Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.02.2002, Side 2

Bæjarins besta - 20.02.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 LEIÐARI Ill var sú fyrsta ganga Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Selma Rut Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími 456 8269. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Blaðamenn: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sími 456 4448, netfang: umbrot@bb.is, Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið. Ísafjörður Brátt boxað í Stúdíó Dan Eins og kunnugt er hefur Alþingi samþykkt þingsálykt- unartillögu þess efnis að ólympískir hnefaleikar skuli leyfðir á Íslandi eftir áratuga bann. Stefán Dan Óskarsson, eig- andi Stúdíó Dan á Ísafirði, hefur í kjölfar ákvörðunar Al- þingis, ákveðið að bjóða Vest- firðingum upp á aðstöðu til að iðka þessa íþrótt. Segist hann hafa orðið var við mikinn áhuga hjá gestum stöðvar- innar eftir að tillagan var sam- þykkt á mánudag. Stefán segist ekki ætla að koma upp hnefaleikahring og keppnisaðstöðu til að byrja með en framhaldið velti vissu- lega á áhuga bæjarbúa á íþrótt- inni. „Við höfum boðið upp á sparkboxið tælenska og fleiri sjálfsvarnaríþróttir um nokk- urra ára skeið og eigum því allan búnað sem til þarf. Ég geri ráð fyrir að föstum æfing- um verði komið á fljótlega eftir námskeið í ólympískum hnefaleikum sem við hyggj- umst halda með menntuðum þjálfara. Hnefaleikaæfingar eru eitt besta líkamsþjálfun- arkerfi sem völ er á, bæði fyrir körfuboltastráka og lang- þreyttar húsmæður þannig að ég býst við því að fólk eigi eftir að taka þeim fegins hendi,“ segir Stefán Dan. Þingeyri Safnað fyrir fjölskyldu Í samráði við sóknarprest- inn á Þingeyri hefur verið stofnaður söfnunarreikningur til styrktar fjölskyldu Sófusar Odds Guðmundssonar, sem lést í hörmulegu slysi á Gemlufallsheiði 1. febrúar sl. Sófus Oddur lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn á aldrinum sex ára til tvítugs. Reikningurinn er hjá Spari- sjóði Vestfirðinga, nr. 1128- 05-8000, kt. 090960-2969. Eignarhaldsfélag stofnað um rekstur félagslegra íbúða í Ísafjarðarbæ Allt íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem hefur markaðsgildi færist yfir í félagið Ísafjarðarbær hyggst stofna eignarhaldsfélag um rekstur félagslegra íbúða og annarra fasteigna í eigu sveitarfélags- ins. Er þetta gert í samræmi við tillögur frá nefnd félags- málaráðherra um stofnun sér- stakra eignarhaldsfélaga um félagslegar íbúðir. Nefndin hefur jafnframt lagt til að fjár- framlag komi til þeirra sveitar- félaga sem hvað erfiðast eiga með rekstur íbúðanna og komi það til framkvæmda um leið og félögin hafa verið stofnuð. Hjá Ísafjarðarbæ er átt við uppgjör á rekstri íbúðanna árið 2001 og fjárframlag frá ríkinu upp í neikvæðan mis- mun er kemur til greiðslu á árinu 2002. Vinnur Ísafjarðarbær nú að undirbúningi málsins og hefur Bjarka Bjarnasyni, löggiltum endurskoðanda á Ísafirði, ver- ið falið að gera drög að sam- þykktum hlutafélagsins. Þar verður væntanlega lagt til að stofnuð verði þriggja manna stjórn eignarhaldsfélagsins sem bæjarstjórn tilnefnir í. Einnig er gert ráð fyrir því að stjórnin ráði framkvæmda- stjóra til félagsins sem fyrst og verða drög að starfslýsingu hans lögð fram með tillögum að samþykktum félagsins. Er ætlunin að allt íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem hefur eitthvert markaðsgildi færist yfir í hlutafélagið. Með mark- aðsgildi er átt við húseignir sem leigutekjur fást af og hafa söluverð og sölumöguleika á markaði. Þegar félagið hefur tekið til starfa mun það yfir- taka alla starfsemi húsnæðis- nefndar og sjá um rekstur nokkurra eigna sem í dag til- heyra ákveðnum sviðum. Sunnukórinn heiðrar minningu hjónanna Sigríðar og Ragnars H. Ragnar Draumaferð á slóðir Vestur-Íslend- inga í Bandaríkjunum og Kanada Sunnukórinn á Ísafirði hef- ur ákveðið að ferðast um slóð- ir Vestur-Íslendinga í Banda- ríkjunum og Kanada í sumar. Ferð sem þessi hefur lengi verið draumaferð kórsins og með henni langar kórinn að heiðra minningu Ragnars H. Ragnar og konu hans Sigríðar, og syngja á þeim stöðum sem þau bjuggu og störfuðu. Ragn- ar bjó og starfaði á þessum slóðum í 27 ár og stjórnaði þar m.a. kórum og kenndi á píanó. Eftir að Ragnar flutti til Ísa- fjarðar var hann stjórnandi Sunnukórsins í fjöldamörg ár ásamt því að vera skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, org- anisti Ísafjarðarkirkju og stjórnandi Karlakórs Ísafjarð- ar. Ragnar var sem kunnugt er útnefndur heiðursborgari Ísafjarðar fyrir störf sín að tón- listar- og menningarmálum. Sunnukórinn var stofnaður árið 1934 og er nú elsti bland- aði kór á landinu. Hann hefur tvisvar sinnum áður ferðast til útlanda en farið margar ferðir innanlands. Stjórnandi kórsins nú er Margrét Geirs- dóttir og undirleikari Sigríður Ragnarsdóttir. Í ferðinni verða kórfélagar og makar þeirra en nokkur sæti eru laus svo hægt er að bjóða fleirum þátttöku en þeim sem nú syngja í kórnum. Þeir sem hafa hug á að slást í hópinn eða fá nánari upplýs- ingar um ferðina þurfa að bregðast skjótt við og hafa samband við Kristján Har- aldsson í símum 456 3211 eða 456 3050, Sigríði Stein- unni Axelsdóttur í síma 456 3278 og Sigurveigu Gunnars- dóttur í síma 456 4095. Sigríður og Ragnar H. Ragnar. ,,Þetta er fyrsta byggðaáætlun mín“, voru orð iðnaðarráðherra í Kastljósi Sjón- varpsins í heldur dapurlegri varnarræðu fyrir ,,metnaðarfullum tillögum“ og ,,stefnumótun“ ríkisstjórnarinnar í málefnum landsbyggðarinnar næstu fjögur árin. Síðla árs 1991 féllu þau orð á Alþingi að sóun fjármuna í nafni byggðastefnu væri ein af fortíðarplágunum sem kæmu í veg fyrir að menn gætu hugsað heila hugsun. Hér eftir skyldu menn (á landsbyggð- inni) sjá um sig sjálfir. Á sama tíma fór fram víðtæk umræða um sameiningu sveitarfélaga. Augu manna voru smámsaman að opnast fyrir því að við gætum ekki setið landið á sama hátt og forfeðurnir og jafnframt krafist gagna og gæða nútímans. Þá sagði BB: ,,Öflugir byggðakjarnar eru eina leiðin til að sporna við frekari ofvexti Reykjavíkur. En til að taka á vandanum þarf kjark. Og til þess þarf forustu landsbyggða manna sjálfra.“ BB fagnar tillögu Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, og ákvörðun bæjar- stjórnar Ísafjarðarbæjar að hafa frumkvæði að því að Vestfirðingar semji sína eigin byggðaáætlun eftir að ríkisstjórnin, hefur kveðið upp þann úrskurð ,,að ekki sé ráðlegt að gera ráð fyrir að íbúum fjölgi á Vestfjörðum á næstu árum.“ Vel má vera að iðnaðarráðherra telji sig þess umkominn að kveða upp slíkan dóm yfir heilum landshluta. Hvað sem því sjálfsmati líður skal fullyrt að siðferðilegan rétt til slíkra verka hefur engin ríkisstjórn, hvað þá einn ráðherra. En skilaboðin eru skýr: Við reiknum ekki lengur með ykkur, Vestfirðingar. Byggðaáætlunin, sem nokkrir stjórnarþingmenn gefa einkunina ,,klaufalegt orðalag“, ,,yfirborðslegt snakk“, sem gengur út á að skoða ,,hitt og þetta“, studd röksemdum sem ,,lýsa ekki öðru en fordómum og sleggjudómum höfunda“, gengur þvert á tillögur nefndar á vegum Sambands sveitarfélaga í þessum efnum. Og, hvers vegna endaði tillaga atvinnumálahóps Verkefnisstjórnar um þrjá byggðakjarna: Ísafjörð, Akureyri og Mið-Austurland í ruslaskúffu Iðn-aðarráðuneytisins? Um frumraun iðnaðarráðherra við gerð byggðaáætlunar verður aðeins eitt sagt: Ill var þín fyrsta ganga. Vestfirðingum finnst sem stjórnvöld skuldi þeim afsökunarbeiðni vegna þeirrar blautu tusku sem ódrátturinn um byggðaáætlun 2002 til 2005 er í andlit þeirra. Vestfirðingar: Hafi einhvern tíma verið þörf þá er nú nauðsyn að standa saman, sem einn maður. s.h.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.