Bæjarins besta - 07.02.2001, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2001
Rósi Sigurðsson, bóndi og hljómlistarmaður á Nýja Sjálandi,
í nýju BB-viðtali – fimmtán árum síðar
„Kannski ekki
miklu við að
bæta...“
– fékk fótboltadellu um fertugt og þjálfar og
spilar sjálfur þó að hann sé kominn yfir fimmtugt
Tíminn er fljótur að líða. Fyrir réttum fimm-
tán árum, eða í lok janúar árið 1986, birtist í
Bæjarins besta viðtal við Rósa Sigurðsson frá
Ísafirði, sem þá var fluttur til útlanda fyrir
nokkrum árum en var í heimsókn á ættlandinu.
Í viðtalinu gamla segir í upphafi:
Það muna flestir eftir honum Rósa, Sigurði
Rósa Sigurðssyni, spilandi á böllum vestur um
alla firði. Þeir vildu margir gefa mikið fyrir
það, strákarnir, að vera eins fimir með fingurna
á gítarhálsinum. En hann Rósi, sem var einn
Krókspúkanna í gamla daga, hvarf af sviðinu
fyrir fimm árum, fluttist til Nýja Sjálands og
gerðist bóndi...
Þegar hann var spurður um ástæður þess að
hann fluttist um hálfan hnöttinn, svaraði hann:
Það varð margt til þess. Það var komin einhver
óeirð í mig hér heima og mig langaði að reyna
eitthvað nýtt. Við vorum þá tekin saman, ég og
konan mín sem nú er, nýsjálensk stúlka sem
kom hingað til vinnu í frystihúsinu í Hnífsdal.
Svo var það að pabbi hennar, sem er bóndi
þarna úti, bauð okkur að koma.
Í netspjalli við Rósa núna
fimmtán árum síðar segir
hann: „Það er kannski ekki
miklu við að bæta síðan Snorri
[Grímsson] talaði við mig árið
1986. Lífið hefur verið í föst-
um skorðum að mestu leyti
öll þessi ár. Ég vinn fyrir mér
og fjölskyldu minni við bú-
skap“, segir hann.
Þegar hann var spurður í
viðtalinu gamla hvort það hafi
ekki verið erfitt að taka þessa
ákvörðun að rífa sig upp og
flytjast alla þessa leið, svaraði
hann:
Nei, ekki erfitt, en það var
stór ákvörðun og maður vissi
að ekki yrði aftur snúið. Erf-
iðast var að skilja dótturina
eftir. Hún hefur ekki séð mig
síðan hún var tveggja ára,
þar til nú, nema á myndum.
En hún hefur heyrt margt um
pabba sinn, sem býr hinum
megin á jörðinni, og það er
ég ánægður með. Það var
mjög gaman að sjá hana aftur
núna. Það var reyndar aldrei
ætlunin að við settumst að á
bænum hjá tengdapabba,
heldur átti þetta að vera fyrst
um sinn meðan við áttuðum
okkur. En svo fór að ég gerðist
vinnumaður hjá honum og var
það í tvö ár. Þá vildi hann
fara að hætta búskap, var
kominn yfir sextugt, og þá fara
þeir á eftirlaun þarna úti.
Hann bauð mér að taka við
búinu og ég sló til.
115 mjólkurkýr
Rósi er með 115 mjólkurkýr
sem hann mjólkar tvisvar á
dag frá ágúst og fram í maílok
á hverju ári. Það er reyndar
sumartíminn á Nýja Sjálandi.
Einnig er hann með 21 kvígu,
25 kálfa og 3 naut.
„Við erum með jörðina á
leigu en eigum allar skepnur
og vélar sjálf. Þegar líða tekur
á sumarið og heyskapnum er
lokið, þá fer að verða minna
að gera hjá mér. Þá hef ég
tíma til að sinna öðrum áhuga-
málum og má þar nefna knatt-
spyrnu sem heltók mig fyrir
tíu árum. Ég hef verið óstöðv-
andi síðan, bæði að spila sjálf-
ur og að þjálfa krakka. Líka
hef ég gert mikið af því að
dæma unglingaleiki.“
Ætlaði að hætta
fimmtugur
„Eitt árið tók ég að mér að
þjálfa gagnfræðaskólaliðið.
Ég hafði farið á nokkur þjálf-
aranámskeið og er með fyrstu
gráðu réttindi. Reyndar ákvað
ég að hætta að spila fótbolta á
50 ára afmælinu í fyrra. En
liðið mitt var alltaf að hóa í
mig vegna þess að þeir höfðu
ekki nógu marga liðsmenn.
Áður en ég vissi af var ég
kominn með algera dellu aftur.
Liðið mitt endaði í 4. sæti af
14 liðum í þessum flokki í
annarri deild. Við spiluðum
tvisvar á móti hverju liði, á
heimavelli og á útivelli.
Keppnistímabilið er á veturna,
frá aprílbyrjun og fram í end-
aðan september en farið er að
æfa í byrjun febrúar.“
Býlið hans Rósa og fjöl-
skyldu er á suðvestanverðri
norðureynni á Nýja Sjálandi,
í tæplega 500 metra hæð við
rætur eldfjallsins Mt. Egmont.
Fjallið er hærra en hæstu fjöll
á Íslandi eða rúmlega 2.500
metrar. Það hét áður Taranaki
og eftir því heitir héraðið.
Land er þarna allt þaulræktað.
Sumarhitinn er að meðaltali
nálægt 20 stigum en á vetrum
um 10 stig. Og varla þarf að
taka fram, að núna líður að
hausti á Nýja Sjálandi og hey-
skaparönnum lokið.
Rósi og Gutti ennþá
saman í hljómsveit
Rósi er í hljómsveit – nema
hvað! Hún heitir Impulse og
hefur starfað kringum tíu ár.
Hún er orðin talsvert frábrugð-
in því sem var í upphafi.
Hljómsveitina Impulse skipa
þeir Guðjón J.Guðjónsson á
bassa, Rósi Sigurðsson á sóló-
gítar, Ray Paynter á hljóm-
borð, Don Fieldes syngur og
spilar á rythmagítar en Brett
Carter er á trommunum. „Við
spilum aðallega dansmúsík en
laumum inn einu og einu jazz-
lagi. Mest spilum við í klúbb-
unum hérna en nennum ekki
að standa í pöbbunum. Gutti
[Guðjón] er frá Patreksfirði
og kom til Nýja Sjálands á
sama tíma og ég árið 1981.
Að sjálfsögðu er mikil vinátta
á milli okkar og fjölskyldna
okkar.“
Tónlistin á netinu
Helsta áhugamál Rósa er
að taka upp lög sem hann hef-
ur samið sjálfur í gegnum árin.
Til þess notar hann tölvu með
fullkomnu upptökustúdíói
sem heitir Cool Edit Pro.
Einnig notar hann þetta forrit
til að laga til og hreinsa gamlar
upptökur með Ýr og Dans-
hljómsveit Vestfjarða og Jazz-
hljómsveit Villa Valla. Rósi
hefur sett sum af lögunum sín-
um á Internetið, – „bara svona
í gamni“, segir hann. Lögin er
má finna á slóðinni www-
.mp3.com/rosisigurdsson og
von er á fleiri lögum þar inn
við eftir því sem tækifæri og
tilefni gefast.
Víkjum enn að viðtalinu
fyrir fimmtán árum. Þá sagði
hann m.a. þetta: Fyrsta árið
var erfitt. Mér fannst þetta
strangt líf og mér féll ekki við
það í fyrstu. Málið var líka
nokkur þröskuldur; ég var
ekki góður í ensku og mér
fannst fólk hlæja að mér á
bak og varla telja mig full-
gildan. Það er hins vegar allt Synir Rósa og Elwyn, tvíburarnir Matthew og John.
horfið nú.
Aðspurður um veðrið og
hvort það sé betra og stað-
viðrasamara en heima á Ís-
landi sagði Rósi: Nei, það er
það ekki. Það er aldrei hægt
að treysta á veður þar fremur
en hér. Norðvestanvindar eru
ríkjandi og færa okkur gjarna
rigningu af hafinu. Helst er
þurrt og kyrrt síðari hluta
sumars, frá miðjum janúar til
miðs mars. Heyskapartíðin
hjá okkur er um jólaleytið en
í ár vorum við búnir fyrir jól-
in. En sem dæmi um veðrið
get ég nefnt það, að við verk-
um allt í vothey en náðum
ekki öllu saman í tíma vegna
rigninga. Og oft er hvasst hjá
okkur. Helsti munurinn frá ís-
lenska veðrinu er hitinn.
Börnin fimm
Aftur til nútímans árið
06.PM5 19.4.2017, 09:218