Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Síða 7

Bæjarins besta - 15.01.2003, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 7 Fossavatnsgangan á Ísafirði Kynnt á erlendum vettvangi Göngunefnd Skíðafélags Ísfirðinga hefur látið útbúa kynningarbækling um hina árlegu Fossavatnsgöngu á ensku, þýsku, frönsku og norsku. Honum er ætlað að veita erlendu skíðafólki og skíðaáhugafólki helstu upp- lýsingar um þessa elstu al- menningsgöngu á Íslandi, en fyrst var efnt til hennar árið 1935. Þótt Fossavatnsgangan fyrsta laugardag í maí sé jafnan fjölmennasta skíða- göngumót hvers árs hér- lendis, þá hafa menn lengi menn velt því fyrir sér hvort ekki mætti gera enn betur. Hefur þá verið horft til þess að fjölga bæði íslenskum og erlendum þátttakendum og gera gönguna að verulega stórum viðburði, ekki aðeins í bæjarlífinu hér vestra heldur í íþróttalífi landsmanna. Með útgáfu og dreifingu þessa bæklings, sem prentað- ur er hjá H-prenti á Ísafirði, er kynningarstarf á erlendri grundu hafið. Hann er kynntur á stórri ferðakaupstefnu sem hófst í Bern í Sviss í síðustu viku. Einnig verður honum komið á framfæri á ferðakaup- stefnu í Þýskalandi í lok mán- aðarins. Þá verður honum dreift til aðila í ferðaþjónustu og skíðagönguforkólfa í Evr- ópu og Ameríku, meðal ann- ars með aðstoð Skíðasam- bands Íslands sem hefur boð- ist til að veita Skíðafélagi Ís- firðinga liðsinni sitt við þetta kynningarverkefni. Í bæklingnum er margvís- legur fróðleikur um Fossa- vatnsgönguna fyrr og nú. Sagt er frá Kristjáni Rafni Guð- mundssyni, sem sigraði tólf sinnum á sjöunda og áttunda áratug liðinnar aldar eða oftar en nokkur annar og er enn meðal tíu fyrstu á hverju ári. Þekktastur þeirra sem komið hafa við sögu Fossavatns- göngunnar er þó Norðmaður- inn Pål Gunnar Mikkelsplass. Hann gekk árið 1985 en lenti í öðru sæti, einni sekúndu á eftir bróður sínum Eileif Mikkelsplass sem á besta tím- ann í Fossavatnsgöngunni fyrr og síðar. Erlendum ferðalöngum er sagt til vegar til Ísafjarðar allt frá því að þeir koma í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Ísafirði sjálfum eru gerð nokk- ur skil en gönguleiðinni er lýst með afar skilmerkilegum hætti ásamt því sem kort er af henni. Á næstu vikum mun heimasíða Fossavatnsgöng- unnar, sem fengið hefur hina „útlendingavænu“ slóð fossavatn.com, jafn- framt taka nokkrum breyt- ingum og vera gerð að- gengileg á ýmsum erlend- um tungumálum. Forsíða Fossavatnsbæklingsins á norsku, ensku, þýsku og frönsku. Hundahreinsun á Ísafirði Árlegur samkvæm- isdagur hundanna Árleg hundahreinsun í Ísafjarðarbæ fór fram í Áhaldahúsinu við Stakka- nes á Ísafirði undir lok síð- ustu viku og voru allir skráðir hundar bæjarins boðaðir á staðinn. Sig- ríður I. Sigurjónsdóttir dýralæknir á Ísafirði sagði að hreinsunin hefði gengið vel og mætingin verið góð. Vildi hún brýna fyrir hundaeigendum sem hafa þó ekki komið með hunda sína til hreinsunar að setja sig í samband við hana svo að hægt sé að gefa þeim ormalyf. Hreinsunardag- urinn er eitt helsta sam- kvæmi hunda á Ísafirði og gat þar að líta mörg kunn- ugleg trýni. Tiger var mjög hress og sýndi villta takta þar sem hann snerist í kringum Sverri eiganda sinn. Nonni frá Hnífsdal var mættur og tók orma- lyfinu af sínu alkunna jafnlyndi. Sama má segja um tíkina Týru enda var hún að koma í 10. skiptið og því öllu vön. Tíkin Gríma er gamalreynd kempa af Seljalandsvegin- um og beitti útsmognum brögðum til að komast hjá því að gleypa ormatöfluna. Sverrir og Tiger fylgjast með öðrum hundum renna í hlaðið. Sigríður dýralæknir og Brynhildur Halldórsdóttir taka Grímu fastatökum. Tónlistarskóli Ísafjarðar Metaðsókn í söngnám kallar á nýbreytni Áhugi á söngnámi hefur farið vaxandi á Ísafirði á síðustu árum og biðlisti fyrir slíkt nám er orðinn mjög langur. Nú er verið að end- urskipuleggja söngnámið í Tónlistarskóla Ísafjarðar með það í huga að fleiri komist að. „Margir hafa áhuga á að læra grundvallaratriði í raddbeitingu og söng án þess að ætla endilega að verða söngvarar“, segir Sig- ríður Ragnarsdóttir skóla- stjóri. Til að fækka nem- endum á biðlista hefur verið stofnuð sérstök undirbún- ingsdeild fyrir söngnemendur á grunnstigi en einnig verður boðið upp á unglingadeild. Kennsla þessi mun fara fram í hóptímum. Það er Ingunn Ósk Sturludóttir söngkona sem ber hitann og þungann af undir- búningi þessara nýju náms- möguleika. Starfið í Tónlistarskóla Ísa- fjarðar er mjög öflugt um þessar mundir. Um 300 nem- endur verða við nám á nýrri önn en skólinn rekur nú fjögur útibú. Eitt þeirra er í Súðavík þar sem Rúna Esradóttir er útibússtjóri, annað á Suður- eyri undir stjórn Lech Szyzko, hið þriðja á Flateyri þar sem Vadim Fjodorov leiðir starf- semina og fjórða útibúið er á Þingeyri þar sem Zbigni- ew Jaremko er útibússtjóri. Aðsókn að skólanum er almennt mjög góð. Mest er sótt í píanónám sem fyrr en fast á eftir kemur nám í gít- arleik en þar hefur nú mynd- ast biðlisti. Auk hinnar hefðbundu kennslu í hljóð- færaleik fer fram umfangs- mikil hópkennsla á vegum skólans. Meðal annars held- ur hann úti kórum, strengja- veit og blásaradeild í sam- vinnu við Grunnskólann. Atvinnuástand á landinu hefur verið með erfiðara móti undanfarna mánuði og fréttir borist af fjöldaupp- sögnum hjá stórum fyrir- tækjum. Hjá Svæðisvinnu- miðlun Vestfjarða voru í síð- ustu viku 95 atvinnuleitend- ur á skrá, þar af 87 atvinnu- lausir og á bótum. „Það hefur verið hægfara aukning í atvinnuleysi á okkar svæði en engir stórir skellir. Við erum samt sem áður einna lægst á landsvísu“, sagði Guðrún Stella Gissurar- dóttir, forstöðumaður Svæðis- vinnumiðlunar Vestfjarða. Færri störf munu vera í boði á svæðinu en verið hefur. „Undanfarin ár hefur eftir- spurn eftir vinnuafli verið meiri en framboð og þess vegna hafa atvinnurekendur litið mikið til erlends vinnu- afls en núna eru færri störf í boði“, segir Guðrún Stella. Helst mun atvinnuleysi hafa verið að aukast á þétt- býlisstöðunum á norðan- verðum Vestfjörðum. „Þetta er breyting því að áður var atvinnuleysið mest í jaðar- byggðum. Núna er atvinnu- leysið þar sem fólk er flest“, segir Guðrún Stella. Meira atvinnuleysi í þéttbýli á norðanverðum Vestfjörðum Atvinnuástand á Vestfjörðum fer heldur versnandi Tónlistarskóli Ísafjarðar. 02.PM5 18.4.2017, 10:147

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.