Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2001, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 07.02.2001, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001 7 Kvöldstund í Stúdíó Flónafegurð Í litlum snotrum bústað í Dagverðardal í Skutulsfirði hafa þrír ungir menn komið sér upp æfingahúsnæði sem er óvenju vel tækjum búið. Svo mikil er græjufýsn þeirra félaga að þeim hefur tekist að sanka að sér nokk- urn veginn öllum þeim tækjum og tólum sem þarf til að taka upp tónlist og er bústaðurinn að mörgu leyti líkari hljóðveri en æfinga- húsnæði. Bæði í gríni og alvöru er húsnæðið nefnt Stúdíó Flónafegurð. Að því standa Ísfirðingarnir Þorri Gestsson, Páll Janus Hilm- arsson og Andri Geir Árna- son sem hafa lengi unnið saman að hinum og þessum músíkverkefnum. Engar áætlanir um útgáfu Þorri segir að ekki standi til að fara út í neina útgáfu- starfsemi, hvorki á þeirra eigin tónlist né annarra. „Tónlistin er frekar tekin upp af akademískum áhuga en öðrum hvötum. Ekki eru uppi neinar áætlanir um út- gáfu og því síður ætlum við að fara að rukka fyrir hljóð- verstíma. Um leið og við missum áhugann á þessu, þá hættum við einfaldlega að taka upp.“ Tekið upp fyrir barnabörnin Græjurnar hafa þeir piltar fengið héðan og þaðan. Sumt er fengið að láni úr aflóga hljóðkerfum en ann- að hafa þeir keypt. „Við vor- um að festa kaup á gullfall- egum 24 rása mixer sem við notum við upptökur. Hann auðveldar þetta allt saman mikið og eykur gæði upptökunnar töluvert. Þeg- ar hljóðið hefur farið í gegn- um þennan mixer er það sett í tölvu, þar hljóðbland- að og brennt á disk ef af- raksturinn þykir nógu góð- ur. Seint myndi hljóðverið standast kröfur stórpoppara, enda er ekki ætlunin að taka upp af neinni alvöru. Ef kunn- ingja okkar langar til að taka upp tóndæmi sem barnabörn- in geta hlustað á og hlegið að síðar meir getum við orðið þeim innan handar, svo lengi sem við nennum“, segir Þorri. Mikil er verklagni Þorra Þegar blaðamann ber að garði í hljóðverinu er verið að taka upp tónlist ísfirsku hljómsveitarinnar Abuzz, en hana skipa Birgir Örn Sigur- jónsson gítarhetja og söng- vari, Gunnar Pétur Garðars- son bassaleikari og Hrannar Freyr Abrahamsen trymbill. Þorri virðist vita nákvæmlega hvað hann er að gera. Byrjað er á því að stilla „sándið“ í trommunum, en það reynist svolítið erfitt vegna þess að upptökumaðurinn situr í sama herbergi og trymbillinn. Þegar búið er að stilla, Þorri Gestsson á takkaborðinu. Birgir Örn gítarleikari og söngvari. Hrannar Freyr lemur húðirnar. hefjast menn handa við upp- tökur. Meðlimir Abuzz taka upp hver á fætur öðrum og þykir greinilega mikið til bún- aðarins og verklagni Þorra koma. Orðir frekar ryðgaðir Abuzz virkar sem vel smurð rokkmaskína og lögin skríða á færibandi inn í tölvuna. Þeir félagar hafa spilað saman með hléum í hátt í þrjú ár. „Hljómsveitin varð til í leikskólanum Hlíðar- skjóli“, segir Birgir Örn Sigurjónsson, gítarleikari og söngvari sveitarinnar. „Við æfðum í leikskólanum á meðan listafélagið And- rúm var og hét. Í upphafi var Abuzz pönksveit en síð- ar færðum við okkur út í einhvers konar gítarrokk. Við höfum ekki getað æft okkur í nokkurn tíma og komumst að því þegar stigið var inn í hljóðverið að við erum orðir frekar ryðgaðir.“ Gunnar Pétur bassaleikari. 06.PM5 19.4.2017, 09:217

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.