Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 16

Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk Stuttar af bb.is Tilkynnt var um tvo búð- arþjófnaði til lögreglunn- ar á Ísafirði í síðustu viku. Annar þjófnaðurinn átti sér stað í verslun Samkaupa en hinn í verslun Bónuss. Aðilar þeir sem hér áttu hlut að máli teljast til fullorðinna eða eru yfir þrítugu. Að- faranótt laugardags var óskað eftir aðstoð lög- reglunnar vegna manns er hafði neytt áfengis í of miklum mæli. Hann var ósjálfbjarga og þurfti að- stoðar við til að komast í náttstað. Tvö óhöpp í umferðinni Tilkynnt var um tvö um- ferðaróhöpp til Ísafjarð- arlögreglu í liðinni viku. Annað óhappið varð á þrettándanum þegar bif- reið rann út af veginum í Hnífsdal, skammt frá Skarfaskeri. Bifreiðin hafnaði í flæðarmálinu en valt ekki. Ökumaður var einn og sakaði hann ekki. Hitt óhappið varð við brúna á Heydalsá í Mjóafirði eins og nánar er greint frá annars staðar í blaðinu. Trassa að láta skoða Lögreglan á Ísafirði kærði í liðinni viku sjö ökumenn þar sem þeir höfðu ekið yfir leyfilegum hámarkshraða. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Vestfjarðagöngum, en þar er eins og kunnugt er 60 km hámarkshraði. Eftir þessa viku mega 18 bifreiðaeigendur búast við sektum fyrir að hafa ekki fært bifreiðar sínar til lögbundinnar skoðun- ar. Bifreiðaeigendur eru hvattir til að trassa ekki þennan mikilvæga þátt, en töluverður kostnaður getur hlotist af brotum sem þessum. Stolið úr verslunum Verslunin Bónus er til húsa í Ljóninu á Skeiði. Skíðavikan Gestir bóka sig þrátt fyr- ir snjóleysið Aðdáendur Skíðavik- unnar á Ísafirði láta ekki snjóleysið slá sig út af lag- inu og eru þegar farnir að bóka hótelgistingu og gera aðrar ráðstafanir. Að sögn Gunnars Þórðarsonar hjá Vesturferðum er fólk byrj- að að hringja varðandi um gistingu og annað um páskana. Undirbúningur Skíða- vikunnar er að komast á skrið og ljóst að mikið verður um nýja atburði og afþreyingu. Þótt skíða- menn megi horfa upp á golfara iðka sína íþrótt á skíðabrautunum í Tungu- dal eru þeir ekki enn farnir að örvænta og spá góðri skíðatíð síðla vetrar. Kristín Gísladóttir, móðir Ólafs Th. Árnasonar, Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar 2002 og Katrín systir hans tóku við viður- kenningunum. Á milli þeirra er Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2002 útnefndur Ólafur Th. Árnason kjörinn Íþróttamaður Ísafjarðarbæj- ar árið 2002 var útnefndur í hófi í Stjórnsýsluhúsinu á sunnudag. Að þessu sinni var valinn Ólafur Th. Árnason, skíðagöngumaður á Ísafirði, en hann átti miklu gengi að fagna á árinu. Þetta er í annað sinn sem Ólafur hlýtur þessa viðurkenningu en hann var einnig Íþróttamaður Ísafjarð- arbæjar árið 1999. Ellefu íþróttamenn voru til- nefndir af aðildarfélögum HSV og hlutu þeir allir viður- kenningu. Einnig hlaut Lárus Daníelsson sem keppir utan félaga viðurkenningu en hann sigraði á Þrekmeistaramóti Ís- lands á síðasta ári. Auk Ólafs Th. Árnasonar fengu fjórir íþróttamenn styrk úr Afreks- og styrktarsjóði Ísafjarðar- bæjar og nam hann 100.000 krónum fyrir hvert þeirra. Ólafur er staddur við æf- ingar í Noregi og gat því ekki tekið við útnefningunni. Fyrir hans hönd komu Katrín Árna- dóttir, systir hans, og Kristín Gísladóttir, móðir hans, og tóku við útnefningunnni og því sem henni fylgdi úr hendi Birnu Lárusdóttur forseta bæj- arstjórnar. Sjá nánar á bls. 13. Farþegum fjölgar jafnt og þétt í Ísafjarðarflugi Flugfélags Íslands Heildarfjöldi farþega í Ísa- fjarðarflugi Flugfélags Íslands var rétt um 40 þúsund á ný- liðnu ári. Það er um 500 far- þegum færra en árið áður en sú fækkun um rúmlega eitt prósent segir hvergi nærri alla söguna. Fyrstu mánuðir ársins 2002 voru mun lakari en árið áður en hlutirnir snerust þegar á árið leið og síðasti þriðj- ungur ársins var langtum betri en árið áður. „Við stefnum að aukningu í ár“, segir Arnór Jónatansson, stöðvarstjóri Flugfélags Íslands á Ísafirði, og segir horfurnar nú í árs- byrjun miklu betri en á sama tíma í fyrra. Aðspurður hvort snjóleysið og góð færð á landi hafi ekki valdið því að fleiri en ella hafi ekið á milli í vetur í stað þess að fljúga telur Arnór svo ekki vera. „Jól og áramót voru mjög góð hjá okkur, bæði hvað far- þegafjölda snertir og flugið sjálft. Ég held að fólk keyri ekki eins mikið á milli og áður, sakir þess hversu tryggt flugið hefur verið og vegna þeirra lágu fargjalda sem nú eru í boði“, segir Arnór. Tíðarfarið hefur leikið við Ísafjarðarflugið í allan vetur eins og áður hefur komið fram. Í desember og það sem af er janúar er verulegur munur milli ára hvað áreiðanleika í fluginu varðar. Síðast var ófært á Ísafirði fyrri hluta dags þann 19. desember og í öllum mánuðinum féll flug niður einn heilan dag og fimm hálfa. Árið áður voru sjö heilir dagar og tólf hálfir ófærir í desem- ber. Arnór segir að nýliðinn desember sé að þessu leyti sá besti í að minnsta kosti áratug og það sem af er nýja árinu hefur einnig verið „glymjandi fært“ alla daga. Ísafjarðarflugvöllur. Stefnt að aukningu í ár Hjördís og Heiðar Ingi. Fá 200 þús. kr. styrki Bæjarstjórn Ísafjarðar- bæjar samþykkti á fundi sínum á fimmtudag í síð- ustu viku að veita sérstakt 200 þúsund króna framlag til Afreks- og styrktar- sjóðs Ísafjarðarbæjar til stuðnings þeim Hjördísi Ernu Ólafsdóttur og Heið- ari Inga Marinóssyni, sem valin hafa verið í íslenska Ólympíuhópinn. Tillagan um áðurnefnt framlag Ísafjarðarbæjar kom frá meirihluta bæjar- stjórnar en allir bæjarfull- trúar greiddu henni at- kvæði sitt. Enda þótt 25 íþróttamenn hafi verið valdir í Ólympíuhópinn er ekkert ákveðið um það hverjir fara þegar þar að kemur. Það ræðst af því hvernig frammistaðan verður þegar nær dregur og skiptir því miklu að hafa góðar aðstæður til æfinga og undirbúnings. Ísafjarðarbær 02.PM5 18.4.2017, 10:1416

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.