar. Þjónustuhlut-
verkið er aðalatriðið og annað
verður að víkja, vilji menn
yfirhöfuð að Reykjavík sé
höfuðborg. Nýr flugvöllur
verður að hafa sömu kosti
a.m.k. til þess að réttlætanlegt
sé að huga að flutningi vallar-
ins.
Fyrst þarf að finna nýjan
stað fyrir flugvöllinn sem
uppfyllir þessi skilyrði áður
en menn fara að efna til
hugmyndasamkeppni um
Vatnsmýrina. Það er alger
forsenda þess sem síðar á að
koma. Vonbrigðin eru hins
vegar þau að ákafamönnunum
um flutning flugvallarins er
greinilega alveg sama um
hagsmuni þeirra sem flug-
völlurinn þjónar fyrst og
fremst. Í þeirra augum eru tvær
þjóðir í landinu, aðalþjóðin og
liðið út á landi.
– Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn H. Gunnarsson.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup áttu, 25. september 2005, hjónin María
Ólafsdóttir og Gunnar Júl Egilsson í Bolungarvík.
Fjölmenni fagnaði sjötugum Birni Helgasyni
Björn Helgason íþróttakappi og fyrrverandi íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi Ísafjarðar varð sjötugur á laugardag. Af
því tilefni buðu hann og eiginkona hans, María Gísladóttir,
til veislu í sal Frímúrara á Ísafirði. Fjölmenni var þar
samankomið til þess að samfagna þeim hjónum á þessum
tímamótum. Veislustjóri var Magnús Reynir Guðmundsson
bæjarfulltrúi og æfingafélagi og keppninautur Björns í
hniti í áratugi. Gestir komu víða að enda hefur afmælis-
barnið komið víða við í félagsstörfum sínum í gegnum
tíðina. Óvæntustu gestir afmælisveislunnar voru þó án efa
systir hans Guðrún og dóttir hennar Kristjana Erin
Demereaz. Þær búa í Ástralíu og komu gagngert yfir
hnöttinn þveran til þess að heiðra afmælisbarnið og koma
því og öðrum veislugestum á óvart. Ekki fór á milli mála að
það tókst svo ekki verði sterkar að orði kveðið.
Fjölmargar ræður voru haldnar afmælisbarninu til
heiðurs og einnig skemmtu börn hans veislugestum. Meðal
annars söng Helgi sonur hans lög af væntanlegri plötu
sinni. Þorsteinn J. Tómasson ljósmyndari var að sjálfsögðu
mættur í veisluna og tók meðfylgjandi myndir.
halfdan@bb.is
Björn og eiginkona hans María Gísladóttir. Helgi tekur lagið ásamt Gunnari Hólm Sumarliðasyni.
Björn og María ásamt Helga Má Arthúrssyni sem lék
með Birni í Vestra á árum áður.
Björn og Halldór Jónsson með merki Harðar sem
Halldór færði honum í tilefni af ummælum Björns í
viðtali í BB í sumar um að hann hefði á sínum tíma ekki
fengið inngöngu í Hörð.
Dætur Björns þær Auður, Katrín, Ólöf, Harpa og
Guðbjörg skemmtu veislugestum.
Björn ásamt systkinum sínum Reyni, Björk, Guðrúnu,
Ólöfu, Guðmundi og Halldóri.
Gamlar knattspyrnuhetjur, Tryggvi Sigtryggsson, Jón
Kristmannsson og Erling Sigurlaugsson ásamt Birni.
Afmælisbarnið með Guðrúnu og Kristjönu sem komu
óvænt frá Ástralíu.
39.PM5 6.4.2017, 09:498