Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 18

Bæjarins besta - 28.09.2005, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 200518 mannlífið Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Í dag er miðvikudagurinn 28. sept., 273. dagur ársins 2005 Þennan dag árið1943 gáfu Haraldur Böðvarsson og kona hans, Akraneskaupstað nýbyggt kvikmynda- og hljómleikahús sem tók 377 manns í sæti.. Þennan dag árið 1988 tók ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar, sú önnur undir forsæti hans, við völdum. Að stjórninni stóðu Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag. Rúmu ári síðar bættist Borgara- flokkurinn við og stjórnin sat til aprílloka 1991. Þennan dag árið 1988 var minnisvarði um Ragnar H. Ragnar (1898-1987) afhjúpaður á Ísafirði, en þennan dag hefði Ragnar orðið níræður. Ragnar H. var skóla- stjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar í 36 ár. Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Hvað er að frétta? · Sigurþór Hallbjörnsson (Spessi) ljósmyndari Á þessum degi fyrir 65 árum ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Helgarveðrið Horfur á fimmtudag: Snýst í austanátt og fer að rigna sunnanlands seinni partinn. Hlýnandi veður. Horfur á föstudag: Norðanátt og væta, en þurrt að kalla suðvestantil. Hiti 2 til 8 stig. Horfur á laugardag: Hægviðri og víða bjart veður, en gengur í sunnanátt með rigningu síðdegis, fyrst vestanlands. Horfur á sunnudag: Vestlæg átt og skúrir eða él, en bjartviðri austanlands. Spurning vikunnar Er það sveitarfélögum á Vestfjörðum til góðs að reka Fjórðungssamband? Alls svöruðu 502. – Já sögðu 198 eða 39% – Nei sögðu 176 eða 35% – Veit ekki sögðu 128 eða 26% Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Keyrt á Harley Davidson inn í stofu Eins og kunnugt er standa yfir samningar milli íslensku stjórnarinnar og bresku stjórnarinnar um loftskeytatæki í ís- lenskum fiskiskipum og notkun þeirra. Íslenska ríkisstjórnin gerir vitanlega allt sem í hennar valdi stendur að fylgja málinu eins fast fram og frekast er unnt, til þess að sjómenn fái framvegis sem hingað til notið þess ör- yggis og þeirrar aðstoðar, sem loftskeytatækin geta veitt. Það eru ekki einasta sjómennirnir sjálfir og aðstandendur þeirra, heldur öll þjóðin sem einn maður, er óskar þess heitt og eindregið að þessi tæki fái að vera í notkun í skipunum, ekki síst nú, þegar ofan á ófriðarhættuna bætist vetrarmyrkrið.[…] Nokkur skip eru komin hingað frá Englandi loftskeytatækja- laus, og voru tækin tekin úr skipunum samkvæmt skipun flota- málaráðuneytisins. Breski flotinn vill loftskeyta- tæki úr íslenskum togurum Hópurinn frá Veraldarvinum ásamt Sæmundi Þorvaldssyni í lokahófinu. Myndir: Þorsteinn J. Tómasson. Veraldarvinir kvaddir á Þingeyri Hópur sjálfboðaliða frá samtökunum Veraldarvinum starfaði í Dýrafirði nú í lok sumars. Þeir unnu ýmis störf fyrir Skógræktarfélag Dýra- fjarðar og hjálpuðu einnig til á víkingasvæðinu sem verið er að byggja upp á Þingeyrar- odda. Þingeyringar tóku er- lendu gestunum vel og héldu þeim lokahóf áður en þeir sneru til síns heima til að þakka þeim fyrir vel unnin störf. „Nokkrir bæjarbúar komu saman og boðuðu til lokahófs til að þakka ungmennunum fyrir alþjóðlegt kvöld sem þeir buðu Dýrfirðingum til á með- an dvöl þeirra hér stóð. Uppá- koman var einnig leið Þing- eyringa til að þakka sjálfboða- liðunum fyrir störf þeirra. Kvöldið lánaðist ágætlega. Fjöldi manns kom til að kveðja ungmennin og það var sungið, spilað og sprellað“, segir Sæ- mundur Þorvaldsson, hjá Skjólskógum á Þingeyri sem kynntist ungmennunum í gegnum störf þeirra. „Þau dvöldu í Dýrafirði í hálfan mánuð og virtust mjög ánægð. Þetta var góður og dug- legur hópur sem lét sér ekki leiðast. Þau fóru t.d. í skoð- unarferðir um allt svæðið. Starf samtakanna snýst ekki eingöngu um að vernda nátt- úruna heldur einnig að þátt- takendurnir kynnist því sam- félagi sem þeir heimsækja. Þannig kynnast þeir ólíkri menningu og oft kynþáttum.“ Samtökin Veraldarvinir buðu upp á vinnubúðir í yfir 120 löndum um allan heim í sumar. Auk Íslands gátu ver- aldarvinir farið meðal annars í vinnubúðir til Grikklands þar sem unnið var að endurgerð forna mannvirkja og hlúð að verndun skjaldbaka í Costa Rica. Markmið samtakanna er að senda ungmenni frá 16-20 ára aldri víðs vegar um heim til að vinna að hverju því sem fellur undir umhverfismál. Þannig gefst þátttakendum tækifæri á til að láta gott af sé leiða um leið og þau kynnast nýjum löndum. Vinnubúðirnar eru starfræktar í samstarfi við ríki, sveitarfélög, frjáls félaga- samtök og fyrirtæki. Þá heim- sóttu þrír aðrir hópar frá Ver- aldarvinum norðanverða Vest- firði og störfuðu á Ísafirði, Flateyri og Bolungarvík. Einn- ig var hópur á vegum samtak- anna í Súðavík síðasta sumar. Í kveðjuhófinu var sungið og sprellað. „Af mér eru þau stórtíð- indi að segja frá að ég var að kaupa mér Harley Da- vidson mótorhjól. Það stóð alltaf til að kaupa mér Har- ley Davidson en ég átti tvö japönsk hjól áður sem voru svona hálfgerðir „chopper- ar“. Fyrir fimmtán ára ákvað ég að hætta með mótorhjól þar til ég væri búinn að fá mér Harley Davidson. Draumurinn var að búa í verksmiðjuhúsnæði og geta keyrt á hjólinu beint inn í stofu. Ég hef búið í slíku húsnæði í fimm ár núna en var að selja og er að fara flytja í venjulegt hús svo ég varð að drífa það af að kaupa Harley Davidson. Það er nauðsynlegt að láta draumana rætast. Að standa við þau loforð sem maður gefur sjálfum sér. Ég er að flytja úr Kópa- voginum yfir í Reykjavík. Ég er líka að vinna að nýrri bók sem ég býst við að komi út í febrúar. Hún geng- ur undir vinnuheitinu „Lo- cation“ og ætli það verði ekki titilinn.“ 39.PM5 6.4.2017, 09:4918

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.