Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.09.2005, Page 16

Bæjarins besta - 28.09.2005, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 200516 STAKKUR SKRIFAR Leið ehf., hefur skilað árangri Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Smáauglýsingar Símapeningarnir hafa nú skilað sér og verið ráðstafað. Það er sérstakt gleðiefni að vegarlagning um Arnkötludal og Gautsdal milli Steingríms- fjarðar og Gilsfjarðar skuli hafa fengið framlag að fjárhæð 800 milljónir króna af alls 66,7 milljarða söluhagnaði Símans. Vert er að hafa í huga að Leið ehf., hefur látið fara fram mikla undirbúningsvinnu vegna vegarlagn- ingar á þessum stað. Málinu er nú svo langt komið að Skipulagsstofnun hefur veitt samþykki fyrir því að veginn megi leggja og auglýst kærufrest, vilji menn gera athugasemdir. Að sjálfsögðu eru sett nokkur skilyrði um verndun vatns og náttúru, en það verður að teljast afar merkt framtak af hálfu einkaaðila, að leggja í þessa vinnu að eigin frumkvæði. Jónas Guð- mundsson sýslumaður í Bolungarvík er mikill áhugamaður um þennan veg, sem kemur til með að verða mikil samgöngubót, bæði varðandi stytt- ingu vegalengdar og ekki síður tíma, sem það tekur að fara eftir nýjum uppbyggðum vegi. Sýslumaður hefur varið frístundum sínum vel í þágu almannahagsmuna og náð árangri sem eftir er tekið. Framtak Jónasar Guðmundssonar er til eftirbreytni fyrir þá sem hafa áhuga á því að láta gott af sér leiða. Að auki má draga þann lærdóm af því, að ekki þurfi alltaf stjórnmálamenn til að koma góðum málum til leiðar. Framtak einstaklinga í þágu almennings er virðingarvert. Vafalaust hefur Jónas látið talsvert af eigin fjármunum rakna til þessa verkefnis, sem hann hefur sinnt af mikilli kostgæfni og kynnt rækilega víða á Vestfjörðum. Það er ánægjulegt að sjá drauma manna rætast með þessum hætti. Það var lengi svo, að sýslumenn höfðu um það forgöngu að koma góðum mál- um til leiðar með oddvitastörfum sínum í sýslunefndum og bæjarstjórnum meðan sá háttur tíðkaðist. En í um það bil einn og hálfan áratug hafa þeir ekki komið að sveitarstjórnarmálum af hálfu embættisins sem þeir gegna. Þeir hafa því fengið á sig þann blæ að vera fyrst og fremst verðir ríkisins til þess að halda borgurum að löghlýðni, bæði vegna starfa sinna sem lögreglustjórar og innheimtumenn ríkissjóðs, en þeir hafa rukkað skattanna af almenningi af misjafnri hörku þó. Allt hefur þetta orðið til þess að margur úr hópi almennings hefur talið þá nokkuð fjarlæga sér og jafnvel að hagsmunir almennings og embættisins fari ekki saman. Jónas sýslu- maður hefur væntanlega með framtaki sínu átt þátt í breyta þessu viðhorfi. Jónasi er óskað til hamingju með framtakið og árangurinn. Telja má ólíklegt að svo miklu fé hefði verið veitt til vegarins hefði undirbúningi hefði ekki verið svo langt komið. Til leigu er 4ra herb. íbúð á eyr- inni á Ísafirði. Upplýsingar í síma 862 4430. Til sölu er BMV 525ix, 4x4, árg. 94, sjálfskiptur, ekinn 183 þús. km. Verð kr. 790 þús. Uppl. í síma 852 2565. Til sölu er MMC Pajero árg. 02, ekinn 60 þús. km, 1.8 l., sjálf- skiptur. Verð kr. 1.350 þús. Uppl. í síma 852 2565. Til sölu eru nýleg 33" heilsárs- dekk, ónegld. Fást á góðu verði. Uppl. í síma 895 0292. Níu vikna kisustrákur gæst gefins. Uppl. síma 867 3612. Óska eftir íbúð á leigu á Flat- eyri. Er með ketti. Uppl. í s: 869 0884. Er ráðinn á sjó á Flateyri. Vantar þig innbú. Hef til sölu svartan leðurhornsófa, 3 horn 2, og glerskáp. Í kaupbæti getur þú fengið hvíta rörhillu með glerskáp og tvö sófaborð. Uppl. í síma 847 3054. Til sölu er MMC Carisma árg. ´01, ekinn 57 þús km. Einn eigandi. Uppl. í síma 894 4032 og 854 4032. Til sölu Toyota Avensis árg. ´02. ekinn 99 þús km. Uppl. í síma 894 4032 og 854 4032. Manneskju vantar til að þrífa sameign Fjarðarstræti 6, Ísa- firði einu sinni í viku, Uppl. í síma 456 5481, Fríða. Barnavagn/kerra til sölu á 10 þús. kr. Einnig MMC Lancer Station 4x4 árg. ´94. Uppl. í síma 845 1854. 2ja mán. kettlingur kassavanur fæst gefins. Uppl. í síma 456 4469 og 845 7246. Er einhver að fara endurnýja búslóðina sína? Vantar hús- gögn gefins. Uppl. í s. 849 5035. Haustfundur Kvennadeildar SVFÍ á Ísafirði, verður haldinn miðvikud. 5. okt. kl. 20. Félags- konur fjölmennið. Stjórnin. Óska eftir rafmagnssteikar- pönnu gefins eða fyrir lítið. Uppl. í síma 846 3245. Margrét. Til sölu er MMC Pajero, dísel árg. ´99, ekinn 183 þús. km. Uppl. í síma 861 7521. Til sölu Hyundai Starex ´98. Uppl. í s: 456 3286. Tilboð óskast Tilboð óskast í bifreiðarnar: MX-738 VW-Transpotter, 4x4, pick- up, árg. 1997. DC-378 Nissan E-Cab, 4x4, pick-up, árg. 1996. Bifreiðarnar sem eru til sýnis hjá Orkubúi Vestfjarða í Syðridal í Bolungarvík seljast í því ástandi sem þær eru. Áskilur seljandi sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skila til innkaupstjóra OV, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði fyrir kl. 14:00 mið- vikudaginn 5. október nk. – beislað náttúruafl Óvenjuleg slagsmál áttu sér stað fyrir utan heimili í Dýra- firði á dögunum er heimilis- ketti lenti saman við tófu. „Ég var að kalla á kisu inn fyrir nóttina og þá svaraði mér grimmilegt urr úr runna skammt frá dyrunum. Þar var kötturinn eins og blöðruselur uppblásinn af illsku og stressi og hafði króað af tófu. Senni- lega hefur þarna verið um að ræða yrðling frá því í sumar en hann var orðinn fullvaxinn. Ég laumaðist til að ná í hagla- byssu og aflífaði kvikindið“, segir Sæmundur Þorvaldsson húseigandi. Aðspurður segir Sæmundur að töluvert hafi verið um tófu á svæðinu í sumar þegar varpið stóð sem hæst en hann hafi ekki orðið var við hana undan- farið. „Hún hefur ekki verið fjær dyrunum en þrjá metra. Þegar ég kannaði köttinn nánar sá ég að það var blóð á honum svo þeim hefur lent eitthvað saman en kisan haft betur“, segir Sæmundur. Heimilisköttur varði heimili sitt Nokkuð er af laxi í litlum drullupolli í Engidal í Skutulsfirði sem skapast hefur við jarðrask, en vinnuvélar eru nú að störfum á svæðinu. Í gegnum pollinn rennur á og er sem fiskurinn gangi upp hana á flæði. Grétar Jónasson varð var við fiskinn þegar hann var ásamt börnum sínum að leik á svæðinu. „Ég var bara að leika mér með krökkunum og var ekkert sérstaklega að reyna að veiða þegar ég sá fiskinn. Það var rosalega mikið af honum. Svo kíkti ég aftur í gær og þá voru þar þrír stórir laxar“, segir Grétar. Hann segir að laxinn hafi ekki tekið í pollinum, en það hafi 7 vænar bleikjur aftur á móti gert. – halfdan@bb.is Gjöfull drullupollur Nokkuð er af fiski í pollinum. Mynd: Grétar Sigurðsson. Teikningar tilbúnar um mánaðamót Áætlað er að framkvæmdir við að gera Norðurtangahúsið á Ísafirði að fjölbýlishúsi hefj- ist upp úr mánaðamótum. „Verið er að vinna að undir- búningi að uppbyggingu húss- ins og úttektum á tækjum og tólum sem þar eru inni. Teikn- ingar verða væntanlegar til- búnar um mánaðamótin og verður hafist handa við fram- kvæmdir um leið og þær fást samþykktar af bænum“, segir Guðni Geir Jóhannesson, eig- andi hússins. Fyrsti áfangi framkvæmd- anna felst í gerð 12 íbúða að stærð frá 90 fermetrum upp í 110 fermetra ásamt bílageym- slu fyrir 12 bifreiðir. Þá segir Guðni að töluverður áhugi sé nú þegar fyrir íbúðunum. „Fólk hefur mikið spurt um íbúðirnar og óskað eftir því að fá að sjá teikningar. Ferlið hef- ur tekið langan tíma en það er eðlilegt þegar ráðist er í svo miklar framkvæmdir“, segir Guðni Geir. Um er að ræða eystra Norð- urtangahúsið sem stendur við Sundstræti 36 en það er 2.800 fermetra iðnaðarhúsnæði sem var byggt upp af Hraðfrysti- húsinu Norðurtanganum hf. en hlaut úreldingu sem fisk- vinnsluhúsnæði og komst þannig í eigu Þróunarsjóðs sjávarútvegsins árið 1997. Síðan hefur húsið staðið ónot- að og skipt nokkrum sinnum um eigendur. – thelma@bb.is Sundstræti 36 á Ísafirði. Áskrift að BB borgar sig! Hvítasunnukirkjan Salem: Samkoma á sunnudaginn kl:16:30 Söngur, bæn, Tinna Arnórsdóttir prédikar, Fyrirbænir. Vertu velkomin/n. Kirkjustarf 39.PM5 6.4.2017, 09:4916

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.