Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20058 Er Reykjavík bara höfuðborg Reykjavíkur? nemi tugum milljarða króna. Það mátti sjá í Kópavogi við síðustu lóðaúthlutun að miklir peningar eru í lóðunum einum og sér. Þar nemur gróði þeirra sem fengu úthlutað lóð líklega eitthvað á annan milljarð króna, sem hægt er að innleysa síðar. Þetta er hin raunverulega ástæða fyrir því að menn vilja flugvöllinn burt. En enginn hefur ennþá haft orð á því hve mikið af gróðanum á að verja til þess að byggja upp nýjan flugvöll og nauðsynlegar samgönguframkvæmdir til þess að landsbyggðarmenn, þeir sem fyrst og fremst nota þjónustu flugvallarins, verði jafnsettir. Líklega á ríkið að borga kostnaðinn af dæminu en aðrir ætla að hirða gróðann. Það er lóðið. Reykjavíkurflugvöllur er ákjósanlega staðsettur að mörgu leyti. Hann er við aðalsjúkrahús landsins og þess vegna er ferðatími þangað í lágmarki. Það er mikið öryggisatriði fyrir fólk utan höfuðborgarsvæðisins. Nú Það er engu líkara en að flestir borgarfulltrúar í Reykja- vík álíti að borgin sé höfuðborg án skuldbindinga, hafi engar skyldur við landsbyggðina. Það eru aðeins borgarfulltrúar Framsóknarmanna sem halda haus í málinu endalausa, staðsetningu Reykjavíkurflug- vallar. Nú er landið í Vatnsmýrinni orðið svo verðmætt að braskar- arnir vilja komast í það og græða. Ætla má að verðmætið hefur verið ákveðið að ríkið borgi og byggi nýjan spítala á Landsspítalalóðinni við Hringbraut. Það mun kosta um 40 milljarða króna. Ef flug- völlurinn verður fluttur verður að taka nýja ákvörðun um staðsetningu sjúkrahússins. Ekki verður unað við að gera suma landsmenn að annars flokks borgurum að þessu leyti. Ríkið hefur ákveðið að reisa nýja samgöngumiðstöð við flugvöllinn. Það er skyn- samlegt og tengir saman ólíkan ferðamáta. Ætla menn að skilja samgöngumiðstöðina eftir en færa flugvöllinn? Hvers konar vitleysa er þetta? Og er ekki nóg komið af skólastarfsemi á þröngu svæði með Háskóla Íslands á Mel- unum? Flugvöllurinn í Vatnsmýr- inni hefur einnig þann kost að þaðan er stutt í stofnanir og verslunarmiðstöðvar og öll íbúðahverfi á höfuðborgar- svæðinu eru innan 15 mínútna ferðatíma. Það verður ekki á betra kosið og staðsetning flugvallarins er einmitt ein helsti kostur höfuðborgar- svæðisins í augum þeirra sem utan þess búa. Þessir hagsmunir eiga að vera ráðandi við ákvörðun um breytingar. Þjónustuhlut- verkið er aðalatriðið og annað verður að víkja, vilji menn yfirhöfuð að Reykjavík sé höfuðborg. Nýr flugvöllur verður að hafa sömu kosti a.m.k. til þess að réttlætanlegt sé að huga að flutningi vallar- ins. Fyrst þarf að finna nýjan stað fyrir flugvöllinn sem uppfyllir þessi skilyrði áður en menn fara að efna til hugmyndasamkeppni um Vatnsmýrina. Það er alger forsenda þess sem síðar á að koma. Vonbrigðin eru hins vegar þau að ákafamönnunum um flutning flugvallarins er greinilega alveg sama um hagsmuni þeirra sem flug- völlurinn þjónar fyrst og fremst. Í þeirra augum eru tvær þjóðir í landinu, aðalþjóðin og liðið út á landi. – Kristinn H. Gunnarsson. Kristinn H. Gunnarsson. Árnað heilla Gullbrúðkaup áttu, 25. september 2005, hjónin María Ólafsdóttir og Gunnar Júl Egilsson í Bolungarvík. Fjölmenni fagnaði sjötugum Birni Helgasyni Björn Helgason íþróttakappi og fyrrverandi íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Ísafjarðar varð sjötugur á laugardag. Af því tilefni buðu hann og eiginkona hans, María Gísladóttir, til veislu í sal Frímúrara á Ísafirði. Fjölmenni var þar samankomið til þess að samfagna þeim hjónum á þessum tímamótum. Veislustjóri var Magnús Reynir Guðmundsson bæjarfulltrúi og æfingafélagi og keppninautur Björns í hniti í áratugi. Gestir komu víða að enda hefur afmælis- barnið komið víða við í félagsstörfum sínum í gegnum tíðina. Óvæntustu gestir afmælisveislunnar voru þó án efa systir hans Guðrún og dóttir hennar Kristjana Erin Demereaz. Þær búa í Ástralíu og komu gagngert yfir hnöttinn þveran til þess að heiðra afmælisbarnið og koma því og öðrum veislugestum á óvart. Ekki fór á milli mála að það tókst svo ekki verði sterkar að orði kveðið. Fjölmargar ræður voru haldnar afmælisbarninu til heiðurs og einnig skemmtu börn hans veislugestum. Meðal annars söng Helgi sonur hans lög af væntanlegri plötu sinni. Þorsteinn J. Tómasson ljósmyndari var að sjálfsögðu mættur í veisluna og tók meðfylgjandi myndir. halfdan@bb.is Björn og eiginkona hans María Gísladóttir. Helgi tekur lagið ásamt Gunnari Hólm Sumarliðasyni. Björn og María ásamt Helga Má Arthúrssyni sem lék með Birni í Vestra á árum áður. Björn og Halldór Jónsson með merki Harðar sem Halldór færði honum í tilefni af ummælum Björns í viðtali í BB í sumar um að hann hefði á sínum tíma ekki fengið inngöngu í Hörð. Dætur Björns þær Auður, Katrín, Ólöf, Harpa og Guðbjörg skemmtu veislugestum. Björn ásamt systkinum sínum Reyni, Björk, Guðrúnu, Ólöfu, Guðmundi og Halldóri. Gamlar knattspyrnuhetjur, Tryggvi Sigtryggsson, Jón Kristmannsson og Erling Sigurlaugsson ásamt Birni. Afmælisbarnið með Guðrúnu og Kristjönu sem komu óvænt frá Ástralíu. 39.PM5 6.4.2017, 09:498

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.