Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.08.2003, Síða 11

Bæjarins besta - 20.08.2003, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2003 11Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Tekjur Vestfirðinga úr 2. sæti í 5. síðasta áratug Tekjuaukning einstaklinga á Vestfjörðum virðist hafa verið hægari en víðast annars staðar á landinu. Tekjuár- in 1990 til 1995 greiddu Vestfirðingar næsthæsta skatta einstaklinga á landinu fyrir utan tekjuárið 1992 þegar skattgreiðendur í fjórðungnum voru í þriðja sæti. Frá tekjuárinu 1996 hafa skattgreiðendur í Vestfjarðaum- dæmi færst neðar í röðina og voru á síðasta ári í fimmta sæti af níu skattumdæmum landsins samkvæmt staðtöl- um skatta sem birtar eru á heimasíðu ríkisskattstjóra. – kristinn@bb.is Súðvíkingar sammála um þverun Mjóafjarðar Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps hefur fjallað um fram- komnar tillögur Vegagerðarinnar um endurbyggingu Djúpvegar milli Eyrarhlíðar og Hörtnár en sú leið liggur öll innan hreppsins. Í skýrslu Vegagerðarinnar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdanna er fjallað um þrjár leiðir auk óbreyttrar legu. Hreppsnefndin er sam- mála Vegagerðinni um að fara leið 3, þar sem gert er ráð fyrir þverun Mjóafjarðar um Hrútey og þverun Reykj- arfjarðar. Nefndin bókaði að hún gerði ekki athuga- semdir við matsskýrslu Vegagerðarinnar. –kristinn@bb.is Þórir skipaður reglu- vörður Ísafjarðarbæjar Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt reglur um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja. Jafn- framt hefur ráðið skipað Þóri Sveinsson fjármálastjóra bæjarins í nýtt embætti regluvarðar Ísafjarðarbæjar. Þetta er gert í samræmi við leiðbeinandi tilmæli Fjár- málaeftirlitsins til útgefenda skráðra verðbréfa. Hlut- verk regluvarðar Ísafjarðarbæjar er að hafa eftirlit með því að reglum þessum sé fylgt og skal hann vera hlutlaus og sjálfstæður í því starfi. Regluvörður ber ábyrgð á miðlun innherjaupplýsinga – hlynur@bb.is Verðlaunahafar á mótinu ásamt eigendum Kambs, þeim Hinriki Kristjánssyni og Ingibjörgu Kristjánsdóttur. Mynd: Gylfi Sigurðsson. Metþátttaka í Kambsmótinu í golfi Sigríður og Magnús sigruðu Metþátttaka var á Kambs- mótinu í golfi sem haldið var á Tungudalsvelli á laugardag. Alls tóku 67 þátt í mótinu, 60 karlar og sjö konur. Sigríður Ingadóttir frá Golfklúbbnum Glámu á Þingeyri og Magnús Gautur Gíslason frá Golf- klúbbi Ísafjarðar sigruðu á mótinu án forgjafar og fengu hvort um sig 12 þúsund króna úttektarbréf í Golfbúðinni í Hafnarfirði. Magnús Gautur lék á 77 höggum og Sigríður lék á 101 höggi. Í 2. sæti í karlaflokki án forgjafar varð Hákon Her- mannsson (GÍ) á 80 höggum og þriðji varð Kristján Krist- jánsson (GÍ) á 81 höggi. Bráðabana þurfti til að skera úr um þriðja sætið þar sem Vilhjálmur Antonsson (GÍ) og Gunnlaugur Jónasson (GÍ) voru á sama höggafjölda. Með forgjöf sigraði Grétar Sigurðsson (GÍ) á 63 höggum, annar varð Pétur Þór Birgisson (GÍ), einnig á 63 höggum og í 3.-4. sæti urðu þeir Vilhjálmur Antonsson og Hólmar Jóhann Hinriksson (GÍ) á 65 höggum. Kristín Karlsdóttir (GÍ) varð í öðru sæti í kvennaflokki án forgjafar á 103 höggum og þriðja varð Margrét Ólafsdótt- ir (GÍ) á 106 höggum. Með forgjöf sigraði Kristín Karls- dóttir á 65 höggum, önnur varð Margrét Ólafsdóttir á 72 högg- um og þriðja varð Sigríður Ingvadóttir (GGL) á 78 högg- um. Allir þátttakendur fengu teiggjafir auk þess sem boðið var upp á veitingar þegar leikn- ar höfðu verið 9 holur af 18. – halfdan@bb.is Vinna að eflingu áfengis- og fíknifefnaforvarna sveitarfélaga Verkefnið byggir m.a. á kenning- um sálfræðingsins Harvey Milkman Stjórn, Vertu til samstarfs- verkefnis Sambands íslenskra sveitarfélaga og Áfengis- og vímuvarnarráðs fundaði á Ísa- firði í síðustu viku en markmið verkefnisins er að efla áfengis- og fíkniefnaforvarnir sveitar- félaganna. Að sögn Svandísar Nínu Jónsdóttur verkefnisstjóra er megininntak starfsins fólgið í ráðgjöf og upplýsingamiðlun um skipulag og framkvæmd forvarnarstarfs gagnvart ungu fólki en nafngiftin vísar til nauðsynjar þess að ungt fólk njóti lífsins án vímugjafa. „Verkefnið byggir m.a. á kenn- ingum sálfræðingsins Harvey Milkman en hann hefur fjallað um hvernig ungt fólk getur byggt upp sjálfsvitund sína og sjálfstraust án vímuefna“, segir Nína. Verkefnið er til næstu þriggja ára en aðstand- endur þess hafa skuldbundið sig til að meta sameiginlega, í árslok 2005, árangur verkefn- isins með tilliti til framtíðar- skipan mála. „Það er ljóst að mörg sveit- arfélög sinna þessum mála- flokki vel sem er ánægjulegt en önnur sveitarfélög eru með ómótaðri stefnu. Því miðar starf okkar að því að mæta hverju sveitarfélagi þar sem það er statt og aðstoða við að efla forvarnastarfsemi á for- sendum heimamanna sem þekkja best allra sitt um- hverfi“, sagði Nína. Í því skyni að styrkja tengsl milli sveitarfélaganna inn- byrðis var ákveðið að stjórn verkefnisins yrði skipuð fólki úr dreifbýli og þéttbýli. For- mennska verkefnisins fór til sveitarfélaga Þingeyjarsýslna og er í höndum Soffíu Gísla- dóttur, félagsmálastjóra svæð- isins. Sigríður Hulda Jónsdótt- ir, náms- og starfsráðgjafi í Garðabæ er varaformaður. Þeim til fulltingis við stjórn verkefnisins eru Halldór Hall- dórsson bæjarstjóri í Ísafjarð- arbæ, Soffía Pálsdóttir, Bryn- dís Arnarsdóttir og Guðrún E. Ólafsdóttir .– kristinn@bb.is Halldór Halldórsson, Soffía Gísladóttir, Sigríður Hulda, Svandís Nína og Soffía Pálsdóttir. Til sölu er Aðal- stræti 12 á Þingeyri Til sölu er húseignin að Aðalstræti 12 á Þingeyri. Húsið verður til sýnis föstudaginn 22. ágúst 2003 milli kl. 16 og 18. Aðalstræti 12 á Þingeyri er tvær hæðir og kjallari. Afgreiðsluhúsnæði og vélasalur eru á jarðhæð og 1. hæð húss er alls 240m². Íbúð á 2. hæð er 124,6m². Nánari upplýsingar veitir fasteignasala Tryggva Guðmundssonar á Ísafirði, sími 456 3244. Áskrift að Bæjarins besta margborgar sig... 33.PM5 18.4.2017, 11:3611

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.