Bæjarins besta - 07.02.2001, Side 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Breytingin á félagsformi Orkubús Vestfjarða úr sameignarfélagi í hlutafélag
Formlega afgreidd á eigendafundi
Stjórn Orkubús Vest-
fjarða hefur boðað til eig-
endafundar á Ísafirði í dag,
miðvikudag. Á dagskrá
fundarins er aðeins eitt mál:
Breyting á félagsformi OV
úr sameignarfélagi í hluta-
félag. Hér er um formsatriði
að ræða til endanlegrar stað-
festingar en fyrir liggur að
allir eigendur fyrirtækisins eru
samþykkir þessari breytingu.
Þegar breytingin hefur verið
formlega samþykkt á eigenda-
fundi verður lagt fram stjórn-
arfrumvarp á Alþingi varðandi
þetta sérstaka mál en núver-
andi félagsform OV er bundið
í lögum.
Eigendur OV eru þrettán.
Ríkið á 40% en sveitarfélögin
tólf á Vestfjörðum eiga sam-
tals 60% í réttum hlutföllum
við íbúafjölda. Þegar breyt-
ingin í hlutafélag hefur tekið
gildi getur sérhver eigendanna
ráðstafað sínum eignarhlut að
vild. Hann getur hvort sem er
selt hann allan eða hluta hans
eða átt hann áfram og jafn-
framt aukið við eignarhluta
sinn ef aðrir vilja selja.
Ekkert mun liggja formlega
fyrir um áform einstakra eig-
enda en þó er augljóst að ein-
hver sveitarfélög munu selja
sína hluti en ríkið kaupa.
Nauðsynlegt er að allir eig-
endurnir samþykki breytingu
úr sameignarfélagi í hlutafé-
lag til þess að hún nái fram
að ganga. Þannig hefur sér-
hver eigandi neitunarvald,
hversu lítill sem eignarhlut-
ur hans er. Hins vegar mun
enginn hafa viljað setja öðr-
um stólinn fyrir dyrnar í
þessu efni, þó að hann sjálf-
ur ætli sér e.t.v. að eiga sinn
hluta áfram.
Nýr snjótroðari kom til Ísafjarðar um síðustu helgi
Vonast er til að lyftan verði
orðin starfhæf í byrjun mars
Nýr snjótroðari kom til Ísa-
fjarðar um síðustu helgi en
enn vantar snjóinn sem hann
á að troða. Troðarinn er af
gerðinni Leitner LH500, en
fyrir er einn slíkur á svæðinu.
„Sá troðari hefur reynst mjög
vel,“ segir Jóhann Torfason,
forstöðumaður skíðasvæðis-
ins. „Nýja tækið var eitt sinn í
eigu Skíðafélags Fljótamanna
og er keyrður um 900 klukku-
stundir. Á næstunni verður far-
ið í að skoða tækið og yfir-
fara.“
Þrátt fyrir snjóleysið er
ágætis hljóð í starfsmönnum
skíðasvæðisins. „Efnið í nýju
lyftuna er komið til Ísafjarðar.
Verið er að bíða eftir því að
það verði tollafgreitt og þá
verður hafist handa við upp-
setningu. Búið er að setja upp
allt það sem tekið var af Selja-
landsdal, svo sem lyftuhús,
endastöð og nokkra staura.
Við stefnum að því að lyftan
verði orðin starfhæf í byrjun
mars, gangi allt eftir“, segir
Jóhann. Nýi troðarinn um borð í skipi Eimskipafélagsins.
Þingmenn Vestfirðinga á viðræðufundum með sveitarstjórnum á norðanverðum Vestfjörðum
Viðræðurnar mörkuðust mjög
af aðstæðum á hverjum stað
Allir fimm þingmenn Vest-
firðinga sátu í síðustu viku
fundi með sveitarstjórnum á
norðanverðum Vestfjörðum,
hverri í sínu lagi, eða í Súða-
vík, á Ísafirði og í Bolungar-
vík. Í hléi á þingstörfum var
ákveðið að halda þessa fundi
og taka upp þráðinn frá því í
haust, þegar rætt var við full-
trúa sveitarfélaganna á sunn-
anverðum Vestfjörðum. „Þetta
voru mjög góðir fundir, hver
fyrir sig, en umræðuefnin
mörkuðust mjög af aðstæðum
á hverjum stað“, sagði Einar
K. Guðfinnsson, fyrsti þing-
maður Vestfirðinga, að lokn-
um síðasta fundinum sem var
í Bolungarvík.
Fyrst og fremst var farið
yfir málin enda ekki að vænta
neinna sérstakra niðurstaðna
af viðræðufundum af þessu
tagi. Á Ísafirði var talsvert rætt
um hugmyndir um kvótasetn-
ingu í smábátakerfinu. Einnig
var fjárhagsleg staða sveitar-
félaganna mjög til umræðu
og mál tengd henni.
Í Súðavík voru umræðurnar
meira á nótum almennrar um-
ræðu um byggðamál. Í Bol-
ungarvík var fyrst og fremst
rætt um stöðu atvinnumála í
ljósi gjaldþrots Nasco.
Laugardaginn á undan
héldu þingmennirnir fund
með stjórnum Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga og At-
vinnuþróunarfélags Vest-
fjarða. Þar voru einkum rædd
byggðamál almennt en einnig
samgöngumál sérstaklega og
hvaða skref ætti að taka í þeim
í framtíðinni. Full samstaða
var um að halda sínu striki
við uppbyggingu vegarins um
Ísafjarðardjúp og vegarins um
Klettsháls og um Austur-
Barðastrandarsýslu til að rjúfa
vetrareinangrun Vesturbyggð-
ar og Tálknafjarðar.
„Þetta eru stóru verkefnin
sem við blasa í samgöngu-
málum hér vestra en menn
voru sammála um að setjast
þyrfti niður og átta sig betur á
framtíðinni“, sagði Einar.
Frá fundi þingmannanna og bæjarfulltrúa í Ísafjarðarbæ.
06.PM5 19.4.2017, 09:2116