Bæjarins besta - 20.02.2002, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002
Íþróttafólkið sem fékk viðurkenningu frá Héraðssambandi Vestfirðinga og Ísafjarðarbæ á sunnudag. Þar sem þeir voru
ekki allir viðstaddir, tóku fulltrúar þeirra við viðurkenningunum.
Stefnir á Ólympíuleik-
ana í Aþenu árið 2004
Heiðar Ingi Marinósson
var á sunnudag kjörinn
„Íþróttamaður Ísafjarðar-
bæjar árið 2001“ í móttöku
sem haldin var í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði.
Heiðar er vel að titlinum
kominn enda var árið 2001
einkar árangursríkt hjá hon-
um. Hann var valinn í ungl-
ingalandslið Íslands í sundi
eftir frábæran árangur á
Íslandsmeistaramóti og í
framhaldi af því fór hann á
Smáþjóðaleikana í San Mar-
ino þar sem hann þótti
standa sig með ágætum.
Einnig varð hann landsmóts-
meistari í 50 og 100 metra
skriðsundi á landsmóti
UMFÍ á Egilsstöðum og
setti jafnframt landsmótsmet
í báðum greinum.
„Þetta er alveg frábært,
mér er sýndur mikill heiður
með þessu,“ var það fyrsta
sem Heiðar Ingi sagði er
hann var inntur álits á út-
nefningunni. Heiðar Ingi,
sem er á 19. aldursári, hefur
æft sund um sex ára skeið
en ekki sett mikinn kraft í
æfingarnar fyrr en hann fékk
núverandi þjálfara, Inga Þór
Ágústsson. „Ég á honum
mest að þakka, hann er mjög
góður þjálfari og hefur kennt
mér mikið. Ég hefði varla
verið að taka við þessum
verðlaunum ef hans hefði
ekki notið við. Stjórn Sund-
félagsins Vestra hefur líka
verið mér mjög hjálpleg og
svo hef ég auðvitað notið
mikils stuðnings frá mörgu
góðu fólki hér í bæ,” segir
Heiðar.
Heiðar æfir sund níu
sinnum í viku, alls 22 tíma,
sem verður að teljast nokk-
uð mikið þegar litið er til
þess að hann er í fullu námi
við Menntaskólann á Ísa-
firði og vinnur auk þess
þegar tími gefst í blikk-
smiðju föður síns, Ísblikk.
„Vissulega er mikið að gera
hjá mér en sundið gefur mér
mikið til baka, það er mitt
áhugamál og mér finnst gott
að nota tímann til þess að
iðka það. Það er helst að
maður vildi fá meiri tíma
með kærustunni, en ég reyni
að hitta hana eins oft og ég
get,” segir hann.
Að öllu óbreyttu mun
Heiðar Ingi ljúka námi í
blikksmíði við Menntaskól-
ann á Ísafirði í vor en þá
verður hann að halda til
Reykjavíkur hyggist hann
læra meira í iðninni. Hann
segist ekki enn hafa ákveðið
sig hvað taki við eftir út-
skrift frá MÍ, en segir líklegt
að hann fari suður enda
hefur hann hug á að mennta
sig frekar í blikksmíði. „Það
er búið að bjóða mér að æfa
í Hafnarfirði, með Erni Arn-
arsyni og fleiri köppum ef
ég skyldi ákveða að fara og
vissulega er freistandi að fá
að æfa reglulega í löglegri
keppnislaug, en ég á samt
mjög erfitt með að ákveða
mig því mér líður mjög vel á
Ísafirði. Eitt er víst og það er
að ég ætla ekki að hætta
sundæfingum á næstunni.
Ég hef sett mér það mark-
mið að keppa á Ólympíu-
leikunum í Aþenu 2004 og
ef maður ætlar að taka þátt í
þannig keppnum er vísara
að vera vel undirbúinn,”
sagði Heiðar Ingi Marinórs-
son, Íþróttamaður Ísafjarðar-
bæjar í samtali við blaðið.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 – Ísafirði
Símar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
: : .
Einbýlishús / raðhús
Fasteignir í
þessari
auglýsingu eru
aðeins
sýnishorn af
sölu-skránni.
Allar frekari
upplýsingar eru
veittar á skrif-
stofunni að
Hafnarstræti 1
Fa
st
ei
gn
v
ik
un
na
r
Hafraholt 50: 138,4 m² Hosby einingahús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Verð 12,9 m.kr.
hæð til hægri í fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu. Skoða öll tilboð.
Möguleiki að taka bíl uppí. Áhv.
ca. 3 m.kr.
Verð 5,5 m.kr.
Tangagata 16: 66,9 m² íbúð á
neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Verð 4,5 m.kr.
Urðarvegur 49: 102,5 m² kjall-
araíbúð á neðri hæð í tvíbýlis-
húsi. Tilboð óskast
2ja herb. íbúðir
Suðureyri
Hjallavegur 11: 138,2 m² ein-
býlishús á einni hæð.
Verð 3 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m² íbúð á 1.
hæð í nýlega uppgerðu fjöl-
býlishúsi ásamt sér geymslu.
Verð 4 m.kr.
Súðavík
Álfabyggð 3: 130,2 m² nýtt og
glæsilegt einbýlishús á einni hæð
ásamt bílskúr, sólstofu og tveim-
ur sólpöllum.
Verð 11.5 m.kr.
Bolungarvík
Heiðarbrún 3: 224,6 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr Tilboð óskast
Hlíðarstræti 6: 113 m² ein-
býlishús á einni hæð ásamt
bílskúr. Verð 7,9 m.kr.
Fjarðarstræti 14: 100 m² falleg
4ra herbergja íbúð á n.h. í
tvíbýlishúsi ásamt 60m² kjallara
og 27,8 m² geymsluskúr. Baklóð
fylgir neðri hæðinni. Áhv. ca.
1,5 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Fjarðarstræti 38: 3-4ra her-
bergja íbúð að hluta undir risi.
Íbúðin er í góðu standi.
Tilboð óskast
Pólgata 5a: 121 m² 4ra herbergja
íbúð á n.h. í þríbýlishúsi ásmt
bílskúr , 50% kjallara og eignar-
lóð. Íbúðin er öll endurnýjuð
Verð 6,7 m.kr.
3ja herb. íbúðir
Engjavegur 24: 126,4 m² ein-
b.hús á tveimur hæðum.Frábær
sólbaðsaðstaða. Laust 1. ágúst
2001. Áhv. ca. 4,6 m.kr. Verð
7,5 m.kr.
Hlíðarvegur 21: 157,5 einbýl-
ishús á tveimur hæðum. Skipti á
dýrari eign möguleg.
Verð 6 m.kr.
Hlíðarvegur 37: 185,9 m² rað-
hús á þremur hæðum ásamt
bílskúr og einstaklingsíbúð.
Skipti á minni eign koma til
greina. Verð 10,2 m.kr.
Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt grónum garði og eignar-
lóð Laust fljótlega.
Tilboð óskast
Hrannargata 1: 238,9 m² ein-
býlishús á 2 hæðum ásamt kjall-
ara, háalofti og ræktuðum garði.
Tilboð óskast
Hrannargata 8a: 78,1 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
eignarlóð. Húsið er uppgert að
hluta.
Verð 4,6 m.kr.
Lyngholt 10: 151,3 m² einbýl-
ishús á einni hæð ásamt 55,2 m²
bílskúr Verð 12,9 m.kr.
Seljalandsvegur 30: 160,5 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
Tilboð óskast
Seljalandsvegur 72: 112 m²
einbýlishús á tveimur hæðum,
góður sólpallur.
Verð 8,2 m.kr.
Urðarvegur 33: 306,3 m² glæsil-
egt einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr.
Verð 16 m.kr.
4-6 herb. íbúðir
Hlíðarvegur 33: 79,1 m² íbúð á
neðri hæð í fjórbýlishúsi ásamt
góðum bílskúr.
Verð 6,9 m.kr.
Hlíf II –Torfensi: 62,5 m² 2ja-
3ja herbergja íbúð á jarðhæði í
Dvalarheimili aldraðra.
Verð 7,1 m.kr.
Pólgata 6: 55 m² risibúð á 3ju
hæð í fjölbýlishúsi.
Verð 3,9 m.kr.
Silfurgata 11: 56,2 m² (75m²
gólfflötur, mikið rými í risi) Björt
og glæsileg íbúð með frábæru
útsýni. Ótrúlega hagstæð í rekstri.
Áhv. ca. 3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3ju
hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2
m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3ju