Bæjarins besta - 22.08.2001, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001 5
smáar
að það sé of hlýtt heldur en
kalt. Á veturna hugsa ég oft
til vina minna heima í kuld-
anum á Íslandi á meðan ég
er úti að leika mér í sólinni á
stuttbuxum og bol allan
daginn. Það er bara á
kvöldin sem ég fer í
síðbuxur, svona fyrir
kurteisissakir.“
Tælenskan
og maturinn
„Ég er að rembast við að
læra tælenskuna en hún er
mjög erfið. Ég kann fullt af
orðum og kann að beita
einhverjum tónum. Það er
hins vegar erfiðara að setja
þetta saman í setningar og
að heyra það sem Tælend-
ingarnir eru að segja, því að
þeir tala í tónum.
Matur Tælendinga er
mjög góður en maður verður
auðvitað að fá sinn vestræna
mat öðru hvoru. Sterka
matinn þeirra er ég reyndar
ennþá að melta, maður situr
með loga út úr munninum
eftir hann. Ferski maturinn
þeirra er hins vegar alveg
meiriháttar, ódýr, góður og
fitusnauður.“
Lifir drauminn
„Menn vilja meina að ég
eigi eftir að setjast að þarna
en ég þori ekki alveg að
segja til um það. Mig langar
allavega að vera þarna næsta
vetur og næsta ár líka en
koma heim í millitíðinni og
kenna golf. Svo verður
tíminn bara að leiða það í
ljós hvort ég festist þarna.
Ég hef reyndar verið að
gæla við þá hugmynd, ef
það gengur vel úti í vetur, að
taka þátt í úrtökumóti fyrir
Asíumót atvinnumanna eða
Asíu-PGA, eins og ég má
sem atvinnumaður. Það er
aldrei að vita nema að mað-
ur eigi góðan hring og ég
væri í góðum málum með
skírteini upp á PGA í Asíu.
En það þarf að eiga pening
og hafa sponsora til að halda
manni uppi í gegnum móta-
röðina. Það lítur út eins og
að íslensk fyrirtæki séu ekki
nógu sterk til að halda slíku
uppi. Það var stofnað hluta-
félag í kringum Birgi Leif
og honum gengur svona upp
og niður. En ég ætla nú að
byrja og ætla að sjá hvernig
gengur áður en ég fer að
hugsa of mikið út í þetta.
Mér gengur ágætlega úti.
Ég lifi á því sem ég vinn
mér inn með kennslu en
þetta fer auðvitað eftir því á
hvernig standard ég vil lifa.
Ef ég vil lifa eins og Tæ-
lendingarnir, þá á ég fullt
afgangs. Ef ég lifi eins og ég
myndi lifa á Íslandi, þá er ég
mjög vel settur. En svo gæti
ég auðvitað lifað eins og
konungur en þá væri ég að
eyða öllu og það er ekki
sniðugt. Ég leigi einbýlishús
í Tælandi á ca. 12.000
krónur á mánuði. Svo er ég
með ráðskonu sem þrífur
annan hvern dag og þvær
þvottinn og straujar. Ég er
að borga henni 4.000 krónur
á mánuði sem er helmingi
meira en hún setti upp. Mér
fannst ég ekki geta annað,
slíkur er munurinn á lífinu
þar og á Íslandi.“
Framtíðin
„Það sem ég stend frammi
fyrir núna í náinni framtíð er
að ákveða hvort ég vilji vera
áfram úti í Tælandi og
kaupa hús þar, eða hvort ég
vilji snúa heim til Íslands.
Ég veit bara að ég ætla að
spila golf áfram, hvar sem
það verður. Draumurinn er
auðvitað að vera úti en það
verður bara að koma í ljós.
Ég er í Reykjavík núna og
ég er ekkert of hrifinn af því.
Veðrið er líka búið að vera
leiðinlegt fyrir sunnan í
sumar. Svo skrepp ég til
Ísafjarðar og þar er sól og
blíða.
Ég þyrfti að finna sam-
bland af Ísafirði og Tælandi.
Þar yrði ég ánægður“, sagði
Auðunn Einarsson.
Stuttu eftir að þetta viðtal
var tekið tók Auðunn þátt í
meistaramótinu í Golfklúbbi
Oddfellowa. Hann lenti þar í
öðru sæti á 307 höggum,
einu höggi á eftir fyrsta
manni.
LIÐVEISLA
Það vantar dugandi einstaklinga, 16
ára og eldri í liðveiðslu á vegum Skóla-
og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæj-
ar.
Hafi þú áhuga á mannlegum samskipt-
um og að sinna afar gefandi verkefni
er liðveisluhlutverkið starf fyrir þig.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýs-
ingar veitir Snjólaug á Skóla-og fjöl-
skylduskrifstofu, 4. hæð í Stjórnsýslu-
húsinu eða í síma 450 8001.
Gerist áskrifendur
í síma 456 4560
Séð eftir Sólgötunni og inn að hringtorginu. Gangbrautin liggur yfir götuna rétt við aftur-
endann á fólksbílnum. Vörubíllinn er að beygja inn á hringtorgið
Tilhögun við nýja hringtorgið á Ísafirði
Slysahætta á horn-
inu við kirkjuna?
Athygli blaðsins hefur verið
vakin á umdeilanlegri tilhög-
un við nýja hringtorgið á Ísa-
firði. Áður voru gatnamót Sól-
götu og Hafnarstrætis alveg
við húsið Sólgötu 2 (rauða
húsið með steintröppunum t.v.
á myndinni) og Ísafjarðar-
kirkju (Sólgötu 1). Þar var
stöðvunarskylda þótt fæstir
hafi reyndar farið eftir því.
Nú er aftur á móti góður spölur
frá gömlu gatnamótunum og
út á hringtorgið og lengist
Sólgatan sem því nemur. Hins
vegar liggur gangstéttin enn á
sama stað yfir Sólgötuna þótt
gatan sem hún lá meðfram sé
farin.
Þetta virðist bjóða hættunni
heim. Fjöldi krakka fer þessa
leið í skólann, ýmist gangandi
eða hlaupandi eða á reiðhjól-
um. Ekki er lengur nein nauð-
syn fyrir þá sem aka Sólgöt-
una að huga að bílaumferð á
gatnamótum sem nú eru horf-
in og reyndar er stöðvunar-
skyldumerkið horfið líka.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins verður ekki slíkt merki
þarna framvegis. Þjóðleiðin
úr Bolungarvík og áleiðis inn
í Djúp liggur um Sólgötuna
og hefði aksturinn um þessa
litlu götu talist nógu hröð þótt
umræddar breytingar nú hefðu
ekki komið til. Nú halda bílar
í gegnumakstri sínum fulla
hraða áfram yfir gangbrautina
á horninu við kirkjuna og
alveg út að hringnum.
Bílaleigubíllinn eftir veltuna í Mjóafirði.
„Alltof algengt að ferðamenn velti bílum í lausamöl“
Enn ein bílveltan í
Mjóafirði við Djúp
– skaðlegt fyrir íslenska ferðaþjónustu, að mati Umferðarráðs
Ekki urðu mjög alvarleg
slys á fólki í bílveltu sem varð
í Mjóafirði milli Látra og
Djúpmannabúðar síðdegis á
fimmtudag í síðustu viku. Hér
var um tvo erlenda ferðamenn
á bílaleigubíl að ræða og mun
ökumaðurinn hafa misst
stjórn á bílnum í lausamöl.
Ökumaðurinn handleggs-
brotnaði og fingurbrotnaði en
farþeginn mun hafa hlotið
smávægilega höfuðáverka.
Fréttir af útlendingum á
bílaleigubílum sem lenda í
lausamöl á ferð sinni um ís-
lenska vegi og velta bílunum
eru mjög algengar og hafa
ekki síst verið áberandi í sum-
ar. Að sögn Umferðarráðs hef-
ur „sannarlega“ verið reynt
að taka á þessu vandamáli á
um það sem er sérstakt við
akstur á íslenskum vegum.
Þessi bæklingur er gefinn út á
sjö tungumálum og er reynt
að koma honum á framfæri
við alla erlenda ökumenn hér
á landi.
Að mati lögreglu er alltof
algengt að ferðamenn velti bíl-
um sínum í lausamöl. „Þetta
eru aðstæður sem útlendingar
eru óvanir og þekkja ekki. Það
skapast ekki nein reynsla fyrr
en þeir lenda í þessu og þá er
það of seint“, segir lögreglu-
varðstjóri í Borgarnesi. Lög-
regluvarðstjóri á Ísafirði sem
blaðið ræddi við tók undir
þetta.
„Miklu máli skiptir að kom-
ið verði í veg fyrir þessi slys,
m.a. fyrir ferðaþjónustuna í
landinu, því að þau skaða at-
vinnugreinina án efa þegar til
lengri tíma er litið“, sagði í
orðsendingu frá Umferðarráði
til Víkverja Morgunblaðsins í
síðustu viku. Umferðarráð
þakkar þar Víkverja fyrir að
vekja athygli á þessu máli.
undanförnum árum. Þar má
nefna, að í ár hefur Umferðar-
ráð í samstarfi við bílaleigur
og fleiri aðila gefið út bækling
Frá slysstað í Mjóafirði.
Óska eftir að kaupa notað
píanó eða passa píanó fyrir
einhvern sem ekki hefur
pláss fyrir það. Uppl. gefur
Harpa í símum 456 3052
eða 868 6282.
Vegna flutnings úr langi er
til sölu Yamaha Virago
250 árg. 2000. Minna próf
dugar. Upplýsingar í síma
694 8523.
Tapast hafa húslyklar í eða
við miðbæinn á Ísafirði.
Finnandi visamlegast hafi
samband í síma 456 3085
eða 868 4080.
Tveir ættbókarfærðir pers-
neskir kettir fást gefins á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 456 4236.
Til sölu er MMC Lancer,
árg. 98, 4X4, station, ekinn
58 þús. km. Verð kr. 450
þús. stgr. Upplýsingar í
síma 456 7123.
Til sölu er ársgamall sjón-
varpsskápur. Selst á ca.
hálfvirði. Upplýsingar í
síma 456 3496.
Óska eftir þvottavél og
sófasetti. Allt kemur til
greina, ódýrt eða gefins. Á
sama stað óskast fræsari.
Uppl. í síma 456 3496.
Óska eftir dagmömmu sem
fyrst fyrir árs gamla stelpu.
Uppl. í síma 456 3030.
Til leigu er björt og rúmgóð
kjallaraíbúð við Sundstræti
á Ísafirði. Uppl. gefur Ást-
valdur í síma 456 3797.
Til sölu er MMC L-300,
árg. 96, turbo dísel. Upplýs-
ingar í síma 862 4279.
Ég gleymdi sólgleraugun-
um mínum við vörðuna
uppi á Gleiðarhjalla, mánu-
daginn 6. ágúst. Finnandi
hringi í síma 691 4546.
Húsgögn seljast ódýrt. Til
sölu er 2ja sæta sófar og
einn stóll ásamt tveimur
sjónvarpsskápum og jafn-
vel rúm án dýnu. Uppl. í
síma 699 7693.
Óska eftir notuðum gangi
af 35" dekkjum eða stærri.
Verða að passa á 16,5"
felgur. Upplýsingar í síma
892 2194.
Óska eftir vel með förnu
sófasetti, helst hornsófa,
fyrir lítinn pening eða gef-
ins. Uppl. í síma 456 1308.
Til sölu er Mazda 323, árg.
1987, 1500 GLX, ekinn 145
þús. km. Geislaspilari, sum-
ar- og vetrardekk á felgum.
Verð kr. 160 þús. Uppl. í
síma 869 3114.
Bráðvantar einbýlishús á
Ísafirði eða Suðureyri um
mánaðamótin. Öruggum
greiðslum, skilvísi og góðri
umgengni heitið. Uppl. í
símum 853 2423 eða 694
3245 (Baldvin).
Vegna flutnings er til sölu
stór Electrolux ísskápur.
Verð kr. 17 þús. Upplýs-
ingar í síma 897 4236.
Átt þú bílskúr sem þú mátt
missa af í leigu í eitt ár. Ef
svo er hafðu þá samband í
síma 894 4767.
Til sölu er barnakerra með
skermi og svuntu. Uppl. í
síma 456 3014.
Til sölu er heilt bil í veiðar-
færaskemmu að Sindra-
götu 9 á Ísafirði. WC, heitt
vatn og harðsteypa í gólfi.
Uppl. í síma 456 3678.
Til leigu er 2ja herb. íbúð
með eldhúsi og sérinn-
gangi. Upplýsingar í síma
456 3678.
Til sölu eða leigu er 70m²
kjallaraíbúð með sérinn-
gangi í fjórbýlishúsi við
Sundstræti. Uppl. í síma
456 3193 eða 896 3193.
Ertu orðin(n)
áskrifandi?
34.PM5 19.4.2017, 09:405