Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 15.01.2003, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 maður vikunnar Nafn: Magnús Hávarðarson. Fædd/-ur, hvar og hvenær: Í Bolungarvík 5.11.1962. Atvinna: Rek tölvu- og ráðgjafarfyrirtækið Netheima ehf., á Ísafirði í félagi við vin minn og frænda Larus G. Valdimarsson. Fjölskylda: Konan mín er Guðný Sóley Kristinsdótt- ir, förðunar- og snyrtifræðingur. Við eigum einn strák, Magnús Orra Magnússon, 4 ára. Helstu áhugamál: Tölvu- og upplýsingatækni hefur verið mitt aðal áhugamál á undanförnum árum, en fast þar á eftir eru gítarleikarinn og veiðimaðurinn. Bifreið: Mitsubishi Pajero Sport. Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Ég vildi helst geta verið án bíls – og ef til vill fer sú stund að renna upp. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill? Ég man það nú ekki svo glöggt. Gítarleikarinn var mér ofarlega í huga og einnig skipstjórinn. Uppáhalds matur? Hann fer eftir árstímum. Eftir all- ar jólasteikurnar er jólamatur ekki í uppáhaldi hjá mér núna, en hins vegar hlakka ég til Þorrans. Þegar vorar fer mann að langa í grillmat o.s.frv. Versti matur sem þú hefur smakkað? Það er nú það. Ég held ég hafi aldrei smakkað það vondan mat að ég geti notað svo afgerandi lýsingarorð um hann. Uppáhalds drykkur? Ef við eigum að leggja mat á drykk út frá innbirtu magni, þá er það kaffi. Vatnið er nú líka alltaf gott. Uppáhalds tónlist? Þessi er erfið vegna þess að ég er alæta á tónlist. Joe Cocker hefur lengi verið minn maður og Lynard Skynard var frábær hljómsveit sem hafði mikil áhrif á mig. Við eignumst aldrei annan Freddie Mercury, svo eru það Stones og Lennon. Í dag eru það Mugison og Norah Jones sem heilla. Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Held með öll- um sem spila í gömlu Arsenal búningunum. Það voru nefnilega búningarnir sem við púkarnir í UMFB lékum í sællar minningar. Uppáhalds sjónvarpsefni? Síðan ég fór að sjá Skjá einn, þá er Silfur Egils í uppáhaldi. Það er ein- staklega frískandi að sjá og heyra fleiri tjá sig um pólitík en Þorgerði Katrínu og hennar líka, en svo virðist sem það lið sé orðið hluti af föstum dagskrár- liðum í RÚV og Stöð 2. Uppáhalds vefsíðan? Oftast fer ég inn á bb.is, en síðan eru það fullt af tæknitengdum síðum sem heilla mig. Oft er líka vefurinn sem ég er að vinna í hverju sinni í uppáhaldi. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Ég horfi mjög mikið á barnamyndir með stráknum mínum og margar af þeim eru meðal bestu mynda sem ég hef séð. Ég vil nefna Toy Story, Tarzan og Shrek. Fallegasti staður hérlendis? Vatnasvæði Laxár í Mývatnssveit. Fallegasti staður erlendis? Smábær í Maine sem við konan heimsóttum fyrir löngu síðan. Ertu hjátrúarfull(ur)? Já, alveg örugglega. Ég segi stundum 7,9,13. Eins held ég að ég myndi ekki velja grásleppuna ef varpa ætti hlutkesti. Uppáhalds heimilistækið? Sjónvarpið. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Það er að vera við veiðar með flugustöng við ársprænu. Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna? Klíkur, mafíur og aðrar hringamyndanir og það þegar hagsmunum fólksins er skipt út fyrir flokkspólitík og eiginhagsmuni. Eins fer hugmyndafræðilegt gjaldþrot ákveðinna einstaklinga, sem þó hafa sig mikið í frammi, afskaplega í taugarnar á mér. Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Mínar bestu stundir eru þegar ég get verið með fjölskyldunni og við höfum það notalegt saman. Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt- ast? Já. Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í? Það neyðarlegasta sem ég hef lent í er að þrufa að horfa upp á sorglegar og síendurteknar tilraunir ákveðinna afla við að sannfæra fólk um eitthvað sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú breyta? Á Ísafirði vantar leiguhúsnæði og dagvist- un í leikskólum. Þar myndi ég beita mér fyrst, því öðruvísi getum við ekki tekið á móti nýjum íbúum sem flestir sækjast eftir búsetu á Ísafirði. Lífsmottó?Heiðarleiki og hreinskilni. Joe Cocker hefur lengi verið minn maður! Sælkerar vikunnar Eru Emma Rafnsdóttir og Páll Sturlaugsson á Ísafirði Önd með ávaxta- fyllingu (fyrir 4-5) Nú þegar jólahátíðin er yfirstaðin er kominn tími til að leita í frystikystunni hvort þar sé ekki einhver veiðibráðin síðan í haust. Vísareikningurinn er kominn svo að maður heldur að sér höndum með innkaup. Við erum hér með upp- skrift að appelsínuönd með ofnsteiktum kartöflum og vonum að ykkur líki hún. Og svo peruböku í eftirrétt. Verði ykkur að góðu! 2 endur salt, pipar timian 2 appelsínur 2 súr epli 1 lítill laukur 8 sneiðar beikon 3 dl portvín (eða vatn) Sósa: 2 msk hveiti safi úr 1 appelsínu safi úr 1 sítrónu portvín salt, pipar Nuddið hluta af kryddblöndunni innan í fuglana. Saxið ávextina smátt með berki og hýði ásamt lauk. Fyllið fuglana með ávöxtum og setjið afganginn í ofnskúffuna ásamt port- víni (eða vatni). Stráið kryddi utan á fuglana, leggið beikon- sneiðarnar yfir bringurnar og setjið á rist yfir ofnskúffuna. Steikið í u.þ.b. 1 klst. og ausið öðru hverju úr ofnskúffunni. Takið beikonsneiðarnar af og steikið áfram í 20 mínútur. Veiðið fituna ofan af vökvanum í skúffunni og hellið soðinu í pott. Látið suðuna koma upp og jafnið með hveitinu sem hrært hefur verið með appelsínu- og sítrónusafa. Látið sjóða. Bragðbætið með portvíni og kryddi. Skreytið með appelsínusneiðum og steinselju. Ofnsteiktar kartöflur 8-9 meðalstórar kartöflur 100 g smjör, brætt 1 tsk timian 1 tsk savory 1 tsk salt ½ tsk svartur pipar Afhýðið kartöflurnar og skerið í þunnar sneiðar. Þerrið með eldhúspappír ef með þarf. Hitið ofninn í 225°C. Blandið saman smjöri og kryddi og veltið kartöflunum upp úr blönd- unni. Leggið þær í eldfast mót og steikið í u.þ.b. 30 mín. Kartöflurnar eiga að vera fallega brúnar og stökkar að utan en mjúkar að innan. Perubaka Deig: 250 g hveiti 125 g sykur 125 g smjör 3 eggjarauður 1-2 möndludropar 125 g malaðar möndlur Fylling: 2-3 þroskaðar perur 1 msk sykur safi og rifið hýði af ½ appelsínu 2 msk Armagnac 1 eggjahvíta 1 msk perlusykur Hnoðið deigið og geymið í kæli í 1 klst. Afhýðið perurnar, fjarlægið kjarnana og skerið þær í fjóra báta. Setjið bátana í skál og stráið sykri, appelsínusafa, hýði og víni yfir. Látið standa í 30 mín. Hitið ofninn í 190°C, fletjið út einn þriðja hluta deigsins með sama þvermáli og hringurinn sem baka skal í. Fletjið það sem eftir er af deiginu og klæðið hringmót að innan með því. Látið drjúpa vel af perunum og geymið safann. Raðið perubátunum í mótið með mjóa endann inn að miðju og leggið deiglokið yfir. Þrýstið deigbrúnunum vel saman. Bakið á neðstu rim í 35-40 mín. Takið bökuna úr ofninum 5 mín áður en bökunartíminn er búinn, penslið hana með léttþeyttri eggjahvítu og stráið perlusykri yfir. Bakið áfram í 5 mín. Látið bökuna kólna og takið hana úr mótinu. Berið fram með léttþeyttum rjóma. Verði ykkur að góðu! Við skorum á Þórunni Pálsdóttur og Hermann Jón Hall- dórsson, Urðarvegi 80 á Ísafirði að koma með næstu upp- skrift. Þau eru miklir matgæðingar og gaman að koma til þeirra í mat. Kvikmyndin Þriðja nafnið frumsýnd Íslenska kvikmyndin Þriðja nafnið eftir Einar Þór Gunnlaugsson var frumsýnd í Ísafjarðarbíói á fimmtudag í síðustu viku. Það er ekki á hverjum degi sem fullburða kvikmyndir eru frumsýndar utan Reykjavíkur og gerðu sýn- ingargestir góðan róm að þessarri nýjustu afurð íslenskrar kvikmynda- gerðar. Aðstandendur myndarinnar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og flagga mynd- inni strax á eftir njósnara hennar hátignar 007 og öðr- um hluta Hringadróttinssögu í Ísafjarðarbíói. Einar Þór segir að frumsýningin hafi heppnast vel og kvöldið verið mjög skemmtilegt. Segir hann engin tæknileg vandkvæði hafa komið upp og hljóð og mynd runnið vel í gegn. „Þetta var fyrst og fremst skemmtilegt, það er alltaf mikil stemmning á frumsýningu og gaman að sjá alla sem komu að sam- fagna okkur“, segir Einar Þór. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús á höfuð- borgarsvæðinu um næstu mánaðamót. Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður og Eiríkur Finnur Greipsson ræðast við á frumsýningunni. 02.PM5 18.4.2017, 10:146

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.