Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.02.2002, Page 12

Bæjarins besta - 20.02.2002, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 Kvennafjör og kútt- magakvöld í Víkinni Stakkur skrifar Óvarlegt er að gera ráð fyrir... Netspurningin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Ertu ánægð(ur) með viðbrögð bæjar- stjórnar Ísafjarðar- bæjar vegna byggða- áætlun ríkistjórn- arinnar? Alls svöruðu 456. Já sögðu 324 eða 71,05% Nei sögðu 101 eða 22,15% Hlutlausir voru 31 eða 6,18% Um 70 karlar komu saman sl. föstudag á árlegu kúttmagakvöldi Lionsklúbbs Bolungar- víkur. Að sjálfsögðu voru kúttmagar í öndvegi, bæði lifrar- og mjölmagar, en einnig var boðið upp á glæsilegt sjávarréttahlað- borð sem matreiðslumenn SKG-Veitinga áttu veg og vanda af og telst mönnum til að þarna hafi verið um þrjátíu réttir af ýmiss konar sjávarfangi. Veislu- stjóri var Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. Á meðan karlarnir sátu að veislukosti í Víkurbæ komu hattaprýddar bolvískar konur saman á kvennafjöri í Finnabæ þar sem boðið var upp á „femin“-hlaðborð og fjölbreytta dagskrá þar sem konur skemmtu konum undir röggsamri veislustjórn Pálínu Vagnsdóttur. Einnig var verslunin Jón og Gunna á Ísafirði með sýningu á glæsilegri vorlínu og Sólbaðstofan Linda í Bolungarvík sýndi spenn- andi sundfatnað, auk þess sem veglegir happ- drættisvinningar voru dregnir úr lukkupotti. Skemmtu konur sér hið besta og voru í miklu stuði um miðnætti þegar þær héldu sem leið lá í Víkur- bæ og dönsuðu þar með körlunum fram eftir nóttu við undirleik hljómsveitar- innar Gabríel. Ljósmynd- ari blaðsins kom við í Bolungarvík og tók þar meðfylgjandi myndir. Fleiri myndir munu birtast á svipmyndum á bb.is í vikunni. Iðnaðarráðhera Valgerður Sverrisdóttir skipaði nefnd sem skilað hefur áliti varðandi byggðamál á Íslandi. Kjarni niðurstöðu nefndarinnar er sá, að Akureyri skuli verða mótvægi við höfuðborgina. Þetta er fín hugmynd þó óvarlegt sé að flestra dómi að gera ráð fyrir að nokkur byggð á Íslandi verði í bráð mótvægi við höfuðborgina Reykjavík þar sem rúmlega 110 þúsund manns búa og reyndar búa nærri 170 þúsund á öllu höfuðborgarsvæðinu. Íbúar Akureyrar eru um 15 þúsund og við Eyjafjörð allan búa innan við 20 þúsund manns. Munurinn á íbúfjölda þar og á höfuborgarsvæðinu er því gríðarlegur og hlýtur að minnka verulega áhrif mótvægisins eftirsóknarverða. Vissulega er nokkuð til í þeirri hugsun að utan Reykjavíkur er Akureyri ótvírætt fjölmennasta byggðin og einnig stærsti kjarn- inn í nokkrum einstökum landshluta utan suðvesturhornsins. Enn er á þessum vettvangi minnt á hugmynd sem kom fram á ráðstefnu Byggðastofnunar og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var á Selfossi í nóvember 1987. Inntak hennar var að koma upp kjarnabyggðum í öllum landshlutum. Því miður var sú hugmynd andvana fædd vegna afstöðu fulltrúa alltof margra sveitarfélaga sem þá voru nærri 220 á landinu öllu. Fulltrúar hinna fjölmörgu smáu hreppa um allt land sáu ógnina eina við þessa ágætu hugmynd. Vonandi verða sveitarstjórnarmenn betur vakandi að þessu sinni. Nú kemur hugmyndin fram einu sinni enn þó í breyttri mynd. Munurinn er sá að allar kjarnabyggðir utan Akureyrar eru gleymdar. Ekki er lengur talað um Borgarnes, Ísafjörð, Sauðárkrók, Egilstaði og Selfoss, aðeins Akureyri hlýtur náð fyrir augum nefndarinnar. Vissulega má halda því fram að sveitarstjórnarmenn sjálfir hafi átt nokkra sök á því að liðinn er einn og hálfur áratugur aðgerðarleysis í stað þess að vinna hugmyndinn ágætu um byggðakjarnana fylgis og hrinda í framkvæmd þeirri byggðastefnu sem þar kristallaðist. Það er einkar klaufalegt að einblína aðeins á tvo kjarna byggðar á Íslandi, sem er tiltölulega stórt land með mjög fáa íbúa, annan á suðvesturhorninu og hinn við Eyjafjörð. Vissulega er það rétt að fáir kjarnar eru nægilega stórir úti í fjórðungunum til mótvægis við byggð sem telur nærri 70% Íslendinga. Kannski er það svo að andmæli sveitar- stjórnarmanna á Vestfjörðum og Austurlandi minni nokkuð á afstöðu hinna fjölmörgu fulltrúa litlu hreppanna fyrir nærri 15 árum. Mótmæli bæjarstjórnar og bæjarstjóra á Ísafirði eru bæði eðlileg og skiljanleg þótt í Vest- firðingafjórðungi búi nú færri íbúar en í nokkrum hinna, aðeins um áttaþúsund. Það er ekkert sem réttlætir fullyrðinguna um að að óvarlegt sé að gera ráð fyrir fjölgun íbúa á Vestfjörðum nema til komi rökstuðningur og nokkur forspá í leið- inni um afstöðu ríkisstjórnarinnar til framhaldandi byggðar á Vestfjörðum. Hafði iðnaðarráðherra kannski dulið umboð til þess að taka af skarið gagnvart Vest- fjörðum með þessum hætti? Því verður ekki trúað. En skýrslan framkallar spurningar varðandi byggð á Ís- landi og framtíðarsýn ríkisstjórnar og Alþingis. Við bíðum svara.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.