Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 11 pinberra starfa út á ð um árangursleysi Texti: Kristinn Her- mannsson. Ljósmyndir: Golli og Gunnar Þórðar. það er mikið í húfi fyrir ólíka landshluta og útgerðarflokka. Verður þetta ekki ljónagryfja að kasta sér út í? „Þetta er örugglega heil- mikið og erfitt verk. Ég geri mér mjög vel grein fyrir því af því ég hef starfað svo lengi við sjávarútveginn. Á því leik- ur enginn vafi að í hugum margra er ég mjög merktur maður með skoðanir sem eru mjög umdeildar og ég ætla mér ekki að vera óumdeildur sjávarútvegsráðherra. Þannig vitna ég í minn gamla félaga Matthías Bjarnason sem vildi síst láta segja um sig að hann hefði verið hvers manns hug- ljúfi – ég vona að a.m.k. að um mig verði ekki sagt að ég hafi verið hvers manns hug- ljúfi í stól sjávarútvegsráð- herra. Ég mun þurfa að taka erfiðar ákvarðanir og mun þurfa að setja fram umdeild sjónarmið og ég mun gera það. Síðustu dagar hafa verið skemmtilegir að því leyti að það má segja að þeir hafi verið kjörinn tími til að koma inn í starfið því daginn eftir að út- nefning mín var tilkynnt hófst sjávarútvegssýningin. Þar hitti ég óhemju fjölda fólks. Mér skilst að fréttin um að þessi voðalegi Vestfirðingur væri orðinn sjávarútvegsráðherra hafi farið þar um eins og eldur í sinu. Upp úr því spruttu alls konar skemmtilegar sögur um að nú væri krókamálaráðherr- ann kominn í valdastöðuna. Þannig sagði gamansamur Vestmannaeyingur við mig að nú væri ráð að draga Vest- mannaeyjar norður undir Vest- firði svo þeir ættu möguleika á að njóta afrakstursins. Suð- urnesjamaður kom til mín, og mér þótti satt best að segja mjög vænt um það, hann klappaði harkalega á bakið á mér og sagði, „ætlar þú að vera eins duglegur fyrir Suður- nesjamennina og vini þína fyr- ir vestan?” Þegar menn spyrja hvort ég ætli að vera sjávarút- vegsráðherra míns kjördæmis eða sjávarútvegsráðherra alls landsins þá er mitt svar mjög einfalt – ég ætla að vera sjáv- arútvegsráðherra, punktur!” – Er hægt að sætta sjónarmið stórútgerðarmanna eins og t.d. Þorsteins Más á Akureyri við sjónarmið smábátamanna hér og svo aftur sætta þá aðila við 39.PM5 6.4.2017, 09:4911

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.