Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 1

Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 1
,,Kannski ekki miklu við að bæta“ – Rósi Sigurðsson, bóndi og hljómlistarmaður á Nýja Sjálandi í nýju BB-viðtali – fimmtán árum síðar. Sjá miðopnu. Miðvikudagur 7. febrúar 2001 • 6. tbl. • 18. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk Súðavík Grunaður um ölvun við akstur Lögreglan stöðvaði mjög ungan ökumann í Súðavík aðfaranótt sunnudags vegna gruns um ölvun við akstur. Ökumaðurinn fékk hefðbundna meðferð þó ekki hafi hann haft öku- réttindi, enda verður hann ekki fullra sautján ára fyrr en í haust. Verði hann sek- ur fundinn missir hann ökurétt í minnst þrjá mán- uði. Þar sem hann er ekki orðinn sautján ára mun hann eingöngu missa rétt- inn til að keyra skelli- nöðru og ákveðnar teg- undir af vinnuvélum. Hins vegar mun hann fá að taka bílprófið á réttum tíma í haust. Að öðru leyti var helgin róleg hjá lögreglunni á Ísafirði þrátt fyrir að þorrablót hafi verið haldið í svo til hverju einasta fé- lagsheimili á norðanverð- um Vestfjörðum. Sjúkra- og áætlunarflugvél kom til Ísafjarðar í síðustu viku Hálfdán og Guðleifur fljúga vélinni Ný sjúkra- og áætlunarflug- vél Vestfirðinga kom til Ísa- fjarðar á fimmtudag. Vélin er í eigu Leiguflugs Ísleifs Otte- sen, sem samið hefur verið við um flugið. Hálfdán Ing- ólfsson flugstjóri og Guðleifur Árnason aðstoðarflugstjóri skipa áhöfn vélarinnar sem er af gerðinni Cessna 402C. „Flogið verður þrisvar í viku í áætlunarflugi milli Ísa- fjarðar og Bíldudals. Við erum að gera könnun á ferðatíðni til að sjá hvaða daga vikunnar er best að fljúga. Líklega verða tvö morgunflug og eitt síð- degisflug í hverri viku. Verð farmiða verður hliðstætt því sem gildir milli Akureyrar og Grímseyjar“, segir Ísleifur Ottesen. Ekki hafði vélin setið lengi í flugskýli á Ísafirði þegar fyrsta verkefnið kom. Á laug- ardag þurfti að fljúga með menn frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga til Reykhóla og Bíldudals til fundarhalda. Á meðan þingað var á Reykhól- um var beðið um sjúkraflug frá Ísafirði. Þurfti því að skilja Fjórðungssambandsmenn eft- ir meðan flogið var til Ísa- fjarðar og þaðan til Reykja- víkur. Síðan var flogið með mennina til Bíldudals og það- an aftur til Ísafjarðar. Nýja sjúkra- og áætlunarvélin. 06.PM5 19.4.2017, 09:211

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.