Bæjarins besta - 22.08.2001, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
Auðunn Einarsson atvinnugolfari frá Ísafirði býr hinum megin á hnettinum
„Þyrfti helst að finna sam-
bland af Ísafirði og Tælandi“
Allir Ísfirðingar hljóta að
vita deili á Auðuni Einars-
syni er. Þeir sem fylgjast
með golfinu vita að hann er
besti golfleikari Ísfirðinga.
Aðrir kannast við manninn
þegar þeir vita að hann er
sonur Einars Vals heitins
Kristjánssonar yfirkennara á
Ísafirði, hins geysifjölhæfa
íþróttamanns, hvort sem þar
var um líkamlegar íþróttir að
ræða eða andlegar eins og
bridge eða skák. Reyndar
verður Auðunn með hverju
árinu líkari föður sínum í
útliti og fasi, svo mjög að
kunningi Einars heitins
sagði við Auðun í næstsíð-
ustu heimsókn hans til
Íslands: Þú ert hreinlega
alveg eins og kallinn.
Í janúar síðastliðnum
gerðist Auðunn atvinnu-
maður í golfi og stundar nú
íþrótt sína í Tælandi, þar
sem hann hefur dvalist að
mestu síðustu árin. Þar bæði
æfir sjálfan sig og kennir
golf á æfingasvæði þar sem
hann hefur komið sér vel
fyrir. Í sumar hefur hann
dvalist í Reykjavík og hefur
þar verið að kenna golf.
Auðunn skrapp til Ísafjarðar
eina helgi í sumar til þess að
taka þátt í minningarmóti
um föður sinn og sigraði
með talsverðum yfirburðum.
Hér segir hann okkur und-
an og ofan af sjálfum sér og
einkum lífinu í Tælandi.
„Ég kom til Reykjavíkur í
vor og er búinn að vera þar í
sumar að kenna golf hjá
Sigurði Péturssyni golf-
kennara hjá Golfklúbbi
Oddfellowa. Þar er mikið af
fullorðnu fólki en unglinga-
starfið hefur verið í lágmarki
og ég hef verið að hjálpa
þeim að reyna að rífa þetta
upp. Það hefur verið mikið
að gera hjá mér í sumar. Ég
hef líka verið á þeytingi út
um allt land að kenna. Ég er
að reyna að safna fyrir
næstu ferð út og þess vegna
hef ég lítið verið að keppa í
sumar. Minningarmótið
hans pabba var fyrsta mótið
mitt í sumar.
Ég fer síðan út aftur í
næsta mánuði. Reyndar ætla
ég að koma við hjá systur
minni í Danmörku áður en
ég fer til Tælands. Þar bíður
maður eftir mér sem á
æfingarsvæði og ég verð að
kenna þar.“
Upphafið að ferlinum
„Það var pabba að kenna
að ég byrjaði í golfinu.
Hann sendi mér golfsett í
afmælisgjöf þegar ég var
krakki og þá kviknaði
bakterían. Hún braust þó
ekki út fyrr en nokkrum
árum seinna.
Ég hef verið að stunda
golf svona af og til síðan ég
var tólf ára. Á árunum frá
fjórtán ára aldri til tvítugs
duttu út nokkur ár. Ég hætti
snemma í action-íþróttunum
en golfið hefur alltaf hentað
mér vel og ég hef verið að
spila golf samfleytt síðan ég
varð tvítugur. Þá kviknaði
ljós hjá mér og ég sá fram á
það að ég gæti hugsanlega
spilað golf það sem eftir
væri. Það var svo í janúar
síðastliðnum að ég gerðist
atvinnumaður í golfi.“
Ísfirðingur
í húð og hár
„Ég er fæddur og uppal-
inn á Ísafirði og er stoltur af
því. Það var mjög gott að
alast upp á Ísafirði. Ég bjó
reyndar með móður minni á
Sauðárkróki í þrjú ár en þeg-
ar hún dó, þá kom ég hing-
að. Hér var það bara harkan
sex við lærdóminn. Faðir
minn var yfirkennari í
grunnskólanum og ég mátti
ekki lækka meðaleinkunn-
ina. Einkunnirnar hjá mér
voru lágar þegar ég kom frá
Sauðárkróki en þær hækk-
uðu jafnt og þétt og þótt þær
færu ekki mjög hátt þá voru
þær yfir meðaltali. Pabbi
launaði mér alltaf vel fyrir ef
ég stóð mig vel en ég fann
líka fyrir því þegar hann var
ekki ánægður. Ég vissi þá
líka upp á mig sökina og
lagði mig fram við að gera
betur. Þetta ýtti náttúrulega
undir keppnisskapið. Það
var gott að fá hrós.
Ég fór í grunndeild raf-
iðna í Menntaskólanum á
Ísafirði og kláraði rafvirkj-
ann á Akranesi. Það var
mjög góður skóli og ágætt
að hafa þetta upp á hlaupa ef
golfið klikkar.“
Erfiðleikar
og samstaða
„Síðustu fimm ár hafa
verið svolítið upp og niður
hjá mér. Það er fyrst núna
sem ég er farinn að sjá fram
á eitthvað sem mig langar að
gera og finnst hlutirnir vera
að ganga. Móðir mín dó
1987 og það var mjög erfitt
fyrir mig þegar faðir minn
dó. Síðan hef ég staðið á
krossgötum og ekkert vitað í
hvaða átt ég ætti að fara. Ég
er búinn að prófa margt og
lenda í ýmsu en ég hef feng-
ið góða aðstoð frá mörgu
góðu fólki, vinafólki for-
eldra minna, fyrir nú utan
systkini mín. Ég held að ég
sé loksins farinn að sjá birtu
í lífinu í gegnum það að vera
að spila þarna úti. Það er
góð tilfinning.
Við erum fjögur systkinin.
Sigríður býr út í Danmörku.
Atli, sem var í Víkingi, býr
og vinnur í Reykjavík með
konunni sinni og tveimur
börnum. Eyþór bróðir minn
vinnur hjá Landssímanum á
Sauðárkróki. Þau hafa öll
staðið vel við bakið á mér
og það er mjög gott sam-
band á milli okkar. Ég tel
mig vera mjög heppinn með
fjölskyldu og vini. Það er oft
sem maður áttar sig ekki á
því hvað maður er lánsamur
hvað þessa hluti varðar.“
Æfingavöllurinn
birtist
„Það var nú fyrrverandi
kærustunni minni að þakka
að ég heillaðist af Asíu og
síðan frétti ég af því í
gegnum vini föður míns,
sem höfðu verið í Tælandi
að spila golf, að það væri
gott að spila þar. Ég stökk á
þetta og mætti bara á flug-
völlinn með golfsettið og
farangurinn og pantaði ekki
hótel eða neitt. Þegar ég
lenti í Tælandi tók ég leigu-
bíl upp á hótel, vissi svona
nokkurn veginn hvert ég ætti
að fara. Ég var mjög fljótur
að komast inn í lífið þar.
Tælendingar eru mjög
almennilegt og viðkunnan-
legt fólk og mér líður mjög
vel þarna.
Það tók mig um einn og
hálfan mánuð að fá þá til að
viðurkenna mig sem golf-
kennara. Þeir þekktu mig
sem golfara en ekki sem
kennara og það tók þá smá-
tíma að átta sig á því að ég
ætlaði að fara að kenna. Þá
gerðist það einn daginn
þegar var ég að rúnta um
túristasvæði borgarinnar þar
sem ég var, að ég tók allt í
einu eftir æfingarsvæði sem
ég hafði aldrei séð áður og
fór þar inn. Þar var eigand-
inn, maður sem var búinn að
vera að vinna sem banka-
stjóri í tugi ára. Hann var að
láta drauminn sinn rætast og
koma upp æfingasvæði og
var nýbúinn að opna. Hann
tók mér opnum örmum og
vildi endilega fá mig til að
hjálpa sér við þetta og núna
er ég að kenna þar. Reyndar
fær enginn annar að kenna á
því svæði nema með okkar
leyfi þannig að ég er í mjög
góðum málum.“
Draumastaður
„Ég er að kenna allskonar
fólki en aðallega eru það
útlendingar, þ.e. ekki Tæ-
lendingar. Einstaka sinnum
koma Tælendingar til mín
en það eru þá yfirleitt menn
úr yfirstétt, læknar og annað
menntað fólk sem talar
ensku þannig að það hefur
ekki háð mér ennþá að
kunna ekki tælenskuna.
Það er gríðarlegur áhugi á
golfi í Tælandi en þetta er
heldri manna sport. Það er
ekki hver sem er sem getur
spilað þar golf en þeir sem
eiga pening eru pottþétt í
golfi. Golfvellirnir þarna eru
líka í heimsklassa og þar eru
haldin mót eins og í Banda-
ríkjunum. Það fer bara
minna fyrir þeim í sjónvarp-
inu hér á Íslandi.
Þetta er því draumastaður
fyrir mig sem golfara.
Veðrið er yndislegt og frekar
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 – Ísafirði
Símar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
Einbýlishús / raðhús
Fasteignir
í þessari
auglýsingu
eru aðeins
sýnishorn af
söluskránni.
Allar frekari
upplýsingar
eru veittar á
skrifstofunni að
Hafnarstræti 1
F
as
te
ig
n
vi
k
un
na
r
F
as
te
ig
n
vi
k
un
na
r
Hlíðarvegur 8: 171,8 m² einbýlishús á tveimur hæðum,
ásamt bílskúr að Hlíðarvegi 9. Verð 7,5 m.kr.
Engjavegur 6: 223 m² einbýlis-
hús á tveimur hæðum. Getur
selst í tvennu lagi, 5 herb. íbúð
á e.h. og 4ra herb. íbúð á n.h.
Tilboð óskast
Engjavegur 24: 126,4 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum.
Frábær sólbaðsaðstaða. Laust
1. ágúst 2001. Áhv. ca. 4,6 m.kr.
Verð 7,5 m.kr.
Hafraholt 14: 144 m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt bílskúr
Verð 10,3 m.kr.
Hjallavegur 19: 242 m² einb.hús
á 2 hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Sér íbúð á n.h. Ýmis
skipti möguleg. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 10,5 m.
Hlíðarvegur 26: 259 m² einbýl-
ishús á tveimur hæðum, á neðri
hæð er 70 m² íbúð sem hægt er
að leigja út Verð 12,5 m.kr.
Hlíðarvegur 37: 185,9 m² rað-
hús á þremur hæðum ásamt bíl-
skúr og einstaklingsíbúð. Skipti
á minni eign koma til greina.
Verð 10,2 m.kr.
Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt grónum garði og eignarlóð
Laust fljótlega. Tilboð óskast
Hrannargata 1: 238,9 m² ein-
býlishús á 2 hæðum ásamt kjall-
ara, háalofti og ræktuðum garði
Tilboð óskast
Hrannargata 8a: 78,1 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
eignarlóð. Húsið er uppgert að
hluta. Verð 4,6 m.kr.
Lyngholt 10: 151,3 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt 55,2 m²
bílskúr Verð 12,9 m.kr.
Seljalandsvegur 72: 112 m²
einbýlishús á tveimur hæðum,
góður sólpallur. Verð 8,2 m.kr.
Skipagata 11: 93 m² einbýlishús
á tveimur hæðum (efri hæð er
undir súð), allt uppgert. Húsið er
í hjarta bæjarins. Ræktuð eignar-
lóð. Verð 6,7 m.kr.
Stakkanes 4: 144 m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Skipti möguleg á íbúð á Eyrinni.
Áhv. ca. 3,5 m.kr. Verð 9,5 m.kr.
Stakkanes 16: 226,2 m² raðhús
á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Tilboð óskast
Urðarvegur 33: 306,3 m² glæsi-
legt einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt bílskúr Verð 16 m.kr.
Urðarvegur 64: 214 m² raðhús
á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Tilboð óskast
4-6 herb. íbúðir
Fjarðarstræti 14: 133,4 m² 4ra
herbergja íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi
ásamt bílskúr, háalofti og hluta
kjallara. Tilboð óskast
Fjarðarstræti 14: 100 m² falleg
4ra herbergja íbúð á n.h. í tvíbýl-
ishúsi ásamt 60m² kjallara og
27,8 m² geymsluskúr. Baklóð
fylgir neðri hæðinni. Áhv. ca. 1,5
m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Fjarðarstræti 38: 3-4ra herb.
íbúð að hluta undir risi. Íbúðin er
í góðu standi. Tilboð óskast
Pólgata 5a: 127,7 m² 5 herbergja
íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi
ásamt helmingi kjallara. Íbúðin
er skemmtileg og vel staðsett.
Verð aðeins 4,5 m.kr.
Sólgata 5: 102 m² 6 herbergja
íbúð á tveimur hæðum í norður-
enda í tvíbýlishúsi. Áhv. ca. 3,5
m.kr. Verð 5 m.kr
Stórholt 13: 123 m² 4ra herb.
íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi
ásamt bílskúr. Íbúðin er mikið
uppgerð. Verð 7,8 m.kr.
Sundstræti 22: 140m² 4-5 herb.
íbúð á miðhæð í fjórbýlishúsi
ásamt 28 m² bílskúr. Áhv. ca. 5
m.kr. Verð 10,5 m.kr.
3ja herb. íbúðir
Pólgata 6: 70 m² íbúð á 1. hæð
til hægri í fjölbýlishúsi. Áhv. ca.
2,4 m.kr. Verð 3,7 m.kr.
Silfurgata 11: 56,2 m² (75m²
gólfflötur, mikið rými í risi) Björt
og glæsileg íbúð með frábæru
útsýni. Ótrúlega hagstæð í rekstri.
Áhv. ca. 3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3ju
hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2
m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3ju
hæð til hægri í fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu. Skoða öll tilboð.
Möguleiki að taka bíl uppí. Áhv.
ca. 3 m.kr. Verð 5,5 m.kr.
Sundstræti 22: 68 m² íbúð á
jarðhæð í fjórbýlishúsi.
Verð 4. m.kr.
Túngata 13: 76,1 m² íbúð á 1.
hæð í þríbýlishúsi. Íbúðin er
endurnýjuð að stórum hluta.
Verð 5 m.kr.
Túngata 13: 76,1 m² íbúð í
kjallara í þríbýlishúsi. Íbúðin er í
endurnýjun og telst fokheld,
tilvalin fyrir þá sem vilja innrétta
eftir eigin höfði. Verð 2 m.kr.
2ja herb. íbúðir
Sundstræti 24: 69 m² skemmti-
leg og rúmgóð íbúð á jarðhæð í
fjórbýlishúsi. Verð 4,5 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m² íbúð á 1.
hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlis-
húsi ásamt sér geymslu.
Verð 4 m.kr.
Súðavík
Álfabyggð 3: 130,2 m² nýtt og
glæsilegt einbýlishús á einni hæð
ásamt bílskúr, sólstofu og tveim-
ur sólpöllum. Verð 11,5 m.kr.
Bolungarvík
Hlíðarstræti 6: 113 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr
Verð 7,9 m.kr.
Vitastígur 25b: 101 m² fjögurra
herbergja íbúð í fjölbýlishúsi. Sér
inngangur. Tilboð óskast
34.PM5 19.4.2017, 09:404