Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.09.2005, Síða 12

Bæjarins besta - 28.09.2005, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 200512 t.d. loðnuskipstjóra á Suður- nesjum, svo eitthvað sé nefnt? „Við erum mikið nær því en áður, a.m.k. eru þessar heiftarlegu deilur á opinberum vettvangi að baki. Auðvitað er það þannig að það verða alltaf til hagsmunaárekstrar og þannig hefur það alltaf verið. Ég hef t.d. ekki setið fundi þar sem er tekist jafn harkalega á eins og þegar trillukarlar og snurvoðaskipstjórar hafa hist. Einu sinni var sagt að deilurnar hefðu jafnan verið svo harðar þegar verið var að skipta inn- fjarðarrækjukvótanum í Ísa- fjarðardjúpi að menn hefðu ekki kallað það fund fyrr en að stólar fóru að fljúga – þann- ig er ekkert nýtt að tekist sé á. Í sjávarútveginum eru á ferð- inni miklir hagsmunir og oft menn með strítt skap og ákveðnir, sem vinna við þann- ig aðstæður. Stóra málið er aftur á móti að við höfum sam- eiginlega grundvallarhags- muni og í þessari stöðu sem við erum í dag með hátt gengi og í meiri samkeppni um fólk og fjármagn við aðrar atvinnu- greinar en verið hefur, þá eiga menn fyrst og fremst að horfa til þess að ná saman um að rekstrarskilyrðin verði sem best og hins vegar að það verði friður inni í greininni og í garð greinarinnar.” Eftirlit ekki svarið við brottkasti – Hvað með brottkastið? Menn hafa verið mistilbúnir til að viðurkenna tilvist þess opinberlega en þegar rætt er við sjómenn undir fjögur þá er það venjulegur hluti starfsins. Þar að auki má segja að út frá efnahagslegum sjónarmiðum megi búast við því að menn stundi brottkast. Hver verður Gönguhópurinn sem Einar Kristinn og eiginkona hans tilheyra í Fljótavík í sumar: F.v. Einar Jónatansson, Guðrún B. Magnúsdóttir, Einar Kristinn Guðfinnsson, Sigrún J. Þórisdóttir, Kristin Hálfdánardóttir, Þorsteinn Jóhannesson, Margrét Kristín Hreinsdóttir, Anna Kristín Ásgeirsdóttir, Gisli Jón Hjaltason, Hanna Jóhannesdóttir, Andrés Kristjánsson, Flosi Jakobsson, Díana Hólmsteinsdóttir og Viðar Konráðsson. þín lína í þessu máli? „Brottkast er náttúrlega mjög alvarlegur hlutur og því miður viðgengst það í sjávar- útvegi vítt og breitt um heim- inn og einnig hér á landi. Hér hafa verið gerðar kannanir bæði á vefum Hafrannsókna- stofnunar og Gallup og það sem m.a. hefur komið í ljós er að það virðist vera samræmi í aðferðarfræði Hafró og í nið- urstöðum skoðanakönnunar Gallup. Þessar niðurstöður sýna að það er brottkast og það virðist vera mismunandi eftir tegundum og árum. Mitt svar er að við eigum ekki að bregðast við með auknu eftirliti, þvert á móti eigum við að fara ofan í þennan eftirlitsiðnað í kringum sjáv- arútveginn – hann er einfald- lega allt of dýr. Hins vegar hef ég sjálfur staðið í því með núverandi sjávarútvegsráð- herra að þróa löggjöf sem beit- ir hagfræðilegum lausnum við að draga úr brottkasti, þá á ég við hluti eins og svokallaðan Hafró kvóta og ívilnandi reglur fyrir löndun á undirmáli. Af- rakstur þessa er að það hefur augljóslega dregið úr brott- kasti og mín afstaða er að það eigi frekar að þróa svona hag- rænar lausnir sem letja menn í brottkasti heldur en að breyta sjávarútveginum í lögreglu- ríki.” – Kerfið bjó til þennan efna- hagslega hvata fyrir brottkasti á sínum tíma. „Já, það bjó til þennan hvata og með því að búa til mögu- leika á að menn geti landað 5% aflans án þess að það sé skráð í kvóta og síðan selt á markaði þannig að afrakstur- inn fari til fiskifræðilegra verk- efna, og svo líka að menn fái ívilnun ef þeir landa undir- málsfiski drögum við úr hvat- anum. Þetta eru efnahagslegar aðgerðir – hagfræðilegar að- ferðir við að draga úr tilefni til brottkasts og þetta hefur svín- virkað.” – Munt þú taka jafn hart á brottkastsmálum sama hvort lítil útgerð á Tálknafirði eða t.d. Samherji á í hlut? „Það eiga auðvitað allir Jón- ar að vera jafnir fyrir lögunum. Meðan ég var formaður sjávar- útvegsnefndar þá beitti ég mér fyrir breytingum á löggjöfinni til að búa til meiri sveigju í þessum efnum. En þegar fólk sýnir einbeittan brotavilja sem miðar að því að henda fiski úr auðlindinni okkar þá er það alvarlegur hlutur og algerlega ófyrirgefanlegur. Ég verð ekki mildur gagnvart slíkum atvik- um – það er glæpur gagnvart auðlindinni og gagnvart af- komendum okkar. Hins vegar ef menn slysast til að vera farnir framúr með fáein kíló af kola, þá held ég að menn hljóti að geta búið til aðferðir sem sýni eitthvað umburðar- lyndi í þeim efnum.” Smábátarnir sáttaleið – Þú ert of nefndur í sömu andrá og smábátaútgerð sem á síðustu árum er orðin stór at- vinnugrein á Vestfjörðum. Hvernig eru staða horfur grein- arinnar? „Smábátaútgerðin í dag, er miklu öflugari og stendur miklu styrkari fótum en sú smábátaútgerð sem var fyrir fimm árum eða tíu árum. Þær breytingar sem við höfum verið að gera, þær hafa einfald- lega verið að styrkja undir- stöðu þessarar greinar og mað- ur þarf ekki annað en að fara um t.d. í höfnum á Vestfjörð- um til að sjá að þessi útgerðar- máti er auðvitað orðinn miklu kröftugri en áður. Það hefur fækkað í sumum flokkum innan smábátaútgerðarinnar en við sjáum líka að heildar- lega er hún að eflast og er efnahagslega mikið sterkari útgerð en hún var hér áður og fyrr. Ég man vel fundi sem við vorum kallaðir á um smábáta- útgerðina, þáverandi þing- menn Vestfjarðakjördæmis, á Þingeyri 1995 en þá var í gildi svokallað banndagakerfi. Þá sagði mætur útgerðarmaður að staðan í væri einfaldlega þann- ig að þeir gætu hvorki lifað né dáið. Ef þeir héldu áfram að gera út væri rekstrargrundvöll- urinn vonlaus og ef þeir reyndu að selja dygði afraksturinn ekki fyrir skuldunum. Þær breytingar sem við höf- um framkvæmt, hafa gert það að verkum að forsendurnar fyrir útgerðinni eru mun betri en áður og við höfum jafnvel verið sakaðir um það, þing- menn sem höfum barist fyrir því að auka veiðirétt smábát- anna, að við séum að gera út- gerðarmenn þessara báta of ríka. Ég kann því mun betur að vera sakaður um að gera einhvern of ríkan en of fátæk- an.” – Þessi þróun fer ekki fram í tómi. Má færa rök fyrir því að uppgangurinn í smábátaút- gerð sé að koma öllum lands- mönnum til góða fyrir tilstilli ýmis konar tækni og aðferða 39.PM5 6.4.2017, 09:4912

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.